Vesturgata 7, Keflavík
Vesturgata 7, líklega stuttu áður en húsið var rifið. Marta Valgerður Jónsdóttir (1989). Keflavík í byrjun aldar. Minningar frá Keflavík. Þrjú bindi. bls. 649. Niðjatöl tóku saman Guðleifur Sigurjónsson og Þorsteinn Jónsson, sem einnig ritstýrði. Reykjavík: Líf og saga í samvinnu við Sögunefnd Keflavíkur.
Saga:
Skotfélag, Ryffel-Skytte-Foreningen for Keblevig og Omegn, var stofnað í Keflavík árið 1869, aðallega af heldri mönnum, sem flestir tengdust verslunarrekstri. Fljótlega var farið að huga að byggingu félagshúss og var ákvörðun um húsbyggingu tekin á félagsfundi 19. febrúar 1871. Húsið skyldi reist fyrir fé sem félagsmenn lánuðu félaginu.1Bjarni Guðmarsson (1992). Saga Keflavíkur 1766-1890, bls. 257-261. [Keflavík:] Keflavíkurbær. „Skothúsið, eins og það var kallað, var reist nyrst í kauptúninu, við norðurmörk Keflavíkurlandsins, skammt utan við svonefnt Duustún. Var fyrsti fundurinn haldinn þar hinn 2. desember 1872.“2Bjarni Guðmarsson (1992), bls. 261.Duustún var á svæðinu vestan núverandi Duusgötu, náði lengra í norður, vestur og suður en svokallað Keflavíkurtún gerir í dag (2023).
Margskonar starfsemi fór fram í húsinu, því um nokkurt skeið var Skothúsið eina samkomuhús Keflvíkinga.
Ekki er vitað hversu lengi Skotfélagið starfaði, en árið 1890 var Skothúsið selt Jóni Ólafssyni útvegsbónda, sem flutti það á lóð sína við Vesturgötu 7 og breytti því í íbúðarhús. Ljósmyndir sýna að útliti hússins var breytt talsvert, m.a. gluggsetningu og ris var sett á húsið.
Húsið var rifið árið 1906 þegar hjónin Jón Ólafsson og Jóhanna Elín Erlendsdóttir byggðu nýtt hús á lóðinni, sem enn stendur.3Kanon arkitektar ehf. (2012, febrúar). Reykjanesbær. Byggða- og húsakönnun, áfangaskýrsla, febrúar 2012, bls. 59. Sótt 2. nóvember 2023 af https://husaskraning.minjastofnun.is/Husakonnun_132.pdf; Bjarni Guðmarsson (1992), bls. 261-262.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 3. mars, 2025
Heimildaskrá
- 1Bjarni Guðmarsson (1992). Saga Keflavíkur 1766-1890, bls. 257-261. [Keflavík:] Keflavíkurbær.
- 2Bjarni Guðmarsson (1992), bls. 261.
- 3Kanon arkitektar ehf. (2012, febrúar). Reykjanesbær. Byggða- og húsakönnun, áfangaskýrsla, febrúar 2012, bls. 59. Sótt 2. nóvember 2023 af https://husaskraning.minjastofnun.is/Husakonnun_132.pdf; Bjarni Guðmarsson (1992), bls. 261-262.
Deila færslu
Síðast uppfært 3. mars, 2025
