Selásdalur árið 1981. Borgarsögusafn. Ljósmyndasafn, mynd nr. 354 RVK YFR 067 3-2. Ljósmyndari óþekktur.
Selásdalur árið 1981. Borgarsögusafn. Ljósmyndasafn, mynd nr. 354 RVK YFR 067 3-2. Ljósmyndari óþekktur.

Vesturfold 44, Reykjavík

Heiti: Selásdalur
Byggingarár: 1933
Upphafleg notkun: Sumarbústaður / íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Jens Eyjólfsson og Valgerður Jónsdóttir
Aðrir eigendur:
1959 ?: Gunnar B. Jensson
Upphafleg staðsetning: Vesturás 2-4, Árbæ, Reykjavík
Flutt: 1994 að Vesturfold 44, Grafarvogi, Reykjavík

Saga:

Árið 1925 keypti Jens Eyjólfsson byggingameistari (1879-1959) stóra spildu í Selási úr landi Grafarholts. Spildan lá að austurmörkum Árbæjarlands, sunnan og vestan gamla Suðurlandsvegar. Árið 1929 var landsvæðið lagt undir lögsagnarumdæmi Reykjavíkur [en land Grafarholt hafði tilheyrt Mosfellssveit], en hélst í eigu Jens. Árið 1933 byggði hann þar húsið Selásdal sem stóð þar sem í dag eru raðhúsin númer 2-4 við Vesturás. Jens var byggingameistari við byggingu Kristskirkju í Landakoti sem reist var á árunum 1927-1929 og áður en súlurnar í kirkjunni voru reistar gerði Jens staka tilraunasúlu úr steypu á landi sínu í Selásnum. Súlan stóð efst á Selásnum í marga áratugi en var brotin niður þegar byggð tók að rísa á holtinu. Nálægt tilraunasúlunni kom Jens fyrir einni af þremur kirkjuklukkum sem hann hafði gefið Kristskirkju, St. Jósefsklukku, en sú hafði reynst gölluð og var því ekki sett upp í kirkjunni. Á sjötta áratugnum var klukkan flutt að húsi Jens, Selásdal, en fylgdi fjölskyldunni seinna áfram við flutning í Skógarás og mun vera þar enn í húsagarði. Einnig hafði Jens hug á að reisa kirkju helgaða sjómönnum á landi sínu í Selási, en ekki varð af þeim áformum. Eftir lát Jens eignaðist Gunnar [1929-1991] sonur hans húsið Selásdal og gerði það upp og endurnýjaði.
Fljótlega eftir að Jens eignaðist Selásland fór hann að selja úr því sumarbústaðalönd í Selásnum vestanverðum sem kölluð voru Selás eða Selásblettir. Þar reis nokkur fjöldi bústaða á fjórða og fimmta áratugnum, líklega í kringum þrjátíu hús, sem mörg urðu svo að heilsársbústöðum. …
Á sjöunda áratugnum hófst vinna við skipulag íbúðarbyggðar í Árbæ og Selási, en þar sem Seláslandið var í einkaeigu var í fyrstu einungis gert þar svokallað leiðsagnarskipulag. Samráð var haft við Félag landeigenda í Selási, sem stofnað var árið 1967 til þess að vinna að og semja við Reykjavíkurborg um að svæðið yrði skipulagt sem byggingarland. Um 1970 stóð hin óskipulagða byggð enn í Selásnum og bjuggu þar þá um 150 íbúar í um þrjátíu húsum. Meginuppbygging Seláshverfis átti sér síðan stað á níunda áratugnum og voru nokkur þeirra húsa sem byggð höfðu verið á Selásblettum innlimuð í hið nýja hverfi en einungis örfá þeirra munu nú standa eftir (þ.á.m. húsið Deildarás 2, b.1944). Hús Jens Eyjólfssonar og afkomenda hans stóð í Selásnum til um 1990 en var þá flutt að Vesturfold 44 í Grafarvogi.1Drífa Kristín Þrastardóttir Anna Lísa Guðmundsdóttir María Gísladóttir (2017). Byggðakönnun. Borgarhluti 7 – Árbær, bls. 33-35. Reykjavík: Borgarsögusafn Reykjavíkur. Skýrsla nr. 183.

Vesturfold 44 í Reykjavík í ágúst 2024. Ljósm.: https://www.google.com/maps.

Húsið stendur enn við Vesturfold. Þó það sé töluvert  breytt ber það þó enn svipmót upprunalega hússins.

Jens Eyjólfsson byggingameistari var bæði frábær húsateiknari og mikill athafnamaður. Sem dæmi um verk hans má nefna að hann var yfirsmiður hins glæsilega húss Nathans og Olsen í Austurstræti 18, sem reist var á árunum 1916 til 1918. Einnig stjórnaði hann byggingaframkvæmdum við Kristskirkju í Landakoti, eins og komið hefur fram. Fyrsta verk hans sem sjálfstæðs byggingameistara í Reykjavík var að teikna og byggja timburverksmiðjuna Völund. Þá teiknaði hann og byggði hús Egils Jakobssonar í Austurstræti. Verkefnalisti Jens er mikið lengri og nánar má lesa um hann í grein Guðmundar Egilssonar í Lesbók Morgunblaðsins 3. október 1976. Að lokum skal þó nefna hið glæsilega íbúðarhús, Grettisgötu 11, sem Jens reisti sér um það leyti sem hann festi ráð sitt árið 1908 og gekk að eiga Valgerði Jónsdóttur (1887-1969). Þau eignuðust tvö börn, son og dóttur, sem lést á barnsaldri, en síðar eignaðist Jens soninn Gunnar B. Jensson húsasmíðameistara og áður er minnst á.2Guðmundur Egilsson (1976, 3. október). Verk hans lofa meistarann. Lesbók Morgunblaðsins, 38. tbl., bls. 12-14.

Þess má geta að húsið sem nú stendur við Mosgerði 17 var einnig flutt úr Selásnum. Lesa má um það hús hér.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 2. janúar, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 2. janúar, 2025