Þverárstofa, Menningarmiðstöð Þingeyinga, Húsavík
Þverárstofa flutt frá Reykjarhóli að Safnahúsinu á Húsavík. Heimild: Þverárstofa flutt úr Reykjahverfi (1995, 24. nóvember). Dagur, 227, tbl., bls. 8.
Þverárstofa við Safnahúsið á Húsavík. Sótt 29. apríl 2025 af https://www.nordurthing.is/is/frettir/menningarstefna-nordurthings.
Saga:
Að Þverá í Reykjahverfi var á árum áður mikil þyrping húsa sem var misaldra og þau nýtt og stóðu mislengi. Á myndinni hér að ofan má sjá framhlið Þverárbæjarins árið 1944. Húsið til vinstri er lítil stofa með geymslulofti yfir sem Jónas Jóhannesson (1822-1890) byggði einhvern tíma á árunum 1864 til 1870. Húsið var ætlað sem gestastofa.1Ingólfur Davíðsson (1977, 4. desember). Byggt og búið í gamla daga 100. Tíminn, 61. árg., 171. tbl., bls. 8; Þverárstofa flutt úr Reykjahverfi (1995, 24. nóvember). Dagur, 227, tbl., bls. 8.
Þverá var í þjóðbraut þegar leiðin í Kelduhverfi og austur lá um Reykjaheiði. Gestkvæmt var því á bænum og þótti stofan fín. Hún var notuð áratugum saman til gestamóttöku en síðar var símstöð þar til húsa og að síðustu var stofan notuð sem geymsla. Árið 1985 tók Óskar Sigtryggsson stofuna niður og merkti hverja spýtu, Gústav A. Guðmundsson myndaði stofuna en Bjarni Þór Einarsson mældi hana og teiknaði upp. Viðirnir úr stofunni voru geymdir í fjárhúsunum á Reykjarhóli þar til fyrr á þessu ári að Stefán Óskarsson hófst handa við að endurbyggja stofuna í hlöðunni.
Allt verkið var unnið undir eftirliti Þjóðminjasafns og í samráði við Guðmund L. Hafsteinsson arkitekt. Húsafriðunarsjóður veitti styrk til verkefnisins.
Stofan er eikarmáluð innan, en efri hluti veggja er hvítmálaður, hún var máluð fyrir rúmlega 100 árum af Gunnlaugi Oddssyni frá Geitafelli. Ögn þarf að lagfæra málninguna og mála stofuna utan, en síðan verður hún til sýnis næsta vor sem hluti af söfnunum í Safnahúsinu.2Þverárstofa flutt úr Reykjahverfi (1995, 24. nóvember).
Jónas sótti viðina í húsið í Mánárfjöru og flutti það að vetrarlagi að Þverá á hestum.
Í nóvember 1995 var húsið flutt í heilu lagi frá Reykjarhóli að safnahúsinu á Húsavík. Það voru bræðurnir Hrólfur (1903-1997) og Jón Árnasynir (1900-1994) sem gáfu stofuna til Safnahússins á Húsavík árið 1985.3Þverárstofa flutt til Húsavíkur (1995, 25. nóvember). Morgunlaðið, 83. árg., 270. tbl., bls. 14.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 29. apríl, 2025
Heimildaskrá
- 1Ingólfur Davíðsson (1977, 4. desember). Byggt og búið í gamla daga 100. Tíminn, 61. árg., 171. tbl., bls. 8; Þverárstofa flutt úr Reykjahverfi (1995, 24. nóvember). Dagur, 227, tbl., bls. 8.
- 2Þverárstofa flutt úr Reykjahverfi (1995, 24. nóvember).
- 3Þverárstofa flutt til Húsavíkur (1995, 25. nóvember). Morgunlaðið, 83. árg., 270. tbl., bls. 14.
Deila færslu
Síðast uppfært 29. apríl, 2025

