Húsið fyrir árið 1920 áður en það var flutt. Heimild: Málfríður Kristjánsdóttir (2022). Suðurgata – Strandgata, Hafnarfirði. Húsakönnun, bls. 48.
Húsið fyrir árið 1920 áður en það var flutt. Heimild: Málfríður Kristjánsdóttir (2022). Suðurgata – Strandgata, Hafnarfirði. Húsakönnun, bls. 48.

Suðurgata 54, Hafnarfirði

Heiti: Steinar ?
Byggingarár: 1915
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Guðmundur Hjaltason og Hólmfríður Björnsdóttir Hjaltason
Aðrir eigendur:
1929: Kristján Ágúst Kristjánsson og Guðríður Kristinsdóttir
Upphafleg staðsetning: Hamarsbraut 17 (áður Suðurgata 16), Hafnarfirði
Flutt: 1929 á lóð sem þá var Suðurgata 32 en er nú Suðurgata 54, Hafnarfirði

Saga:

Í fasteignaskrá er húsið sem nú stendur við Suðurgötu 54 (sem áður var númer 32) í Hafnarfirði sagt byggt árið 1977. Það mun ekki vera rétt en það ár var byggt við húsið. Hið rétta er að Guðmundur Hjaltason kennari og fræðimaður (1853-1919) byggði húsið árið 1915 á lóð sem hann hafði keypt tveimur árum áður, sem síðar varð númer 16 við Suðurgötu, en er nú Hamarsbraut 17. Húsið var brunavirt fyrst árið 1917 og var því þá lýst „… sem einlyftu bárujárnsklæddu timburhúsi á hlöðnum kjallara en ólíkt öðrum húsum var eldhúsið í kjallaranum.“ Þrjú herbergi og eldhús voru í húsinu, fjórir gluggar á hæð og 4 í kjallara. Við húsið var 500 ferfaðma tún og 100 ferfaðma kálgarður, þar sem Hólmfríður (1870-1948), eiginkona Guðmundar, ræktaði rófur og kartöflur, sem hún seldi. Einnig seldi hún töðu og reyndist landið því góð búbót, því eftir að Guðmundur dó einungis 4 árum eftir að þau fluttu í húsið, var oft þröngt í búi hjá Hólmfríði. Hún brá einnig á það ráð að ráða sig til kaupavinnu í sveit og leigði þá hús sitt, en þegar báðar dætur hennar voru farnar að heiman seldi hún húsið, sem þau hjón bæði höfðu hugsað sér að eyða ellinni í.

Suðurgata 54, Hafnarfirði, í apríl 2024. Ljósm.: Höfundur.

Árið 1929 fékk Kristján Ágúst Kristjánsson (1899-1930) heimild til að flytja húsið á lóð sem hann hafði fengið við Suðurgötu 32 (nú Suðurgata 54), þar sem húsið var sett á steyptan kjallara, en var að öðru leyti óbreytt.

Kristján bjó þó ekki lengi í húsinu, því hann tók út af togaranum Venusi í apríl árið eftir og drukknaði, en kona hans og dóttir bjuggu í húsinu í um áratug eftir það.

Eins og fyrr segir var húsið stækkað töluvert árið 1977. Það var aftur stækkað árið 1999. Þá var m.a. byggður við það áfastur bílskúr.1Málfríður Kristjánsdóttir (2022). Suðurgata – Strandgata, Hafnarfirði. Húsakönnun, bls. 48; Elínborg Lárusdóttir (2017). Tvennir tímar. Endurminningar Hólmfríðar Hjaltason. Reykjavík: Angústúra.

 

Leitarorð: Hafnarfjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 2. maí, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 2. maí, 2024