Þinghúsið, Grund, Svarfaðardal
Saga:
Árið 1892 var haldinn fyrsti fundir í nýju Þinghúsi sem hreppsnefnd Svarfaðardals hafði reist „… á eyðibýlinu Ytra-Tungukoti sem tilheyrði Tungufelli. Engar tóftir eða önnur ummerki sýna lengur hvar það stóð nákvæmlega, þar er nú ræktað tún. Þetta er ekki langt frá þeim stað sem Tungurétt er nú og merki er við veginn yfir Tungurnar sem vísar á staðinn.“1Þinghúsið á Grund í 113 ár (2004, 25. febrúar). Norðurslóð, 28. árg., 2. tbl., bls. 2.
Fram að þeim tíma höfðu hreppsnefndarfundir og önnur mannamót í Svarfaðardal farið fram heima á bæjunum. Hús þetta var lítið timburhús en engu að síður voru haldnar þar ýmsar samkomur, m.a. fundir hreppsnefndar og búnaðarfélagsins og þar voru sett upp leikrit, sem voru nýmæli fyrir Svarfdælinga.
Þegar ný fræðslulög voru samþykkt árið 1907 sem kváðu á um skólaskyldu barna á aldrinum 10 til 14 ára varð ljós að skólahús vantaði í sveitina. Þinghúsið þótti ekki vel í sveit sett í Tungunum og var því brugðið á það ráð að taka húsið niður og færa það niður á Grund í Svarfaðardal svo það gæti nýst sem skólahús. Var það gert árið 1911 og skólastarf hófst í húsinu haustið 1912. Barnaskóli var síðan í húsinu í 43 ár eða til ársins 1955 þegar heimavistarskóli tók til starfa á Húsabakka.
Ekki var Þinghúsið stórt, forstofa, lítil kompa og lítill salur. Húsið var hitað með kolaofni og útikamar var norðan við það. Árið 1938 reisti Ungmennafélagið Svörfuður viðbyggingu sunnan við húsið og árið 1962 var salur Þinghússins breikkaður til vesturs, inngangur færður og salernisaðstaða bætt til muna.
Margvísleg starfsemi fór fram í húsinu.
Auk hreppsfundar var þarna fundarstaður félaga í hreppnum: búnaðarfélagsins, nautgriparæktarfélagsins, kvenfélagsins, ungmennafélagsins og barnadeildar þess, en hún starfaði í yfir 20 ár. Þar voru haldnir kaupfélagsdeildarfundir og bændanámskeið. Þar var Ungmennafélagið Þorsteinn Svörfuður stofnað á 3. í jólum árið 1922. Þar hélt Cook, enski kistinboðinn á Akureyri samkomu, þar voru haldnar skákæfingar og skákmót, æfðir þjóðdansar, víkivaka, fimleikar og glíma. Þar voru söngkórar æfðir. …
Með stækkun Þinghússins og hinni nýju viðbyggingu með leiksviði batnaði öll aðstaða til mannfunda og skemmtanahalds stórlega. Efnt var til leiksýninga, venjulega einnar á hverjum vetri. Áður hafði einstöku sinnum verið slegið upp bráðabirgða leiksviði í norðurenda Þingstofunnar.
Á Þinghúsinu hafa verið og eru haldnar skemmtisamkomur af ýmsu tagi, sumar með vandaða dagskrá, eins og afmælisfagnaður Ungmennafélagsins á þriðja í jólum, árshátíð Kvenfélagsins og fyrr á tíð árshátíð Framsóknarfélagsins og jólatrésskemmtanir Barnadeildar U.M.F. Þ.SV. og kvenfélagsins Tilraunar. Oft var líf á tuskunum á böllunum, einkum á síðsumarsskemmtunum Kvenfélagsins sér í lagi ef svo hittist á að bræla var og síldarskip lágu inni á Dalvík. …
Þinghúsið hefur tvisvar sinnum veitt húsvilltum fjölskyldum skjól um tíma vegna bæjarbruna, 1934 í Blakksgerði og 1966 í Brekku.2Júlíus J. Daníelsson (1987, 15. desember). Sögufrægt hús – Þinghúsið á Grund -. Norðurslóð, 11. árg., 10. tbl., bls. 9.
Þegar nýtt samkomuhús fyrir Svarfaðardalshrepp var tekið í notkun árið 1997 lauk hlutverki gamla Þinghússins. Þá tóku hjónin „… Ingibjörg Kristinsdóttir og Jón Þórarinsson búendur á Hæringsstöðum þinghúsið á leigu, og seinna keyptu þau það og ráku þar handverksgallerí og þjónustu fyrir ferðamenn næstu sumur.“3Þinghúsið á Grund í 113 ár (2004, 25. febrúar).
Í janúar 2004 kom upp eldur í húsinu og hálfum mánuði síðar var það jafnað við jörðu. Margir gamlir munir sem þau Ingibjörg og Jón höfðu safnað og haft til sýnis urðu eldinum að bráð 4Þinghúsið á Grund í 113 ár (2004, 25. febrúar); Samkomuhús ónýtt eftir bruna (2004, 30. janúar). Morgunblaðið, 92. árg., 29. tbl., bls. 2. „Fyrir utan tilfinnanlegan skaða fyrir eigendurna er hér um mikið menningarsögulegt slys að ræða fyrir byggðina en húsið var eitt elsta hús í Dalvíkurbyggð og saga þess löng og merk.“5Þinghúsið að Grund brunnið og jafnað við jörðu (2004, 25. febrúar). Norðurslóð, 28. árg., 2. tbl., bls. 1.
Leitarorð: Svarfaðardalur
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 13. febrúar, 2025
Heimildaskrá
- 1Þinghúsið á Grund í 113 ár (2004, 25. febrúar). Norðurslóð, 28. árg., 2. tbl., bls. 2.
- 2Júlíus J. Daníelsson (1987, 15. desember). Sögufrægt hús – Þinghúsið á Grund -. Norðurslóð, 11. árg., 10. tbl., bls. 9.
- 3Þinghúsið á Grund í 113 ár (2004, 25. febrúar).
- 4Þinghúsið á Grund í 113 ár (2004, 25. febrúar); Samkomuhús ónýtt eftir bruna (2004, 30. janúar). Morgunblaðið, 92. árg., 29. tbl., bls. 2.
- 5Þinghúsið að Grund brunnið og jafnað við jörðu (2004, 25. febrúar). Norðurslóð, 28. árg., 2. tbl., bls. 1.
Deila færslu
Síðast uppfært 13. febrúar, 2025

