Vestri-Kirkjubær, Rangárvöllum, Rangárþingi ytra
Saga:
Jörðin Skúmsstaðir í Rangárþingi eystra liggur að sjó fram, utarlega í Vestur-Landeyjum og á sér langa sögu. Vorið 1834 tóku hjónin Sigurður Magnússon (1810-1905) og Þórunn Þórðardóttir Thorlacius (1810-1866) hálfa jörðina á leigu og hófu þar búskap. Níu árum síðar kaupa þau þennan helming jarðarinnar og árið vorið 1848 jörðina í heild sinni. Búnaðist þeim vel og laust eftir miðja öldina húsaði Sigurður að nýju bæ sinn þegar hann reisti stóran og óvenjulegan torfbæ.1Jón Skagan (1960). Sú eik er lengst og styrkust stóð. Ævisaga Sigurðar Magnússonar frá Skúmsstöðum, bls. 19-33. Reykjavík: Bláfellsútgáfan.
Sigurður var hreppstjóri, dannebrogsmaður og mikill sveitarhöfðingi. Hann var lengi talinn einhver mesti búhöldur á öllu Suðurlandi og rausnarmaður um allt.2Myndir af bændum (1892, 1. maí). Sunnanfari, 11. tbl., bls. 102.
Árið 1866 lést Þórunn eiginkona Þórðar. Tveimur árum síðar gekk að eiga Ragnhildi Magnúsdóttur (1841-1905) prestsdóttur frá Eyvindarhólum. Þó aldursmunurinn væri mikill urðu þau samhent um alla stjórnsemi, rausn og skörungsskap. Hún réð inni, hann úti og út á við.3Jón Skagan (1960), bls. 51-54.
Árið 1896 reisti Sigurður bóndi enn bæ sinn að nýju. Var sú bygging timburhús mikið, sem snéri stöfnum austur og vestur. Gengið var inn um suðurhlið. Þar niðri var austast kvennastofa, þá hjónaherbergi, eldhús og búr. Undir norðurhlið var karlastofa, gangur og vestast eins konar kaffi- eða matstofa. Inn af útidyrunum lá snúinn stigi upp á loftið, því að húsið var tvílyft. Þar uppi var borðstofa mikil að sunnanverðu og gestastofa vestur af henni. Gangur lá um loftið frá austri til vesturs. Norðan við hann voru svefnherbergi og geymslur. Af ganginum vestan verðum lá stigi niður í sérstaka forstofu, sem einkum var notuð fyrir gesti. Húsið var að sögn 12 x 14 álnir að ummáli og útveggir allir troðnir þurru torfi milli þilja. Var einangrun þess og annað notagildi eins og bezt varð á kosið.
Þannig var í stórum dráttum skipan þessa mikla og merkilega bæjarhúss á sínum tíma. Stóð það á Skúmsstöðum til vorsins 1906 eða 8 mánuði eftir lát Sigurðar bónda. Þá keypti það Grímur Thorarensen [1862-1936] óðalsbóndi að Kirkjubæ á Rangárvöllum. Flutti hann það heim til sín, reisti að nýju og naut þess lengi síðan.
Af framanskráðri lýsingu má ráða, að fáir bæir hér á landi hafi verið jafn vel húsaðir og Skúmsstaðir í tíð Sigurðar Magnússonar. Lágu fyrst og fremst til þess tvær höfuðástæður. Annars vegar efnaleg geta hans og [f[rábær höfðingslund. Hins vegar óvenju góð aðstaða um öflun á efni til húsagerðar. Þá aðstöðu gaf honum fjaran, sem lá fyrir landi hans og jörðinni fylgdi til allra afnota.4Jón Skagan (1960), bls. 33-34.
