Saga:
Í apríl 2005 var hús sem stóð við Vatnsendablett 70a í Kópavogi auglýst til sölu, með skilyrði um brottflutning af lóðinni. Seinna sama ár fengu hjónin Þuríður M. Magnúsdóttir og Jón Jóel Einarsson heimild til að flytja húsið að Suðurgötu 18 á Akranesi.1Til sölu (2005, 12. apríl). Fréttablaðið, 5. árg., 97. tbl., bls. 16; Vefur Akranesbæjar, mál nr. SU050032; Guðmundur Lúther Hafsteinsson (2008, 4. júlí). Skráning húsa á Akranesi. Gagnasafn Minjastofnunar Íslands. Það var Gunnar Borgarsson arkitekt sem teiknaði endurgerð hússins við Suðurgötu.
Þess má geta að áður stóð húsið Neðri-Teigur á lóðinni númer 18 við Suðurgötu. Árið 1982 var það hús flutt að Háteigi 8 á Akranesi.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 23. janúar, 2024
Heimildaskrá
- 1Til sölu (2005, 12. apríl). Fréttablaðið, 5. árg., 97. tbl., bls. 16; Vefur Akranesbæjar, mál nr. SU050032; Guðmundur Lúther Hafsteinsson (2008, 4. júlí). Skráning húsa á Akranesi. Gagnasafn Minjastofnunar Íslands.
Deila færslu
Síðast uppfært 23. janúar, 2024
