Víkurgata 11, Súðavík
Aðalgata 40, Súðavík
1996 að Víkurgötu 11, Súðavík
Saga:
Í bók sinni Þar sem land og haf haldast í hendur segir Eiríkur P. Jörundsson um húsið sem nú stendur við Víkurgötu 11 í Súðavík.1Hulda Gunnaarsdóttir, skrifstofustjóri hjá Súðavíkurhrepp (2025, 6. ágúst). Tölvupóstur.
Árið 1932 lauk Kristóbert Kristóbertsson [1894-1983] við að reisa íbúðarhús við hliðina á lóðinni þar sem Kaupfélagið lét byggja verslunarhús sitt árið 1941. Hann fékk húsið sent í flekaeiningum frá Noregi. Guðmundur Þorleifsson reisti húsið fyrir þau Kristóbert og eiginkonu hans, Jónínu Magnúsdóttur [1893-1981]. Byggingin var löngum eitt snyrtilegasta hús þorpsins með gluggaskreytingum og snotrum garði. Húsið stendur ennþá, en var flutt inn í nýja þorpið í Eyrardal ásamt nokkrum öðrum.2Eiríkur P. Jörundsson (2016). Þar sem land og haf haldast í hendur. Súðavíkurhreppur að fornu og nýju, bls. 182. Útg.: Súðavíkurhreppur.
Þau Kristóbert og Jónína bjuggu í húsinu til ársins 1977 þegar heilsan fór að gefa sig og þau ákváðu að flytja á Elliheimilið á Ísafirði.
Kristóbert stundaði … landvinnu á vetrum en hætti sjómennsku vor og sumar þegar Kaupfélag Ísfirðinga hóf rekstur frystihúss á Langeyri í byrjun árs 1944. Fyrst í stað var hann verkstjóri, en síðan annaðist hann þar vélgæslu uns K.Í. hætti rekstrinum undir lok sjötta áratugarins. Síðustu árin vann hann hjá Frosta hf. við fiskvinnslu, en hætti störfum um sjötugt vegna heilsubrests. Kristóbert var afar handlaginn og samviskusamur. Og sem hreppsnefndarmaður reyndist hann sannsýnn og tillögugóður. Hann var einstaklega reikningsglöggur og um fróðleiksfýsn þessa skynsemdarmanns má t.d. nefna að hann aflaði sér undirstöðuþekkingar í bókfærslu í Bréfaskólanum.
Jónína og Kristóbert gengu til liðs við sósíalista og höfðu mikinn áhuga á þjóðfélagsmálum, voru eindregnir hernámsandstæðingar. Kristóbert var um árabil umboðsmaður Þjóðviljans í Súðavík …3Hjalti Jóhannsson (1984, 16. mars). Í minningu hjónanna: Jónínu Magnúsdóttur og Kristóberts Kristóbertssonar. Þjóðviljinn 49. árg., 64. tbl., bls. 8 og 17.

Víkurgata 11, Súðavík, árið 2020. Ljósm.: Fasteignasala Vestfjarða. Sótt 7. ágúst 2025 af https://fastinn.is/soluskra/923020#images.
Það voru hjónin Garðar Sigurgeirsson (1922-2002) og Ragnheiður Gísladóttir (1923-2020) sem keyptu Kristóbertshús árið 1977 og kallaðist húsið eftir það Garðarshús. Þau höfðu áður búið í Grímsbúð (sjá hér: Dalakofinn, Minni-Hattardal, Súðavíkurhreppi – Húsaflutningar). Hann var sjómaður og verkamaður í Súðavík og starfaði sem fiskmatsmaður í tvo áratugi.
Garðarshús slapp naumlega við mannskæða snjóflóðið í janúarmánuði 1995 en það var fyrsta húsið sem flutt var í nýju byggðina í Súðavík og er nú Víkurgata 11. Þar bjuggu þau hjón meðan heilsa leyfði.4Minning: Garðar Sigurgeirsson (2002, 2. ágúst). Morgunblaðið, 90. árg., 179. tbl., bls. 33; Minning: Ragnheiður Júlía Gísladóttir (2020, 20. júní). Morgunblaðið, 108., árg., 144. tbl., bls. 31.
Þegar Víkurgata 11 var auglýst til sölu árið 2020 var húsaskipan lýst þannig:
Efri hæð:
Aðalinngangur á efri hæð, gangur með dúk á gólfi.
Rúmgóð stofa og borðstofa með parketi á gólfi.
Svefnherbergi með parketi, ágætur fataskápur.
Eldhús með hvítri innréttingu, eldavél, parket á gólfi.
Baðherbergi með sturtuklefa, dúkur á gólfi, hleri upp í risloft þar.
Neðri hæð:
Sérinngangur, gangur með dúk á gólfi.
Svefnherbergi með dúk á gólfi.
Annað rúmgott svefnherbergi með dúk á gólfi.
Rúmgóð geymsla með skápum og hillum, stigi þar upp á efri hæð.
Stórt þvottahús, kyndiklefi, vaskur og salerni þar.
Köld geymsla undir útitröppum.
Hellulagt bílaplan, gróinn garður.5Fasteignasala Vestfjarða (2020, 20. maí).Víkurgata 11, Súðavík. Sótt 7. ágúst 2025 af https://fastinn.is/soluskra/923020#images.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 13. mars, 2026
Heimildaskrá
- 1Hulda Gunnaarsdóttir, skrifstofustjóri hjá Súðavíkurhrepp (2025, 6. ágúst). Tölvupóstur.
- 2Eiríkur P. Jörundsson (2016). Þar sem land og haf haldast í hendur. Súðavíkurhreppur að fornu og nýju, bls. 182. Útg.: Súðavíkurhreppur.
- 3Hjalti Jóhannsson (1984, 16. mars). Í minningu hjónanna: Jónínu Magnúsdóttur og Kristóberts Kristóbertssonar. Þjóðviljinn 49. árg., 64. tbl., bls. 8 og 17.
- 4Minning: Garðar Sigurgeirsson (2002, 2. ágúst). Morgunblaðið, 90. árg., 179. tbl., bls. 33; Minning: Ragnheiður Júlía Gísladóttir (2020, 20. júní). Morgunblaðið, 108., árg., 144. tbl., bls. 31.
- 5Fasteignasala Vestfjarða (2020, 20. maí).Víkurgata 11, Súðavík. Sótt 7. ágúst 2025 af https://fastinn.is/soluskra/923020#images.
Deila færslu
Síðast uppfært 13. mars, 2026