Saga:
Í gagnasafni Minjastofnunar Íslands má finna upplýsingar um að húsið sem nú er Skúlaskeið 3 í Hafnarfirði sé svokallað „katalóghús“ flutt inn frá Noregi árið 1898 og reist sama ár á jörðinni Hábæ í Vogum á Vatnsleysuströnd, vandað að allri gerð. Hábær var hluti úr Stóru-Vogajörðinni og settist Árni Jónsson þar að, en Ásmundur sonur hans tók síðar við búinu.1Skúlaskeið 3, Hafnarfirði, verknr. 2188 í gagnasafni Minjstofnunar Íslands; Guðmundur B. Jónsson (1987). Mannlíf og mannvirki í Vatnsleysustrandarhreppi, bls. 70-71. [Útg.staðar ekki getið:] Höfundur. Samkvæmt fornleifaskráningu í Vogum hefur húsið líklega staðið þar sem húsin við Tjarnargötu 1-3 standa nú (2023).2Kristborg Þórsdóttir og Sólveig Guðmundsdóttir Beck (2013). Deiliskráning fornleifa vegna mats á umhverfisáhrifum sjóvarna á Vatnsleysuströnd, bls. 12. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands ses., skýrsla nr. FS521-13081.
„Árið 1920 veitti bæjarstjórinn í Hafnarfirði ábúanda á jörðinni Hábær, Ásmundi Árnasyni, leyfi til þess að flytja áðurnefnt hús á lóð „við fyrirhugað Skúlaskeið“ eða „neðan við fiskreit Davíðsson og Hobbs“.“ Árið eftir var húsið síðan flutt þangað sem það stendur enn við Skúlaskeið.3Skúlaskeið 3, Hafnarfirði, verknr. 2188 í gagnasafni Minjastofnunar Íslands. Ásmundur Árnason (1861-1930) var aflasæll útgerðarmaður, giftur Hallfríði Þorsteinsdóttur (f. 1866).
Á grunni Hábæjar lét Árni Theódór Pétursson reisa hús sem hann flutti frá Hvammi.4Guðmundur B. Jónsson (1987), bls. 71.
Í fyrstu brunavirðingu eftir flutning hússins, sem gerð var 8. október 1921, var húsinu lýst þannig:
a) Húsið er einlyft með porti og risi og 2 kvistum. Niðri skipt í 5 stofur og eldhús, klætt innan panel og stofurnar eru fóðraðar. Uppi skipt í 5 herbergi og eldhús, klætt innan panel og herbergin eru fóðruð, allt málað. Húsið er notað til íbúðar. Undir öllu húsinu er 2ja metra hár steinsteyptur kjallari með 5 gluggum, notaður til geymslu.
b) Anddyri með risi, klætt innan panel og fóðrað.5Gláma-Kím (2021, 15. janúar). Vesturbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun, bls. 247. Hafnarfjörður. Umhverfis- og skipulagssvið. Sótt 20. nóvember 2023 af https://husaskraning.minjastofnun.is/Husakonnun_107.pdf.
Leitarorð: Vogar
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 29. janúar, 2026
Heimildaskrá
- 1Skúlaskeið 3, Hafnarfirði, verknr. 2188 í gagnasafni Minjstofnunar Íslands; Guðmundur B. Jónsson (1987). Mannlíf og mannvirki í Vatnsleysustrandarhreppi, bls. 70-71. [Útg.staðar ekki getið:] Höfundur.
- 2Kristborg Þórsdóttir og Sólveig Guðmundsdóttir Beck (2013). Deiliskráning fornleifa vegna mats á umhverfisáhrifum sjóvarna á Vatnsleysuströnd, bls. 12. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands ses., skýrsla nr. FS521-13081.
- 3Skúlaskeið 3, Hafnarfirði, verknr. 2188 í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.
- 4Guðmundur B. Jónsson (1987), bls. 71.
- 5Gláma-Kím (2021, 15. janúar). Vesturbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun, bls. 247. Hafnarfjörður. Umhverfis- og skipulagssvið. Sótt 20. nóvember 2023 af https://husaskraning.minjastofnun.is/Husakonnun_107.pdf.
Deila færslu
Síðast uppfært 29. janúar, 2026