Hafnargata 14, Fáskrúðsfirði
Saga:
Líklega hófust þorskveiðar Frakka á seglskipum við Íslandsstrendur fyrir um þremur öldum, en eftir 1830 jukust þessar veiðar til mikilla muna og mestar voru þær frá miðri 19. öld fram undir fyrri heimsstyrjöld. Þegar mest var er talið að 200-300 seglskip hafi verið hér að veiðum og áhafnir skipanna verið samanlagt á bilinu 3000-5000 manns.1Helgi H. Jónsson og Þorsteinn Bergsson (2008). Hafið gaf og hafið tók. Saga franska spítalans á Fáskrúðsfirði og tillögur um endurbyggingu. [Reykjavík:] Minjavernd hf.
Líf sjómanna á seglskipunum frönsku einkenndist af striti og harðrétti, kulda og vosbúð veikindum og slysum. Mörg skipanna áttu ekki afturkvæmt til heimahafnar, fórust við Ísland. Talið er allt að 400 franskar skútur hafi farist við Ísland og með þeim um 4000-5000 sjómenn.2Helgi H. Jónsson og Þorsteinn Bergsson (2008), bls. 6.
Til aðstoðar sjómönnum sínum sendu Frakkar bæði spítalaskip á Íslandsmið og byggðu hér á landi þrjá spítala, í Reykjavík 1902, í Vestmannaeyjum 1906 og á Fáskrúðsfirði var spítali byggður árið 1903 og tók hann til starfa árið eftir.3Helgi H. Jónsson og Þorsteinn Bergsson (2008); Albert Eiríksson (2004). Franski spítalinn á Fáskrúðsfirði 100 ára. Glettingur. Tímarit um austfirsk málefni, 14. tbl., bls. 29-35.
Örfáum árum áður höfðu samtökin Société des Oeuvres de Mer, Sjóverkasamtökin, sem beittu sér fyrir bættum aðbúnaði franskra sjómanna í samvinnu við kaþósku kirkjuna, staðið fyrir því að reist voru tvö hús á Fáskrúðsfirði, sjúkraskýli árið 1897 og Kapelluna við hlið þess árið 1899. Húsin stóðu við Hamarsgötu 8 á Fáskrúðsfirði.
Um Kapelluna segir Elín Pálmadóttir í bók sinni Fransi Biskví:
Í fyrstu var messað í sjúkrastofunni, en síðan byggð lítil kapella við endann, sem aftur var rifin 1924 og viðirnir notaðir í aðra byggingu inni í bæ. Kapellan náði upp undir efri gluggana og hægt að opna þaðan inn í sjúkrastofuna. Var kapellan blámáluð og skrautleg, og sótti börnin á staðnum mjög í kaþólsku messurnar á þessum fína stað, enda fengu þau þar oft helgimyndir gefins.4Elín Pálmadóttir (1989). Fransí biskví. Frönsku Íslandssjómennirnir, bls. 161. Reykjavík: Almenna bókafélagið.
Þegar veiðum Frakka við Ísland lauk í kjölfar fyrri heimsstyrjaldar stóðu húsin sem þeir höfðu byggt ónotuð. Franski spítalinn var fluttur út á Hafnarnes og reistur á ný sem íbúðarhús, sjúkraskýlið var selt og nýtt sem íbúðarhús án þess að færa það neitt og líkhúsið var rifið. Kapellan var afhelguð árið 1923, flutt fjöl fyrir fjöl að Skólavegi 70a, reist að nýju og nýtt þar sem íbúðarhús, sem nefndist Dagsbrún. Það voru hjónin Ásgrímur Vigfússon (1872-1953) og María Jónsdóttir sem fluttu húsið og þar bjuggu þau alla tíð síðan.5Ásgrímur Jónasson (2013, 24 mars). Sótt 2. desember 2023 af https://www.facebook.com/profile/100064590433584/search/?q=kapellunni&locale=is_IS

Kapellualtarið árið 1911. Kapelluklukkan fannst í frystihúsi (2013, 24. desember). Fréttablaðið, 302. tbl., bls. 6. Sótt 25. maí af https://timarit.is/.
Árið 2010 stóð félagið Minjavernd hf. fyrir því að spítalinn var fluttur frá Hafnarnesi til baka á Fáskrúðsfjörð og endurreistur við Hafnargötu og gerður að hóteli. Hluti af því verkefni var að endurgera sjúkraskýlið og færa Kapelluna aftur að hlið þess, tæpum 100 m austar en hún stóð í upphafi. Það var gert árið 2012.6Minjavernd (ódags.) Franski spítalinn á Fáskrúðsfirði. Sótt 24. maí 2023 af https://www.minjavernd.is/is/verkefni/hotelid.
Við leit að gömlum gripum úr Kapellunni fannst klukkan sem þar hafði verið í strigapoka uppi á lofti í gömlu frystihúsi. Þá fundust styttur sem staðið höfðu við altarið í Kapellunni í Landakotskirkju (Kristskirkju) í Reykjavík (sjá mynd). Gerðar voru afsteypur af þeim og þær eru nú varðveittar fyrir austan. Auk þess fannst gamla harmoníið úr Kapellunni í geymslu kaþólska safnaðarins.7Kapelluklukkan fannst í frystihúsi (2013, 24. desember). Fréttablaðið, 302. tbl., bls. 6. Sótt 25. maí af https://timarit.is/.
Leitarorð: Fáskrúðsfjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. desember, 2023
Heimildaskrá
- 1Helgi H. Jónsson og Þorsteinn Bergsson (2008). Hafið gaf og hafið tók. Saga franska spítalans á Fáskrúðsfirði og tillögur um endurbyggingu. [Reykjavík:] Minjavernd hf.
- 2Helgi H. Jónsson og Þorsteinn Bergsson (2008), bls. 6.
- 3Helgi H. Jónsson og Þorsteinn Bergsson (2008); Albert Eiríksson (2004). Franski spítalinn á Fáskrúðsfirði 100 ára. Glettingur. Tímarit um austfirsk málefni, 14. tbl., bls. 29-35.
- 4Elín Pálmadóttir (1989). Fransí biskví. Frönsku Íslandssjómennirnir, bls. 161. Reykjavík: Almenna bókafélagið.
- 5Ásgrímur Jónasson (2013, 24 mars). Sótt 2. desember 2023 af https://www.facebook.com/profile/100064590433584/search/?q=kapellunni&locale=is_IS
- 6Minjavernd (ódags.) Franski spítalinn á Fáskrúðsfirði. Sótt 24. maí 2023 af https://www.minjavernd.is/is/verkefni/hotelid.
- 7Kapelluklukkan fannst í frystihúsi (2013, 24. desember). Fréttablaðið, 302. tbl., bls. 6. Sótt 25. maí af https://timarit.is/.
Deila færslu
Síðast uppfært 14. desember, 2023