Að smíði hússins vann við annan mann Hjörleifur Jónsson (1865-1947), síðar bóndi og hreppstjóri að Skarðshlíð undir Eyjafjöllum. Þó mikill efniviður hafi verið dreginn að til húsbyggingarinnar áður en hún hófst fór samt svo að timbur skorti. Tók þá Ragnhildur húsfreyja til sinna ráða og hugðist fara á Eyrarbakka til timburkaupa. Á leið sinni féll Ragnhildur af baki og fékk mikla áverka og var um tíma talin í lífshættu. Lá hún lengi rúmföst og náði sér aldrei til fulls. Timbrið fékkst engu að síður og húsið komst upp um sumarið. Það varð ekki fyrir neinum spjöllum í jarðskjálftanum sem reið yfir Suðurland í ágúst 1896, en vera má að gamli torfbærinn hafi farið illa.
Um og eftir aldamótin 1900, þegar heilsa Sigurðar var farin að bresta, tók jökulvatnið úr Markarfljóti að leggjast í Þverá með miklum þunga. Þetta olli miklum búsifjum á Skúmsstöðum og mörgum öðrum jörðum í nágrenninu þegar jökulelgurinn færði í kaf, eðju og sand blómleg engi og haga á stórum svæðum. Lögðust þá margar jarðir í eyði.5Jón Skagan (1960), bls. 95-106. „Sumarið 1904 var þar svo komið, að allt hey varð að flytja á bátum í garð [á Skúmsstöðum] og sundleggja bæði hesta og kýr að og frá bænum. Hinn reisulegi bær stóð eins og eyja í ólgandi hafi. Örðugleikarnir við búreksturinn voru því meiri en svo, að til lengdar yrði undir risið.“6Jón Skagan (1960), bls. 106-107.
Eftir að Ragnhildur og Sigurður létust með tæplega mánaðar millibili haustið 1905 var sjálfhætt búskap á Skúmsstöðum. Eins og áður hefur komið fram keypti Grímur Thorarensen óðalsbóndi að Kirkjubæ á Rangárvöllum íbúðarhúsið frá 1896.
Stóð það autt og óhreyft um sumarið [1906], eftir að kaupin fóru fram. Um haustið vann að niðurrifi þess til flutnings Bjarni Jónsson (1885-1927) smiður frá Álfhólum við annan mann. Þótti það takast mjög vel, enda Bjarni orðlagður hagleiksmaður og húsið nýlegt og traust að viðum. Um veturinn var svo efniviðurinn fluttur á ísum að Kirkjubæ, húsið síðan reist að nýju og stendur þar að einhverju leyti enn í dag [þ.e. um 1960].
Vorið 1906 lögðust Skúmsstaðir í auðn til ársins 1918 þegar vatnið tók nokkuð að fjara af landi þeirra.7Jón Skagan (1960), bls. 116-117.
Hjónin Grímur Thorarensen og Jónína Guðrún Egilsdóttir (1868-1934) hófu búskap í Vestri-Kirkjubæ á Rangárvöllum árið 1891. Grímur var hreppstjóri í Rangárvallahreppi, átti sæti í hreppsnefnd og var oddviti Rangárvallahrepps 1895 til 1923.8Valgeir Sigurðsson (1982). Rangvellingabók. Saga jarðar og ábúðar í Rangárvallahreppi. Síðara bindi, bls. 494-503. Hellu: Rangárvallahreppur.
Grímur var mikill maður vexti og hinn höfðinglegasti, stórskorinn í andliti og svipmikill, stórbrotinn í lund og viljafastur. Hann var traustur og vinfastur, stjórnsamur og starfssamur, umbóta og athafnamaður í búnaði, en jafnframt gætinn og hélt fast við fornar dyggðir.9Valgeir Sigurðsson (1982), bls. 501.
Jónína var glæsileg kona að vallarsýn. Í meðallagi há, beinvaxin og vel limuð. Hún var kvenna vænst yfirlitum, ljóslituð og bláeygð. Ennið var hátt, hárið mikið og fagurgult. Hún var djarfleg og prúðmannleg í framkomu.
