Vesturgata 18-20, Hafnarfirði
Saga:
Guðmundur Halldórsson (1839-1924) járnsmiður flutti til Hafnarfjarðar úr Vatnsfirði árið 1868. Hann var fyrst í svokölluðu Lúðvíkshúsi á Mölinni.1Magnús Jónsson (1970). Bær í byrjun aldar. Hafnarfjörður, bls. 112. Önnur útgáfa. [Hafnarfjörður:] Höfundur. „Mölin (->Hamarskotsmöl) var svæðið sunnan Hamarskotslækjar kallað á svipuðum slóðum og Strandgatan er nú.“2Hafnarfjörður – klettar, klifur o.fl. (ódags.). Sótt 13. janúar 2026 af https://ferlir.is/hafnarfjordur-klettar-og-klifur/.
Árið 1883 kvæntist Guðmundur Valgerði Gísladóttur (1842-1908). Um það leyti sem þau giftust reif hann hús sitt og byggði það upp nálægt þeim stað sem Vélsmiðjan Klettur var byggð um 1939 á horni Vesturgötu og Vesturbrautar, á þeim slóðum sem húsin Vesturgata 18 og 20 standa nú (2026). Líklega var vélsmiðjan rifin um 2005.
Hús þeirra Guðmundar og Valgerðar þótti „fallegt, vel málað með kvisti og túnbletti í kring“. Eftir að Valgerður dó árið 1908 flutti Guðmundur til skyldmenna sinna á Vestfjörðum, en sex árum áður höfðu hjónin Runólfur Þórðarson og Helga Salómonsdóttir flutt í húsið og virðast því tvær fjölskyldur hafa búið í því á tímabili. „Um 1925 var húsið svo aftur rifið og efnið enn notað til byggingar og nú ekki langt undan, þ.e. í hús Gríms Kr. Andréssonar Vesturbraut 1.“3Magnús Jónsson (1970), bls. 112.
Í Fasteignaskrá Íslands kemur fram að húsið að Vesturbraut 1 sé byggt árið 1910 og því stangast heimildir hér á, nema Grímur hafi notað viðina úr Lúðvíkshúsi í viðbyggingu við hús sitt.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 13. janúar, 2026
Heimildaskrá
- 1Magnús Jónsson (1970). Bær í byrjun aldar. Hafnarfjörður, bls. 112. Önnur útgáfa. [Hafnarfjörður:] Höfundur.
- 2Hafnarfjörður – klettar, klifur o.fl. (ódags.). Sótt 13. janúar 2026 af https://ferlir.is/hafnarfjordur-klettar-og-klifur/.
- 3Magnús Jónsson (1970), bls. 112.
Deila færslu
Síðast uppfært 13. janúar, 2026