Þríhyrningur III, Hörgársveit
2022 að Þríhyrningi II, Hörgársveit
Saga:
Jónas Jónasson (1863-1944) fæddist og ólst upp á Stóra Hamri I í Eyjafirði. Þegar hann var aðeins tólf ára tók hann við búsforráðum á bænum eftir fráfall föður hans, sem féll frá á besta aldri. Hann rak búið með móður sinni og á hennar nafni til ársins 1895 þegar hann tók einn við búsforráðum. Árið 1927 tók sonur hans Þórhallur (1904-1993) við jörðinni og síðar synir hans.1Jónas Jónasson. Minningarorð (1944, 7. september). Dagur, 37. árg., 36. tbl., bls. 6; Ármann Dalmannsson, Eggert Davíðsson og Svein Jónsson (1973). Byggðir Eyjafjarðar. II. bindi, bls. 360. Búnaðarsamband Eyjafjarðar; Guðmundur Páll Steindórsson, Jóhann Ólafur Halldórsson og Valdimar Gunnarsson (2013). Byggðir Eyjafjarðar 2010, bls. 510. Búnaðarsamband Eyjafjarðar.
Um 1914 byggði Jónas Jónasson framhús við torfbæinn á Stóra-Hamri sem var nýtt sem stofa og svefnherbergi. Ekki er ósennilegt að húsið sé norskt kataloghús, því viðirnir í grind hússins eru merktir með rómverskum tölum.

Gamla framhúsið á Stóra-Hamri 2019. Ljósm.: Eignaver. Sótt 19. febrúar 2026 af https://fastinn.is/soluskra/844905.
Hús þetta var hluti bæjarhúsa Stóra-Hamars allt til ársins 2022 að það var flutt að Þríhyrningi II í Hörgársveit og hafist handa við að gera það upp sem gestahús. Í fasteignaskrá er byggingarár hússins sagt vera 2023 og grunnflötur þess 48,6 fermetrar. Árið 2024 var skráningu hússins breytt. Samþykkt var að skrá húsið sem íbúðarhús á sjálfstæðri lóð, Þríhyrningi III.2Verðlaunabærinn Stóri-Hamar (1970, 13. september). Lesbók Morgunblaðsins, 45. árg., 36. tbl., bls. 8-9; Gagnasafn Minjastofnunar Íslands; Skipulags- og byggingafulltrúi Eyjafjarðar. 7. febrúar 2024. 66. afgreiðslufundur.
Leitarorð: Eyjafjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 19. febrúar, 2026
Heimildaskrá
- 1Jónas Jónasson. Minningarorð (1944, 7. september). Dagur, 37. árg., 36. tbl., bls. 6; Ármann Dalmannsson, Eggert Davíðsson og Svein Jónsson (1973). Byggðir Eyjafjarðar. II. bindi, bls. 360. Búnaðarsamband Eyjafjarðar; Guðmundur Páll Steindórsson, Jóhann Ólafur Halldórsson og Valdimar Gunnarsson (2013). Byggðir Eyjafjarðar 2010, bls. 510. Búnaðarsamband Eyjafjarðar.
- 2Verðlaunabærinn Stóri-Hamar (1970, 13. september). Lesbók Morgunblaðsins, 45. árg., 36. tbl., bls. 8-9; Gagnasafn Minjastofnunar Íslands; Skipulags- og byggingafulltrúi Eyjafjarðar. 7. febrúar 2024. 66. afgreiðslufundur.
Deila færslu
Síðast uppfært 19. febrúar, 2026