Húsið fyrir miðri mynd er talið vera Vík á Selströnd. Ljósmynd í eigu Björns H. Björnssonar.
Húsið fyrir miðri mynd er talið vera Vík á Selströnd. Ljósmynd í eigu Björns H. Björnssonar.

Vík, í landi Hafnarhólms, Selströnd

Heiti: Vík
Byggingarár: < 1942
Brann: 1985
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Jósteinn eða Ingimundur Guðmundssynir ?
Aðrir eigendur:
1942: Loftur Torfason og Hildur Gestsdóttir
Upphafleg staðsetning: Hveravík, Selströnd við Steingrímsfjörð
Flutt: 1942 að Vík, í landi Hafnarhólms á Selströnd
Hvernig flutt: Fleytt á tunnum og dregið á bát

Saga:

Hjónin Hildur Gestsdóttir (1896-1984) og Loftur Torfason (1892-1965) bjuggu allan sinn búskap í Vík, sem var í landi Hafnarhólms á Selströnd í Steingrímsfirði. Fyrst byggðu þau þar torfbæ árið 1917 en þegar þau keyptu hálfa Hveravíkina af Jósteini Guðmundssyni (1911-1986) árið 1942 fleytti Loftur húsi sem var í Hveravík á tunnum út í Vík og setti niður þar.1Björn H. Björnsson (2012, 1. júní). Um húsagang við Húnaflóa, bls. 34. Strandapósturinn, 44. árg., bls. 31-36.

Sigurður Guðmonsson átti að draga það á Gróttu, en þá gerði skyndilega norðan áhlaup svo ekki tommaði hjá Sigga. Var nú illt í efni, allt stefndi í að Loftur missti hús sitt yfir til Tungusveitunga, en þá kom Halldór Magnússon á Rut og kláraði það. Árið 1985 er húsið brennt af erfingjum Lofts og Hildar, en þeir iðruðust þess mjög síðar. Í dag stendur þarna laglegt sumarhús einhverra barna þeirra hjóna, en gamli torfbærinn er með öllu horfinn.2Björn H. Björnsson (2012, 1. júní), bls. 34.

Höfundi hefur ekki tekist að finna upplýsingar um hver það var sem byggði húsið upphaflega í Hveravík, en væntanlega hefur það verið annað hvort Jósteinn Guðmundsson eða Ingimundur (1895-1983) bróðir hans. Jósteinn keypti Hveravík af Ingimundi árið 1939, sem þá flutti til Hólmavíkur.3Guðmundur Guðni Guðmundsson (1986, 19. febrúar). Minning: Jósteinn Guðmundsson frá Byrgisvík. Morgunblaðið, 72. árg., 41. tbl., bls. 45.

 

Leitarorð: Strandir – Steingrímsfjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 1. desember, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 1. desember, 2025