Tröllatunga, Strandabyggð
Saga:
Árið 1870 fæddist Anna Einarsdóttir (d. 1967) að Bólstað í Kaldrananeshreppi. Þegar hún nálgaðist þrítugt (1897 eða 1898) flutti hún til Hólmavíkur og átti þar heima síðan. Hún fékk inni í einu herbergi sem innréttað var í vöruskúr sem R. P. Riis kaupmaður á Borðeyri átti. Þar bjó hún í að minnsta kosti 20 ár eða lengur, stundum ásamt öðrum. Hún vann flest störf sem til féllu hjá versluninni og sérstaklega var mikið um að vera í sláturtíðinni. Þá komu margir aðkomumenn til vinnu á Hólmavík. Þá var Anna alltaf boðin og búin til að hjálpa þeim sem þess þurftu.1Jón Sæmundsson (1974, 1. júní). Anna Einarsdóttir, Hólmavík. Strandapósturinn, 8. árg., 1. tbl., bls. 58-63.

Anna Einarsdóttir (1870-1967). Heimild: Jón Sæmundsson (1974, 1. júní). Anna Einarsdóttir, Hólmavík. Strandapósturinn, 8. árg., 1. tbl., bls. 58.
Það var oft þröngt í skúrnum hjá Önnu, ekki síst í sláturtíðinni, og einnig þegar kola- og saltskip komu. Þá var oft margt af mönnum úr sveitinni í vinnu, eða stundum 20-30 manns. En það var sama hversu mikil þrengsli og troðningar voru, aldrei kvartaði Anna. Mér fannst hún jafnvel glöðust þegar mikið var um að vera og hún gat lagt mest af mörkum til fyrirgreiðslu, þó hún oftast yrði að fórna sínum eigin hvíldar- og matartíma. Seinna byggði Anna sér hús. Það væri ekki talið stórt né merkilegt í dag. Þetta var timburhús, bárujárnsklætt á veggjum og þaki. Í því var eitt íbúðarherbergi, eldhús, forstofa og geymsla. Víst voru það góðar framfarir frá þrengslunum í skúrnum og það fannst Önnu líka. Veitti hún aldraðri konu þar húsaskjól með sér, og þar fengu líka inni hjá henni ung hjón um tíma. Vissulega hefðu sumir haft meiri getu til að veita þessu fólki húsaskjól. En svona var Anna. Segja mátti að hús hennar stæði öllum opið, er leituðu þar athvarfs. mátti að hús hennar stæði öllum opið, er leituðu þar athvarfs. Hún var minnug uppvaxtarára sinna, þegar margir áttu ekkert til næsta máls. Heimili foreldra hennar var þó með betri heimilum á þeim árum, enda fór það ekki framhjá barnsaugum hennar að allir fengu fyrirgreiðslu er þar áttu leið um. Á tímabili átti Anna bát, „skektu“, sem svo er kallað. Á henni réri hún til fiskjar, og þá aðallega með handfæri. Með lóðir réri hún lítið en þó mun það hafa komið fyrir. Fékk hún þá einhvern ungling með sér. Fisk var þá oft að fá á innanverðum Steingrímsfirði, en hann hvarf af þeim slóðum með stækkun fiskiskipaflotans og meiri tækni í gerð veiðarfæra. Þetta varð Önnu því enginn auður í búi, en mun þó með öðru hafa stuðlað að því að hún gat byggt sér íbúðarhúsið. Anna vann lengst af hjá verzlun R.P. Riis og þá einkum á meðan hann (Riis) átti verzlunina og Jón Finnsson var þar verzlunarstjóri. Eftir að verzlunin var seld og nýjir menn tóku þar við, vann hún þar minna. Enda var þá vinnutilhögun og vinnuþörf all mikið breytt frá því sem áður var.2Jón Sæmundsson (1974, 1. júní), bls. 61-62.
Samkvæmt ofanskráðu má ætla að Anna hafi byggt hús sitt skömmu eftir 1920. Það stóð milli húsanna sem nú eru skráð númer 37 og 39 (Riis-hús) við Hafnarbraut á Hólmavík, eins og sjá má á meðfylgjandi ljósmynd.

Hólmavík 1954. Ljósm.: Björn Björnsson. Sarpur.is. Safnnúmer A: BB1-5228-2. Sótt 18. mars 2026 af https://sarpur.is/is/collection/item/2368793/.
Húsið þurfti að víkja því það stóð á gagnamótum Hafnarbrautar og Brunngötu. Það var flutt í heilu lagi árið 1966 fram að Tröllatungu og stóð þar fram á áttunda áratuginn, tæpum 100 m neðan (norðan) við bæjarhúsið. Þá var Stefán Daníelsson (1926-2004) eigandi Tröllatungu og bjó hann nokkur ár í húsinu. Eftir það var húsið notað sem geymsla þar til það var rifið.3Ragnheiður Ingimundardóttir (2026, 6. maí). Munnleg heimild; Óli E. Björnsson (1990). Hólmavíkurbók, bls. 110-112. [Hólmavík:] Hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps.
Leitarorð: Strandir
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 6. maí, 2026
Heimildaskrá
- 1Jón Sæmundsson (1974, 1. júní). Anna Einarsdóttir, Hólmavík. Strandapósturinn, 8. árg., 1. tbl., bls. 58-63.
- 2Jón Sæmundsson (1974, 1. júní), bls. 61-62.
- 3Ragnheiður Ingimundardóttir (2026, 6. maí). Munnleg heimild; Óli E. Björnsson (1990). Hólmavíkurbók, bls. 110-112. [Hólmavík:] Hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps.
Deila færslu
Síðast uppfært 6. maí, 2026