Saga:
Árið 1909 kom Rafn Júlíus Símonarson (1866-1933) útgerðarmaður til Grundarfjarðar með fjölskyldu sína og hóf útgerð með tvo báta í félagi með öðrum. Hann byggði fiskverkunarhús og verbúð við svokallaðan Kattarsnaga, sem er á bakkanum fyrir framan fiskverkun Soffaníasar Cecilssonar (Borgarbraut 1). Ekki er ólíklegt að hann hafi búið í húsinu, því hann var einungis tvö eða þrjú ár í Grundarfirði.1Davíð Hansson Wíum (2003). Gert út frá Grundarfirði. Myndun sjávarþorps á 20. öld, bls. 61. Fólkið, fjöllin, fjörðurinn. Safn til sögu Eyrarsveitar. 4. hefti, bls. 48-96. Eyrbyggjar – Hollvinasamtök Grundarfjarðar; Ingi Hans (2017, 2. júní). Gamlar myndir frá Grundarfirði. Sótt 12. september 2023 af https://www.facebook.com/photo?fbid=10155397120402236&set=gm.763725643788602
Árið 1928 flutti Páll Þorleifsson (1892-1950) útgerðarmaður húsið niður að höfninni. Eftir það var húsið kallað Svansskáli.2Davíð Hansson Wíum (2003), bls. 61; Ingi Hans (2017, 2. júní). „Á efri hæð skálans voru verbúðir fyrir landmennina og beitningarpláss, en í kjallarnum var saltað. Svanur [bátur sem Páll átti í félagi við Sigurð Ágústsson útgerðarmann í Stykkishólmi] var gerður þaðan út og til að byrja með var eingöngu verkað úr honum, en síðan fór Páll að verka þarna saltfisk af fleiri bátum.“3Davíð Hansson Wíum (2003), bls. 61
Síðar hóf Sigurður Ágústsson (1897-1976) útgerðarmaður í Stykkishólmi verslunarrekstur sinn í Grundarfirði í kjallaranum í Svansskála, þar sem Runólfur Jónatansson (1873-1947) var fyrsti verslunarstjórinn hjá honum.4Davíð Hansson Wíum (2003), bls. 61
Þá kom það fyrir að fjölskyldur bjuggu í húsinu. Pálína Gísladóttir (1929-2022) segir frá því í viðtali sem tekið var við hana í tilefni að 90 ára afmæli hennar árið 2019 að vorið 1944 hafi hún búið í Svansskála ásamt föður sínum meðan þau biðu þess að íbúð þeirra, sem var í byggingu, yrði lokið. Þau bjuggu á efri hæðinni, en í kjallarnum var verslun Sigurðar Ágústssonar.5Gunnar Kristjánsson (2019, 27. febrúar). Tók þátt í þróun byggðarinnar í Grundarfirði alla tíð. Skessuhorn, 22. árg., 9. tbl., bls. 20-21.
Húsið er nú horfið, en ekki er vitað hver afdrif þess urðu.
Leitarorð: Grundarfjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 11. mars, 2026
Heimildaskrá
- 1Davíð Hansson Wíum (2003). Gert út frá Grundarfirði. Myndun sjávarþorps á 20. öld, bls. 61. Fólkið, fjöllin, fjörðurinn. Safn til sögu Eyrarsveitar. 4. hefti, bls. 48-96. Eyrbyggjar – Hollvinasamtök Grundarfjarðar; Ingi Hans (2017, 2. júní). Gamlar myndir frá Grundarfirði. Sótt 12. september 2023 af https://www.facebook.com/photo?fbid=10155397120402236&set=gm.763725643788602
- 2Davíð Hansson Wíum (2003), bls. 61; Ingi Hans (2017, 2. júní).
- 3Davíð Hansson Wíum (2003), bls. 61
- 4Davíð Hansson Wíum (2003), bls. 61
- 5Gunnar Kristjánsson (2019, 27. febrúar). Tók þátt í þróun byggðarinnar í Grundarfirði alla tíð. Skessuhorn, 22. árg., 9. tbl., bls. 20-21.
Deila færslu
Síðast uppfært 11. mars, 2026