Tuliniusarverslun, Reyðarfirði
Saga:
„Svínaskáli var næsti bær fyrir utan Eskifjörð. Þar bjó á 19. öld merkur hagleiksmaður, Jónas Símonarson [1836-1893]. Lét hann m.a. bæjarlæk sinn knýja sög og kornmyllu.“1Eskifjordur.is. Sótt 4. ágúst 2026 af http://www.eskifjordur.is/ornefni.htm. Um 1880 reisti hann verslunarhús á jörð sinni. Húsið stóð á hlöðnum kjallara.2Eskja 1. Örnefni við Eskifjörð. Sögur og sagnir af örnefnasvæðinu (1971). Sögurit Eskfirðinga I. bindi, bls. 18. Einar Bragi Sigurðsson sá um útgáfuna. Eskifirði: Byggðasögunefnd Eskifjarðar.
Í fornleifaskráningu sem gerð var árið 2004 eftirfarandi um tóft verslunarhússins á Svínaskála3Guðný Zoëga, Ragnheiður Traustadóttir, Anna Rut Guðmundsdóttir og Bryndís Zoëga (2004). Fornleifaskráning vegna aðal- og deiliskipulags í Fjarðabyggð, bls. 32. Byggðasafn Skagfirðinga. Rannsókarskýrsla nr. 27.:
Carl D. Tulinius (1835-1905)4Carl Daniel Tulinius (1905, 15. mars). Reykjavík, 6. árg., 14. tbl., bls. 56., kaupmaður á Eskifirði, keypti húsið um 1894 og flutti inn á Reyðarfjörð, og reisti það að nýju á mölinni neðan við Oddnýjarheiði. Hann hafði tekið við faktorsstörfum í Útkaupstað á Eskifirði árið 1859, þá ungur maður (f. 1835) og árið 1890 var hann kominn með útibú í húskofa á Bakkagerðiseyri í Reyðarfirði. En þá aðstöðu bætti hann með húsinu frá Svínaskála og síðar var byggt við húsið. Verslun var rekin í húsinu allt þar til það var rifið árið 2004, en verslunarstjórarnir bjuggu iðulega í húsinu, m.a. Rolf Johansen og kona hans Kitty Överland. 5Eskja 1 (1971), bls. 18; Eskja 5. Eskifjörður í máli og myndum 1786-1986 (1986). Sögurit Eskfirðinga V. bindi, bls. 16. Einar Bragi Sigurðsson tók saman. Eskifirði: Byggðasögunefnd Eskifjarðar; Hjörleifur Guttormsson (2005). Austfirðir frá Reyðarfirði til Seyðisfjarðar, bls. 26-27. Árbók Ferðafélag Íslands 2005. Reykjavík: Ferðafélag Íslands; Guðmundur Magnússon (2003). Saga Reyðarfjarðar 1883-2003, bls. 79. Fjarðabyggð: Fjarðabyggð.
Sagt var að Jónas bóndi „hefði fylgt húsunum afturgenginn og þóttust sumir heyra þaðan hamars- og sagarhljóð og voru skelkaðir eða fóru þar ekki fram hjá í myrkri.“6Guðmundur Magnússon (2003), bls. 79.
Í spjalli í hópnum „Gamlar myndir frá Reyðarfirði“ kemur fram að á seinni árum hafi Tuliniusarbúð verið nefnd Kristinsbúð eftir eiganda, en hafi í raun heitið Verslunin Framtíð.7Sótt 4. ágúst 2026 af https://www.facebook.com/groups/248756904030944.
Leitarorð: Eskifjörður – Reyðarfjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 4. ágúst, 2026
Heimildaskrá
- 1Eskifjordur.is. Sótt 4. ágúst 2026 af http://www.eskifjordur.is/ornefni.htm. ↩︎
- 2Eskja 1. Örnefni við Eskifjörð. Sögur og sagnir af örnefnasvæðinu (1971). Sögurit Eskfirðinga I. bindi, bls. 18. Einar Bragi Sigurðsson sá um útgáfuna. Eskifirði: Byggðasögunefnd Eskifjarðar. ↩︎
- 3Guðný Zoëga, Ragnheiður Traustadóttir, Anna Rut Guðmundsdóttir og Bryndís Zoëga (2004). Fornleifaskráning vegna aðal- og deiliskipulags í Fjarðabyggð, bls. 32. Byggðasafn Skagfirðinga. Rannsókarskýrsla nr. 27. ↩︎
- 4Carl Daniel Tulinius (1905, 15. mars). Reykjavík, 6. árg., 14. tbl., bls. 56. ↩︎
- 5Eskja 1 (1971), bls. 18; Eskja 5. Eskifjörður í máli og myndum 1786-1986 (1986). Sögurit Eskfirðinga V. bindi, bls. 16. Einar Bragi Sigurðsson tók saman. Eskifirði: Byggðasögunefnd Eskifjarðar; Hjörleifur Guttormsson (2005). Austfirðir frá Reyðarfirði til Seyðisfjarðar, bls. 26-27. Árbók Ferðafélag Íslands 2005. Reykjavík: Ferðafélag Íslands; Guðmundur Magnússon (2003). Saga Reyðarfjarðar 1883-2003, bls. 79. Fjarðabyggð: Fjarðabyggð. ↩︎
- 6Guðmundur Magnússon (2003), bls. 79. ↩︎
- 7Sótt 4. ágúst 2026 af https://www.facebook.com/groups/248756904030944. ↩︎
Deila færslu
Síðast uppfært 4. ágúst, 2026
