Suðurgata 6, Seyðisfirði
Saga:
Árið 1927 reisti Jón Þór. Sigtryggsson (1884-1939) sem var bæjarstjóri á Seyðisfirði á árunum 1924 til 1929 sér hús á túni sem hann leigði sunnan við Fjarðará í Seyðisfirði og kallaði Þórsmörk. Á loft mynd af Seyðisfirði er Þórsmörk merkt um 100 m sunnan við Uppsali, Garðarsveg 21. Þetta kemur líka heim og saman við fornleifaskráningu sem gerð var í Seyðisfirði árið 2009.
Árið 1938 ákvað Jón að flytja húsið á lóð númer 6 við Suðurgötu, rétt ofan við Barnaskólann. Þó húsið stæði við Suðurgötu var gengið inn í það frá Garðarsvegi.1Þóra Guðmundsdóttir (2021). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar, 2. útg., bls. 396. Seyðisfjörður: Seyðisfjarðarkaupstaður; Bjarki Borgþórsson og Ólafur Örn Pétursson (2009). Fornleifaskráning Seyðisfjarðar. Unnin vegna aðalskipulags Seyðisfjarðarkaupstaðar 2009-2029, bls. 103-104. Seyðisfirði: Skálanessetur ehf; Gunnlaugur Jónasson (1945, 1. desember). Saga bæjrmálefn á Seyðisfirði í 50 ár, bls. 101. Sveitarstjórnarmál, 5. árg., 5. hefti, bls. 98-132. Eftir að húsið var flutt var það brunavirt. Í brunabótamatinu segir:
Íbúðarhús, einlyft, portbyggt, innan þiljað panel og skilrúmsborðu, málað og veggfóðrað. Niðri: Stofa, herbergi og eldhús. Uppi. 2 herbergi og gangur. Í viðbyggingu, jafnstórri húsinu en á einni hæð mað lágu þaki eru tvö herbergi og geymslukompa. Húsið er járnvarið.2Þóra Guðmundsdóttir (2021), bls. 396.
Árið 1983 keypti Seyðisfjarðarkaupstaður húsið og sama ár kveikti slökkviliðið í húsinu til að æfa vinnubrögð sín.3Þóra Guðmundsdóttir (2021), bls. 396.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 15. mars, 2026
Heimildaskrá
- 1Þóra Guðmundsdóttir (2021). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar, 2. útg., bls. 396. Seyðisfjörður: Seyðisfjarðarkaupstaður; Bjarki Borgþórsson og Ólafur Örn Pétursson (2009). Fornleifaskráning Seyðisfjarðar. Unnin vegna aðalskipulags Seyðisfjarðarkaupstaðar 2009-2029, bls. 103-104. Seyðisfirði: Skálanessetur ehf; Gunnlaugur Jónasson (1945, 1. desember). Saga bæjrmálefn á Seyðisfirði í 50 ár, bls. 101. Sveitarstjórnarmál, 5. árg., 5. hefti, bls. 98-132.
- 2Þóra Guðmundsdóttir (2021), bls. 396.
- 3Þóra Guðmundsdóttir (2021), bls. 396.
Deila færslu
Síðast uppfært 15. mars, 2026