Ráðagerði, Vesturgötu 28, 1930-1949. Ljósmyndasafn Akraness. Mynd nr. 51307. Sótt 9. júní 2023 af http://ljosmyndasafn.akranes.is/.
Ráðagerði, Vesturgötu 28, 1930-1949. Ljósmyndasafn Akraness. Mynd nr. 51307. Sótt 9. júní 2023 af http://ljosmyndasafn.akranes.is/.

Vesturgata 24b, Akranesi

Heiti: Ráðagerði
Byggingarár: 1908
Fyrsti eigandi: Árni Bergþórsson og Sigríður Guðnadóttir
Upphafleg staðsetning: Vesturgata 28, Akranesi
Flutt: 1996 að Vesturgötu 24b, Akranesi
Hvernig flutt: Í heilu lagi
Vesturgata 24b 2
Vesturgata 24b 3.jpg

Ráðagerði, Vesturgötu 24b, 2008. Ljósm.: Guðmundur L. Hafsteinsson. Húsaskráning á Akranesi. Gagnasafn Minjastofnunar Íslands.

Saga:

Árið 1903 keyptu hjónin Árni Bergþórsson fiskmatsmaður (1874-1947) og Sigríður Guðnadóttir (1868- 1962) húsið Ráðagerði á Akranesi. Upphaflega var það hús reist sem smiðja, en síðar var því breytt í íbúðarhús. Nafnið er sagt hafa orðið til þegar eiginkona fyrri eiganda hafi ekki litist á þær framkvæmdir og talið eintómar ráðagerðir og því þótti tilvalið að kalla húsið Ráðagerði.

Árið 1908 byggðu þau Árni og Sigríður nýtt hús á lóðinni og bjuggu þar æ síðan. Húsið var hæð og portbyggt ris á háum kjallara með háum tröppum að inngangsskúr á bakhlið.

Árni stundaði fyrst sjó en síðar starfaði hann í mörg ár sem fiskmatsmaður. Hann var nokkur ár í hreppsnefnd og tók mikinn þátt í félagsstarfi. Þau hjón eignuðust þrjú börn og bjó Guðrún (1905-1974) dóttir þeirra með Sigríði í Ráðagerði eftir að Árni lést árið 1947.

Húsið stóð við Vesturgötu 28, en árið 1996 var það flutt á baklóð við Vesturgötu 24 og fékk númerið 24b. Um leið og það var sett á nýjan grunn var húsið stækkað og nýr inngangur gerður.1Ólafur B. Björnsson (1952, 1. apríl). Hversu Akranes byggðist. 4. kafli. – 1870-1900. – Byggingar batna. Akranes, 11. árg., 4.-6. tbl., bls. 58-61; Gísli S. Sigurðsson (2003). Valsað um Vesturgötu. Árbók Akurnesinga, 3. árg., bls. 193-208; Gagnasafn Minjastofnunar Íslands.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 18. janúar, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 18. janúar, 2024