Víkurgata 5, Súðavík
Saga:
Árið 1929 byggðu þau Jóhannes Jónsson (1889-1982) og Margrét Kristjánsdóttir (1899-1934) íbúðarhús í Súðavík, sem þau nefndu Fögrubrekku. Það stóð skammt utan við og örlítið neðar en Blómsturvellir, sem nú eru skráðir við Nesveg 8 í Súðavík. Ekki var húsið stórt, en það stóð á háum kjallara. Engu að síður verður ekki betur séð að þar hafi 12 verið skráðir til heimilis árið 1930 í þremur fjölskyldum.1Þjóðskjalasafn Íslands. Sóknarmannatöl. Norður-Ísafjarðarprófastsdæmi. Ögurþing. Sótt 7. ágúst 2025 af https://salnaregistur.manntal.is/; Eiríkur P. Jörundsson (2016). Þar sem land og haf haldast í hendur. Súðavíkurhreppur að fornu og nýju, bls. 191. Útg.: Súðavíkurhreppur; Aðalskipulag Súðavíkurhrepps 2018-2030 (2018, 26. nóvember). Drög í vinnslu, bls. 70.
Eftir hið mannskæða snjóflóð sem féll á Súðavík 16. janúar 1995 og grandaði 14 manns var ákveðið að flytja hús sem stóðu á svæði sem metið var snjóflóðahættusvæði sunnar í fjörðinn á land Eyrardals, þar sem skipulögð var framtíðarbyggð þorpsins. Fagrabrekka var flutt að Víkurgötu 5 í Súðavík, þar sem það stendur enn ásamt fjórum öðrum gömlum húsum sem standa öll hlið við hlið.2Svanbjörg Helga Haraldsdóttir (2005, maí). Byggingarár húsa í Súðavík, bls. 12. Reykjavík: Veðurstofa Íslands.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 2. september, 2025
Heimildaskrá
- 1Þjóðskjalasafn Íslands. Sóknarmannatöl. Norður-Ísafjarðarprófastsdæmi. Ögurþing. Sótt 7. ágúst 2025 af https://salnaregistur.manntal.is/; Eiríkur P. Jörundsson (2016). Þar sem land og haf haldast í hendur. Súðavíkurhreppur að fornu og nýju, bls. 191. Útg.: Súðavíkurhreppur; Aðalskipulag Súðavíkurhrepps 2018-2030 (2018, 26. nóvember). Drög í vinnslu, bls. 70.
- 2Svanbjörg Helga Haraldsdóttir (2005, maí). Byggingarár húsa í Súðavík, bls. 12. Reykjavík: Veðurstofa Íslands.
Deila færslu
Síðast uppfært 2. september, 2025