Suðurgata 14, Sauðárkróki
Suðurgata 14, árið 1950. Ljósm.: Kristján C. Magnússon. Sótt 23. nóvember 2023 af https://www.facebook.com/MinjastofnunIslands/posts.
Suðurgata 14, árið 2009. Ljósm.: Stefán Héðinsson. Sótt 13. nóvember 2023 af https://www.flickr.com/photos/stefanhedins/3514500996.
Saga:
Um 1890 byggðu þau Magnús Guðmundsson verslunarmaður og Margrét Pétursdóttir kona hans lítið timburhús við Aðalgötu á Sauðárkróki, gegnt Einarshúsi, sem stóð á þeim slóðum sem gamla mjólkursamlagið var reist (Aðalgötu 21a). Var þá húsið kallað Magnúsarbúð eða Búðin. Sláturfélag Skagfirðinga keypti húsið af þeim árið 1906 en þau bjuggu þó í því til ársins 1908.1Kristmundur Bjarnason (1969). Saga Sauðárkróks. Fyrri hluti fram til ársins 1907, bls. 188. [Sauðárkróki:] Sauðárkrókskaupstaður; Kristmundur Bjarnason (1971). Saga Sauðárkróks. Síðari hluti I. 1907-1922, bls. 163. [Sauðárkróki:] Sauðárkrókskaupstaður; Unnar Ingvarsson (2009, 1. október). Tölvupóstur.
Í Virðingabók fyrir Sauðárkrók 1916-1917 var húsinu lýst þannig:
Húsið er ein hæð með risi.
Niðri eru tvö íbúðarherbergi, veggfóðruð og máluð og kompur í báðum. Eitt eldhús með eldavél, ein forstofa og einn forstofuskúr.
Á loftinu er eitt íbúðarherbergi og óinnréttað geymslupláss.
Í íbúðarherbergi, einn kabys (ofn).
Hlaðinn reykháfur og gengur rör frá eldavélinni í hann og rör frá kabysnum útum þekjuna.
Gluggar eru 7.2Unnar Ingvarsson (2009, 1. október).
Árið 1919 seldi félagið húsið til brottflutnings og var það þá flutt að Suðurgötu 14 á Sauðárkróki, þar sem það stendur enn og hefur lengi verið kallað Ártún. Líklega hefur það verið Kristján Sveinsson sem keypti húsið og lét flytja það. Húsið var reist svo til óbreytt við Suðurgötuna og sagt vera 7,10 x 4,15 m með 7 gluggum.3Kristmundur Bjarnason (1969), bls. 188; Kristmundur Bjarnason (1971), bls. 163. Ekki er ólíklegt að ágangur sjávar hafi ógnað húsinu.
Undanfarin ár hafa verið gerðar miklar endurbætur á húsinu, sem bera vott um fagleg vinnubrögð, sem hæfa aldri og anda hússins. Einnig hefur verið byggt við húsið til vestur og inngönguskúr á norðurhlið þess.4Eyrún Sævarsdóttir og Sólborg Una Pálsdóttir (ódags.). Húsakönnun Sauðárkróks. Suðurgata, bls. 59. (
Leitarorð: Sauðárkrókur
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. desember, 2023
Heimildaskrá
- 1Kristmundur Bjarnason (1969). Saga Sauðárkróks. Fyrri hluti fram til ársins 1907, bls. 188. [Sauðárkróki:] Sauðárkrókskaupstaður; Kristmundur Bjarnason (1971). Saga Sauðárkróks. Síðari hluti I. 1907-1922, bls. 163. [Sauðárkróki:] Sauðárkrókskaupstaður; Unnar Ingvarsson (2009, 1. október). Tölvupóstur.
- 2Unnar Ingvarsson (2009, 1. október).
- 3Kristmundur Bjarnason (1969), bls. 188; Kristmundur Bjarnason (1971), bls. 163.
- 4Eyrún Sævarsdóttir og Sólborg Una Pálsdóttir (ódags.). Húsakönnun Sauðárkróks. Suðurgata, bls. 59. (
Deila færslu
Síðast uppfært 14. desember, 2023