Það, sem einkum einkendi Jónínu í Kirkjubæ og má hið sama segja um marga ættingja hennar, sem jeg þekki, er andleg og líkamleg hreysti, sönghneigð og meðfædd takttilfinning, djúpur skilningur á tilfinningalífi annara manna, samfara fórnfýsi og þrá til þess að vera öðrum til geðs.10Gunnar Sigurðsson (1934, 19. nóvember). Jónína í Kirkjubæ. Morgunblaðið, 21. árg., 249. tbl., bls. 4.
Árið 1923 tók sonur þeirra hjóna, Bogi Thorarensen (1900-1978) við búskapnum í Vestri-Kirkjubæ ásamt eiginkonu hans, Steinunni Sigfúsdóttur Thorarensen (1899-1986). Síðustu ábúendur jarðarinnar voru þau Eggert Jónsson (1890-1951) og Elín Sigmundsdóttir (1890-1975). Þau hófu þar búskap árið 1948, en tveimur árum síðar fór jörðin í eyði en hún nytjuð frá Eystri-Kirkjubæ en Ríkissjóður eignaðist jörðina.11Valgeir Sigurðsson (1982), bls. 502-503; Sunnlenskar byggðir V. Rangárþing vestan Eystri-Rangár (1897). Ritnefnd: Oddgeir Guðjónsson, Jón Guðmundsson og Júlíus Jónsson, bls. 84. Búnaðarsamband Suðurlands.
Íbúðarhúsið var uppistandandi til ársins 1968 en þá var það brennt. Hér má sjá það sem sagt er um leifar bæjarins í fornleifaskráningu frá árinu 2008.12Ágústa Edwald, Sigríður Þorgeirsdóttir og Rúnar Leifsson (2008). Fornleifaskráning í Rangárþingi ytra. Áfangaskýrsla I, bls. 78. Ritstjóri: Ágústa Edwald. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands. Skýrsla nr. FS379-06191.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 27. október, 2026
Heimildaskrá
- 1Jón Skagan (1960). Sú eik er lengst og styrkust stóð. Ævisaga Sigurðar Magnússonar frá Skúmsstöðum, bls. 19-33. Reykjavík: Bláfellsútgáfan. ↩︎
- 2Myndir af bændum (1892, 1. maí). Sunnanfari, 11. tbl., bls. 102. ↩︎
- 3Jón Skagan (1960), bls. 51-54. ↩︎
- 4Jón Skagan (1960), bls. 33-34. ↩︎
- 5Jón Skagan (1960), bls. 95-106. ↩︎
- 6Jón Skagan (1960), bls. 106-107. ↩︎
- 7Jón Skagan (1960), bls. 116-117. ↩︎
- 8Valgeir Sigurðsson (1982). Rangvellingabók. Saga jarðar og ábúðar í Rangárvallahreppi. Síðara bindi, bls. 494-503. Hellu: Rangárvallahreppur. ↩︎
- 9Valgeir Sigurðsson (1982), bls. 501. ↩︎
- 10Gunnar Sigurðsson (1934, 19. nóvember). Jónína í Kirkjubæ. Morgunblaðið, 21. árg., 249. tbl., bls. 4. ↩︎
- 11Valgeir Sigurðsson (1982), bls. 502-503; Sunnlenskar byggðir V. Rangárþing vestan Eystri-Rangár (1897). Ritnefnd: Oddgeir Guðjónsson, Jón Guðmundsson og Júlíus Jónsson, bls. 84. Búnaðarsamband Suðurlands. ↩︎
- 12Ágústa Edwald, Sigríður Þorgeirsdóttir og Rúnar Leifsson (2008). Fornleifaskráning í Rangárþingi ytra. Áfangaskýrsla I, bls. 78. Ritstjóri: Ágústa Edwald. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands. Skýrsla nr. FS379-06191. ↩︎
Deila færslu
Síðast uppfært 27. október, 2026
