Mynd 1: Lengst til hægri á myndinni er Víkurbraut 11, Vík í Mýrdal, suðurhlið. Hluti myndar. Ljósm.: Ólafur Jónsson. Sarpur. Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. ÓJ-205. Sótt 27. júlí 2024 af https://www.sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=640774.
Mynd 1: Lengst til hægri á myndinni er Víkurbraut 11, Vík í Mýrdal, suðurhlið. Hluti myndar. Ljósm.: Ólafur Jónsson. Sarpur. Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. ÓJ-205. Sótt 27. júlí 2024 af https://www.sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=640774.

Víkurbraut 11, Vík í Mýrdal

Heiti: Mið-Hvoll - Heiði
Byggingarár: <1911
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Eyjólfur Guðmundsson ?
Aðrir eigendur:
1911: Guðmundur Þorbjarnarson
1911: Kaupfélag Skaftfellinga
Upphafleg staðsetning: Mið-Hvoll, Mýrdal
Flutt: 1911 að Víkurbraut 11, Vík í Mýrdal
Hvernig flutt: Tekið niður
Víkurbraut 11 1

Mynd 2: Víkurbraut 11 vinstra megin við Víkurbraut 11a, Vík í Mýrdal. Sarpur. Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. SÍS-4464. Sótt 27. júlí 2024 af https://www.sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=748987&Paging=false.

Víkurbraut 11 3

Mynd 3: Víkurbraut 11 er lægra húsið nær okkur á myndinni, í júní 2023. Ljósm.: Ja.is.

Saga:

Árið 1909 reisti Kaupfélag Skaftfellinga portbyggt verslunarhús (sölubúð) úr timbri, sem enn stendur á lóðinni Víkurbraut 11a, Vík í Mýrdal.1Kjartan Ólafsson (1987). Verslunarsaga Vestur-Skaftfellinga. Hundrað ára verslun í Vík í Mýrdal. Annað bindi, bls. 41. Vík: Vestur-Skaftafellssýsla. Það hús er þó ekki til umfjöllunar hér, heldur hús, sem reist var við austurenda sölubúðar Kaupfélagsins árið 1911. Það hús stendur einnig enn og er skráð sem Víkurbraut 11. Um það hús segir Kjartan Ólafsson:

Sumarið 1911 festi Kaupfélag Skaftfellinga kaup á … húsi sem formaður félagsins, Guðmundur Þorbjarnarson [1863-1949], hafði þá látið reisa við austurenda sölubúðar félagsins. Hús þetta hafði verið íbúðarhús á Mið-Hvoli í Mýrdal hjá Eyjólfi Guðmundssyni [1870-1954] sem þar bjó 1903-1911 en komst í eigu Guðmundar er Eyjólfur keypti af honum Suður-Hvol (sem þá var nefndur Ysti-Hvoll) í janúar 1911. Guðmundur flutti húsið til Víkur vorið 1911 og reisti það á ný sem geymsluhús austan við kaupfélagsbúðina. Að svo búnu seldi hann félaginu húsið fyrir 1.500,00 krónur á Jónsmessu þá um sumarið … Í kaupsamningi er tekið fram að húsið sé 9×9 álnir, portbyggt með áföstum skúr en stærð hans sé 9×5 álnir.2Kjartan Ólafsson (1987), bls. 41.

Hvorki er vitað hvort Eyjólfur Guðmundsson frá Hvoli hafi byggt húsið né hvenær það var gert. En Eyjólfur var mikill héraðshöfðingi og lengi hreppstjóri og lét sér ekkert óviðkomandi í Mýrdalum, hvort sem það snéri að mennta-, félags-, fjár-, samgöngu-, ræktunar- eða kirkjumálum. Auk þess skrifaði hann fjölda bóka, æviminningar, þjóðlegan fróðleik og skáldsögur.3Stefán Hannesson (1954, 1. desember). Eyjólfur Guðmundsson á Hvoli. Tímarit Máls og menningar, 15. árg., 3. tbl., bls. 232-235.

Þegar gömul mynd af húsinu (mynd 1 hér að ofan) er borin saman við mynd af húsinu í dag, verður ekki betur séð en risið á húsinu hafi verið lækkað frá upphaflegri hæð.

Það vekur líka athygli að húsin sunnan Víkurbrautar snúa ekki framhlið að götunni. Líklega hefur vegið þyngra að láta framhliðina snúa móti suðri, sól og hafi.4Gata ehf. (ódags.). Húsakönnun Mýrdalshrepps. Sótt 27. júlí 2024 af https://husaskraning.minjastofnun.is/Husakonnun_207.pdf. Þegar húsakönnun var gerð í vesturhluta Víkur árið 2019 voru bæði húsin, þ.e. bæði Víkurbraut 11 og 11a í eigu sama aðila og nefndist húsið Heiði.5Kristín Una Sigurðardóttir (2019). Vesturhluti Víkur í Mýrdal. Húsakönnun. Sótt 27. júlí 2024 af https://husaskraning.minjastofnun.is/Husakonnun_202.pdf.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 27. júlí, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 27. júlí, 2024