Vesturvegur 17, Seyðisfirði
Saga:
Í húsavirðingu, sem gerð var í Seyðisfirði, árið 1894 er getið húss sem stóð á þeim stað sem Elverhøj, stendur nú (2025), þ.e. Vesturgötu 3, Seyðisfirði. Í virðingunni segir m.a. um húsið:
9 og ½ alin á lengd og 6 álnir á breidd, 6 og ½ alin á hæð. Byggt úr bindingsverki, klætt utan með borðum nema á aðra hliðina er grjótveggur. Niðri er 1 stofa og eldhús, loptið er alþiljað en ekkert skilrúm.1Þóra B. Guðmundsdóttir (1995). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar, bls. 390. [Seyðisfirði:] Safnastofnun Austurlands og Seyðisfjarðarkaupstaður.
Húsið byggði Teitur Andrésson (1856-1905) og var það ýmist kallað Teitshús eða Árbær. Árið 1902 keypti A. E. Berg sútari húsið og hefur hann væntanlega búið í því þar til hann reisti sér hið glæsilega íbúðarhús Bergshús eða Elverhøj árið 1906 á lóðinni. Þá eignaðist Guttormur Einarsson litla húsið og það hefur líklega verið hann eða Berg sútari sem stóð fyrir flutningi hússins á lóð númer 17 við sömu götu.2Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 390. Í húsavirðingu frá árinu 1906 kemur fram:
„Teitshús“ áður eign A. E. Berg sútara nú eign Guttorms Einarssonar á Fjarðaröldu í Seyðisfjarðarkaupstað. Það hefur verið flutt burt af þeim, sem það áður stóð á, á annan stað nokkuð frá. Áður var það nokkuð niðurgrafið og náði þá ekki klæðningin nema nokkuð niður eftir veggjunum. Nú stendur það á steingrunni með kjallara. Önnur hliðin hefur verið klædd með nýjum plægðum borðum; hin hliðin og báðir gaflar klætt að neðan, einnig hafa verið sett ný undirlög. Við aðra hlið hússins er skúr úr timbri.3Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 3411.
Í brunabótamati frá 1916 er húsinu svo lýst:
Íbúðarhús einlyft portbyggt. Innan þiljað panel og skilrúmsborðum, málað og veggfóðrað.
Niðri: Stofa, eldhús og gangur. Uppi: Herbergi og gangur. Útveggir pappa-varðir. Þak járnvarið. Í húsinu er 1 ofn og 1 eldavél.4Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 411.
Þó ekki sé húsið stórt hefur það borið mörg nöfn, Árbær eða Teitshús var það kallað á sínum upprunastað, þegar Guttormur eignaðist það fékk það nafn hans og kallaðist Guttakofi og um skeið var það nefnt Bakkakot.
Húsið var rifið um 1965.5Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 410-411.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 25. júní, 2025
Heimildaskrá
- 1Þóra B. Guðmundsdóttir (1995). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar, bls. 390. [Seyðisfirði:] Safnastofnun Austurlands og Seyðisfjarðarkaupstaður.
- 2Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 390.
- 3Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 3411.
- 4Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 411.
- 5Þóra B. Guðmundsdóttir (1995), bls. 410-411.
Deila færslu
Síðast uppfært 25. júní, 2025