Þinghúsið var fyrst suðaustan við Skólagötu 6 og síðan neðan (norðan) við sama hús. Heimild:  Friðgeir Torfi Ásgeirsson (2011, maí). Byggðakönnun á Suðureyrarmölum, ekkert bls.tal. Í gagnasafni Húsafriðunarnefndar.
Þinghúsið var fyrst suðaustan við Skólagötu 6 og síðan neðan (norðan) við sama hús. Heimild: Friðgeir Torfi Ásgeirsson (2011, maí). Byggðakönnun á Suðureyrarmölum, ekkert bls.tal. Í gagnasafni Húsafriðunarnefndar.

Þinghúsið, Suðureyri, Súgandafirði

Heiti: Þinghús
Byggingarár: 1892
Rifið: 1925
Upphafleg notkun: Þinghús
Fyrsti eigandi: Suðureyrarhreppur
Aðrir eigendur:
1908: Guðný Sigríður Magnúsdóttir
1915: Ásgeirsverslun
1924 ? : Guðbjörn Björnsson
Upphafleg staðsetning: Rétt við suðausturgafl hússins sem nú (2025) er Skólagata 6
Flutt: 1915 niður fyrir Skólagötu 6

Saga:

Árið 1892 byggði Suðureyrarhreppur Þinghús úr timbri á Suðureyrarmölum í Súgandafirði. Húsið stóð rétt við suðausturgafl hússins sem nú (2025) er Skólagata 6. Húsið var 3,8 x 3,1 m að grunnfleti og vegghæð einungis 1,88 m. Innandyra var 6 álna borð og bekkir. Þakið var tjargað. Einn sex rúðu gluggi var á húsinu. Smiðurinn sem reisti húsið var Magnús Jónsson frá Skálavík í Hólshreppi, en 10 aðrir lögðu hönd að verki í lengri eða skemmri tíma og fengu greitt fyrir. Árið 1903 eða 1904 var keyptur ofn í húsið og byggt við það bíslag.

Hreppsnefnd Suðureyrarhrepps fundaði í húsinu og einnig hafði sýslumaður þar aðsetur þegar hann innheimti skatta af Súgfirðingum. Einnig var húsið leigt út á milli funda, m.a. til Ásgeirsverslunar.

Þegar barnaskóli var byggður á Suðureyri árið 1908 fékk hreppsnefndin aðstöðu þar og var Þinghúsið þá selt Guðnýju Sigríði Magnúsdóttur (1870-1915) til íbúðar.1Friðgeir Torfi Ásgeirsson (2011, maí). Byggðakönnun á Suðureyrarmölum, ekkert bls.tal. Í gagnasafni Húsafriðunarnefndar; Kjartan Ólafsson (ódags.). Suðureyrarhreppur. Sótt 17. júlí 2020 af https://www.safnis.is/upload/files/105%20Sudureyrarhreppur.pdf; Kjartan Ólafsson (ódags.). Keflavík. Sótt 17. júlí 2020 af https://www.safnis.is/upload/files/118%20%20Keflavik.pdf. Guðný var „… hraustmenni mikið og sjósóknarkona með afbrigðum.“2Kjartan Ólafsson (ódags.). Keflavík, bls. 1. Hún stundaði sjósókn bæði vetur, vor og sumar í fjölda ára af miklum dugnaði en þótti lítt kunna til kvennaverka. Hún andaðist úr lungnabólgu 28. apríl 1915. Var hús hennar þá boðið upp og var keypt af Ásgeirsverslun.

Þegar til stóð að Ásgeirsverslun byggði steinsteypta frystigeymslu á lóðinni (sem frá upphafi var nefnt Svartholið, því húsið var gluggalaust) varð að flytja litla húsið. Það var þó ekki flutt langt, því síðustu árin stóð það neðan við við Skólagötu 6. Síðasti eigandi gamla þinghússins var Guðbjörn Björnsson. Þann 28. janúar 1924 gerði hið mesta fárviðri í Súgandafirði og fjöldi húsa fuku eða skemmdust mikið. Meðal annars fauk þakið af mestu leyti af litla húsinu hans Guðbjörns, sem hugsanlega hefur valdið því að húsið var rifið árið eftir.3Friðgeir Torfi Ásgeirsson (2011, maí). Byggðakönnun á Suðureyrarmölum, ekkert bls.tal; Kjartan Ólafsson (2019, 20. febrúar). Suðureyri. Sótt 17. júlí 2020 af https://sogurogsagnir.is/sagnabrunnur/sudureyri/; Kjartan Ólafsson (ódags.). Suðureyrarhreppur; Kjartan Ólafsson (ódags.). Keflavík; Stórviðri (1924, 12. febrúar) Vesturland, 1. árg., 31. tbl., bls. 3.

 

Leitarorð: Súgandafjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 8. október, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 8. október, 2025