Lengst til vinstri á myndinni sést í Velli, Suðurgötu 47 á Akranesi. Myndin er tekin árið 1968. Ljósm.: Gísli Teitur Kristinsson. Sótt 26. janúar 2026 af https://ljosmyndasafn.akranes.is/is.
Lengst til vinstri á myndinni sést í Velli, Suðurgötu 47 á Akranesi. Myndin er tekin árið 1968. Ljósm.: Gísli Teitur Kristinsson. Sótt 26. janúar 2026 af https://ljosmyndasafn.akranes.is/is.

Vellir, Þverásbyggð 1, Stóra-Fjalli, Borgarbyggð

Heiti: Vellir
Byggingarár: 1902-1903
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Guðmundur Narfason og Júlíana Jónsdóttir
Aðrir eigendur:
≈ 1942: Laufey Sigurðardóttir og Sigurður Þ. Sigurðsson
1950: Laufey Sigurðardóttir
≈ 1980: Sigurður Björgvin Geirsson, Anna Guðmundsdóttir o.fl.
Upphafleg staðsetning:

Suðurgata 47, Akranesi

Hvernig flutt: Í heilu lagi
Suðurgata 47 3

Suðurgata 47 á Akranesi. Heimild: Gísli S. Sigurðsson (2008). Svipast um á Suðurgötu. Annar hluti. Árbók Akurnesinga, 4.

Vellir

Vellir, nýkomnir í land Stóra-Fjalls um 1980. Ljósm. í eigu Berglindar Björgvinsdóttur.

Saga:

Vellir var lítið timburhús, ein hæð og ris, sem stóð á lágum grunni við Suðurgötu 47 á Akranesi og sneri gafli að götunni.

Á hlið þess, er vissi að göngustíg sem lá yfir að Skólabraut, var inngangsskúr og gengið upp nokkrar tröppur að útidyrum. Við gafl þann er að Suðurgötu sneri var skúr, sem á fyrri árum hefur sennilega verið fjós, því undir honum og fram undan var safnþró, sem stóð jafn hátt grunni og var þak yfir. Hús þetta, sem klætt var bárujárni á veggjum og þaki, jafnan gulmálað með hvítum gluggum og vindskeiðum og rauðu þaki.1Gísli S. Sigurðsson (2008). Svipast um á Suðurgötu. Annar hluti. Árbók Akurnesinga, 4, bls. 105-120.

Árið 1902 eða 1903 byggði Guðmundur Narfason (1867-1960) hús þetta. Hann bjó þar með eiginkonu sinni Júlíönu Jónsdóttur (1863-1943) til ársins 1942, en þau höfðu gengið í hjónaband árið 1898. Þeim hjónum varð ekki barna auðið, en ólu upp þrjá drengi. Guðmundur var sjómaður framan af ævinni á opnum skipum og var formaður um skeið. Hann gerði út vélbát í félagi við aðra og var meðal þeirra fyrstu á Akranesi sem eignuðust vélbát. Hann fékkst einnig við smíðar.2Gísli S. Sigurðsson (2008); Dagbók (1947, 9. nóvember). Morgunblaðið, 34. árg., 256. tbl., bls. 11; Ljósmyndasafn Akraness. Ljósm.: Sæmundur Guðmundsson. Mynd nr. 27091. Sótt 26. janúar 2026 af  Guðmundur Narfason | Ljósmyndasafn Akraness.

Næst fluttust Laufey Sigurðardóttir og Sigurður Þ. Sigurðsson vinnuvélstjóri í húsið. Laufey bjó þar til ársins 1979.3Gísli S. Sigurðsson (2008).

Vellir, sumarbústaður í landi Stóra-Fjalls. Ljósm. í eigu Berglindar Björgvinsdóttur.

Í grein sinni Svipast um á Suðurgötu segir Gísli S. Sigurðsson að húsið hafi verið rifið skömmu eftir að Laufey flutti þaðan, en hið rétta er að húsið var flutt í land Stóra-Fjalls í Norðurárdal um 1980. Þar stendur það við Þverásbyggð 1 og er nýtt sem sumarbústaður. Það voru hjónin Sigurður Björgvin Geirsson (1921-2000) og Anna Guðmundsdóttir (1926-1999) ásamt tveimur börnum og tengdabörnum sem þá áttu húsið og fluttu það. Enn nefnist húsið Vellir, þó því hafi verið talsvert breytt, og er í eigu afkomenda þeirra hjóna.4Berglind Björgvinsdóttir (2026, 25. janúar). Tölvupóstur.

 

Leitarorð: Borgarfjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 16. febrúar, 2026

Heimildaskrá

  • 1
    Gísli S. Sigurðsson (2008). Svipast um á Suðurgötu. Annar hluti. Árbók Akurnesinga, 4, bls. 105-120.
  • 2
    Gísli S. Sigurðsson (2008); Dagbók (1947, 9. nóvember). Morgunblaðið, 34. árg., 256. tbl., bls. 11; Ljósmyndasafn Akraness. Ljósm.: Sæmundur Guðmundsson. Mynd nr. 27091. Sótt 26. janúar 2026 af  Guðmundur Narfason | Ljósmyndasafn Akraness.
  • 3
    Gísli S. Sigurðsson (2008).
  • 4
    Berglind Björgvinsdóttir (2026, 25. janúar). Tölvupóstur.

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 16. febrúar, 2026