Þórsgata 20B, Reykjavík, í maí 2010. Ljósm.: Höfundur.
Þórsgata 20B, Reykjavík, í maí 2010. Ljósm.: Höfundur.

Þórsgata 20B, Reykjavík

Byggingarár: 1882
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Bjarni Guðnason
Upphafleg staðsetning: Laugavegur 16, Reykjavík
Flutt: 1922 að Þórsgötu 20 B, Reykjavík

Saga:

Árið 1882 byggði Magnús Pálsson múrari þetta hús fyrir Bjarna Guðnason á lóð númer 16 við Laugaveg. Húsið var úr bindingi múruðum með múrsteini og klætt með borðum á veggjum en járn var á þaki. Stærð þess var 8 x 7 x 3½ álnir. Árið 1891 var búið að breikka húsið í 13 álnir og fjórðungi betur. Um 1907 var byggður skúr við húsið.

Árið 1922 var húsið flutt á baklóð við Þórsgötu og hefur númerið 20 B.1Helga Maureen Gylfadóttir og Guðný Gerður Gunnarsdóttir (2008). Húsakönnun. Baldursgata – Þórsgata – Njarðargata – Freyjugata. Skýrsla nr. 138, bls. 34. Reykjavík: Minjasafn Reykjavíkur. Það þurfti að víkja þegar stórhýsið sem m.a. hýsti Laugarvegs­apótek var reist.

 

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 13. desember, 2023

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 13. desember, 2023