Tunga / Bíldsfell, Grafningi
Hamarsbraut 2 í Hafnarfirði þar sem það stendur í túnjaðri gamla bæjarstæðis Tungu í Grafningi. Heimild: Rúna K. Tetzschner og Ragnheiður Traustadóttir (2023). Bíldsfell I - Tunga. Fornleifaskráning vegna deiliskipulags, bls. 18. Reykjavík: Antikva ehf.
Hamarsbraut 2 í Hafnarfirði þar sem það stendur í túnjaðri gamla bæjarstæðis Tungu í Grafningi. Heimild: Rúna K. Tetzschner og Ragnheiður Traustadóttir (2023). Bíldsfell I - Tunga. Fornleifaskráning vegna deiliskipulags, bls. 19. Reykjavík: Antikva ehf.
Saga:
Árið 1904 byggðu hjónin Hrómundur Jósepsson (1878-1948) skipstjóri og Margrét Guðmundsdóttir (1877-1961), sem þá voru nýgift, sér hús á Hamrinum í Hafnarfirði. Hús þetta var í fyrstu kennt við Hrómund og kallað Hrómundarhús, en síðar var það skráð sem Vesturhamar 2, Hellubraut 3 og loks Hamarsbraut 2. Það stóð þar sem nú (2026) stendur húsið Hamarsbraut 4.
Hrómundur og hans fjölskylda fluttu til Reykjavíkur um 1910. Þá leigðu þau húsið til Janusar Jónssonar (1851-1922) fyrrverandi prests, sem eignaðist síðar húsið.1Rósa Karen Borgþórsdóttir, Byggðasafni Hafnarfjarðar (2024, 6. júní). Tölvupóstur; Árný Steindórsdóttir (2026, 3. júní). Munnleg heimild.
Þegar húsið var metið til brunabóta árið 1917 var séra Janus eigandi hússins. Í matinu kemur fram að húsið sé einlyft timburhús notað til íbúðar, með porti og risi. Grunnflötur þess var 44 fermetrar, hæðin 3,5 og 8 gluggar voru á húsinu. Húsið var klætt bárujárni. Á hæðinni voru 3 stofur, eldhús og anddyri. Tvær stofur voru veggfóðraðar, en annað er klætt með panel og málað. Risinu var skipt í tvö herbergi og anddyri, allt klætt panel sem er að hluta til málaður. Undir öllu húsinu var geymslukjallari hlaðinn úr steinlímdu grjóti. Ein eldavél og 3 ofnar voru í húsinu.
Við austurhlið hússins er tæplega 2,5 fermetra skúr með vatnshallaþaki, notaður til inngöngu í húsið. Skúrinn var klæddur máluðum panel að innan, en járni að utan.
Einnig var 16 fermetra geymsluskúr með vatnshallaþaki við suðvesturgafl hússins.2Brunabótafélag Íslands. Brunabótavirðings dags. 20. júní 1917. Úr gagnasafni Byggðasafns Hafnarfjarðar.
Séra Janus fékk lausn frá prestskap árið 1908 og flutti þá til Hafnarfjarðar og varð kennari við Flensborgarskólann. Eiginkona hans var Sigríður Halldórsdóttir Jónsson (1852-1940).3Mannalát (1922, 18. nóvember). Tíminn, 6. árg., 48. tbl., bls. 156.
Hjónin Sigrid (1901-1975) og Kristján Kristinsson (1897-1964) kaupmaður og skipstjóri í Hafnarfirði fluttu í hluta hússins árið 1938, en síðar eignuðust þau allt húsið. Um 1975 eignuðust dóttir þeirra Kristrún Birgitta (1934-2009) og eiginmaður hennar Steindór Olsen húsið. Þau byggðu nýjan inngönguskúr við það þar sem einnig var komið fyrir baðherbergi.
Þau fluttu úr húsinu um 10 árum síðar því þau höfðu byggt sér glæsilegt einbýlishús á næstu lóð. Þá keypti Hafnarfjarðarbær húsið af þeim. Hjónin Sigurður Jónsson (1926-1998) og Guðríður Hulda Guðmundsdóttir (1923-1991) eignuðust svo húsið og ákváðu að flytja það austur í Grafning til að nota sem sumarbústað, en Guðríður Hulda var frá Bíldsfelli í Grafningi. Var þá húsið híft í heilu lagi ásamt inngönguskúrnum niður á flutningabíl sem staðsettur var á Strandgötunni fyrir neðan Hamarinn. Til þess þurfti tvo krana því húsið var svo þungt.
Húsinu var komið fyrir á steinsteyptum grunni sem gerður var undir það í landi Bíldsfells í Grafningi, norðvestan í heimatúni gamla bæjarstæðisins í Tungu, sem nú er orðin hluti af Bíldsfelli. Ekki varð þó mikið meira úr framkvæmdum, því húsið hefur ekki fengið neitt viðhald síðan það var flutt.4Árný Steindórsdóttir (2026, 3. júní); Steindór Olsen (2026, 4. júní). Munnleg heimild; Rúna K. Tetzschner og Ragnheiður Traustadóttir (2023). Bíldsfell I – Tunga. Fornleifaskráning vegna deiliskipulags, bls. 18. Reykjavík: Antikva ehf.; Minning: Sigurður Jónsson (1998, 6. maí). Morgunblaðið, 86. árg., 100. tbl., bls. 41.
Leitarorð: Grafningur
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 4. júní, 2026
Heimildaskrá
- 1Rósa Karen Borgþórsdóttir, Byggðasafni Hafnarfjarðar (2024, 6. júní). Tölvupóstur; Árný Steindórsdóttir (2026, 3. júní). Munnleg heimild.
- 2Brunabótafélag Íslands. Brunabótavirðings dags. 20. júní 1917. Úr gagnasafni Byggðasafns Hafnarfjarðar.
- 3Mannalát (1922, 18. nóvember). Tíminn, 6. árg., 48. tbl., bls. 156.
- 4Árný Steindórsdóttir (2026, 3. júní); Steindór Olsen (2026, 4. júní). Munnleg heimild; Rúna K. Tetzschner og Ragnheiður Traustadóttir (2023). Bíldsfell I – Tunga. Fornleifaskráning vegna deiliskipulags, bls. 18. Reykjavík: Antikva ehf.; Minning: Sigurður Jónsson (1998, 6. maí). Morgunblaðið, 86. árg., 100. tbl., bls. 41.
Deila færslu
Síðast uppfært 4. júní, 2026

