Þrastargata 1, Reykjavík
Barónsstígur 28, Reykjavík, árið 2004. Heimild: Páll V. Bjarnason og Guðfinna Ósk Erlingsdóttir (2004). Húsakönnun. Barónsstígur – Bergþórugata – Vitastígur – Njálsgata, bls. 12. Minjasafn Reykjavíkur. Skýrsla nr. 122.
Barónsstígur 28, Reykjavík, árið 2004. Heimild: Páll V. Bjarnason og Guðfinna Ósk Erlingsdóttir (2004). Húsakönnun. Barónsstígur – Bergþórugata – Vitastígur – Njálsgata, bls. 12. Minjasafn Reykjavíkur. Skýrsla nr. 122.
Þrastargata 1, Reykjavík, árið 2015. Ljósm.: Ásgeir Sigurðsson. Sótt 10. maí 2025 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=10206975283843989&set=pcb.934946016546724.
Þrastargata 1, Reykjavík, árið 2020. Ljósm.: Miklaborg. Sótt 10. maí 2025 af https://fastinn.is/soluskra/916994.
Saga:
Sæmundur Þórðarson steinsmiður byggði hús við Barónsstíg 28 í Reykjavík árið 1905. Þegar húsið var virt í október það sama ár var sagt að það væri einlyft hús með risi, byggt af binding, klætt utan með plægðum borðum, pappa, listum og járni þar yfir. Þakið var einnig með járni á plægðri borðasúð. Niðri í húsinu voru þrjú íbúðarherbergi, eldhús og tveir fastir skápar, sem allt var þiljað og herbergin með pappa á veggjum en strigi og pappir í loftum. Allt var þetta málað. Á hæðinni voru tveir ofnar og ein eldavél. Uppi var eitt þiljað herbergi og framloft. Kjallari með steinsteypugólfi var undir öllu húsinu. Í honum voru þrjú geymslurými og gangur.
Við suðurhlið hússins var inngönguskúr, sem byggður var eins og húsið. Í honum var einn fastur skápur.
Stærð hússins: L. 6.3 m. br. 5.7 m. h. 3 m.
Stærð inngönguskúrs: L. 2.5 m. br. 1.9 m. h. 2.5 m.1Nikulás Úlfar Másson og Margrét Jónsdóttir (1993). Byggingasaga. Stgr. 1.190.3. Skýrslur Árbæjarsafn nr. 17; Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 02-04-1900 til 13-11-1905. Aðfnr. 735. Brunavirðinganr. 985; Borgarsögusafn. Árbæjarsafn. Húsaskrá Reykjavíkur.
Árið 1907 keypti Sigurður Símonarson [1877-1947] húsið og árið eftir fékk hann leyfi til að byggja skúr á lóðinni, við austurgafl hússins og meðfram syðri lóðamörkum. … Í honum mun hafa verið fjós, hesthús og lambakofi og heyloft fyrir ofan fjósið. Sigurður og kona hans Ingibjörg Pálsdóttir [1876-1948] voru þarna með skepnur og ráku hestaleigu og voru einnig með tjöld fyrir ferðamenn. Í skúrnum hafði Pétur Sigurðsson síðan hesta allt fram á 8. áratug 20. aldar.2Borgarsögusafn. Árbæjarsafn. Húsaskrá Reykjavíkur.
Í minningargrein um Sigurð árið 1947 sagði m.a.:
Sigurður stundaði hjer ýms störf og var um hríð við verslun, en merkust og eftirminnilegust urðu þó störf hans sem fylgdarmanns erlendra ferðamanna á sumrum, um langt skeið. Leiðangri landmælingamannanna dönsku fylgdi hann mörg sumur, allt frá Hornafirði til Snæfellsness. Hann ferðaðist hjer með professor Heksler og undirbjó leiðangur Koch til Grænlands og var mjög lagt að honum að verða með í þeirri för en varð að hafna því m. a. vegna vanheilsu. Hlaut Sigurður miklar vinsældir í þessu starfi og naut æfilangrar trygðar og vináttu margra þeirra merku erlendu ferðamanna er hann hafði alltaf leitt heila í höfn. Má þar meðal annara nefna prófessor Heusler og Koch.
Allt líf hans og starf var farsælt, enda svo skapi farinn að hann lofaði aldrei meiru, en hann gat fyllilega efnt.
Hjónabandið og heimilislífið var örugt og farsælt. Þeim hjónum varð 5 barna auðið, einnar dóttur og 4 sona sem öll eru á lífi og hin mannvænlegustu.3Steindór Gunnlaugsson (1947, 5. september). Minning Sigurðar Símonarsonar. Morgunblaðið, 34. árg., 200. tbl., bls. 8.
Árið 2013 barst Minjastofnun Íslands beiðni um að húsið við Barónsstíg 28 yrði affriðað og það rifið. Minjastofnun lagðist gegn niðurrifi og affriðun þess en gerði ekki athugasemd við að það yrði flutt af lóðinni.4Gagnasafn Minjastofnunar Íslands. Í júní 2015 var húsið flutt á lóðina númer 1 við Þrastargötu 1 í Reykjavík og virðist una hag sínum vel.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 10. maí, 2025
Heimildaskrá
- 1Nikulás Úlfar Másson og Margrét Jónsdóttir (1993). Byggingasaga. Stgr. 1.190.3. Skýrslur Árbæjarsafn nr. 17; Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 02-04-1900 til 13-11-1905. Aðfnr. 735. Brunavirðinganr. 985; Borgarsögusafn. Árbæjarsafn. Húsaskrá Reykjavíkur.
- 2Borgarsögusafn. Árbæjarsafn. Húsaskrá Reykjavíkur.
- 3Steindór Gunnlaugsson (1947, 5. september). Minning Sigurðar Símonarsonar. Morgunblaðið, 34. árg., 200. tbl., bls. 8.
- 4Gagnasafn Minjastofnunar Íslands.
Deila færslu
Síðast uppfært 10. maí, 2025



