Suðurgata 42, Siglufirði
Suðurgata 42 á Siglufirði. Myndin er líklega tekin eftir að verslunarstarfsemi var ekki lengur í búðinni. Ljósm.: Steingrímur Kristinsson. Sótt 25. september 2024 af http://myndasafn.siglo.is/. Mynd nr. 09-63-0147-06.
Saga:
Á efstu ljósmyndinni hér að ofan má sjá hóp manna á verksmiðjulóð Síldarverksmiðja ríkisins á Siglufirði. Þrír menn standa við dyr reisulegs timburhúss sem stóð rétt innan við aðalhliðið á lóðinni. Í þessu húsi var rafmagnsverkstæði SR og síðar einnig trésmíðaverkstæði.
Þegar byggt var við vélaverkstæði SR til suðurs þurfti húsið að víkja. Þá fékk Eggert Theodórsson (1907-1984) lagerstjóri hjá, SR húsið og lét flytja það á lóðina númer 42 við Suðurgötu á Siglufirði.1siglo.is. Myndasafn. Texti við mynd nr. 09-63-0147-06. Ljósm.: Steingrímur Kristinsson.
Haustið 1930 hóf Eggert störf hjá Síldarverksmiðjum ríkisins í Siglufirði, fyrst sem aðstoðarmaður birgðavarðar, en frá árinu 1960 varð hann aðalbirgðavörður fyrirtækisins og gegndi því uns hann lét af störfum fyrir aldurssakir og hafði þá starfað hjá SR um hálfrar aldar skeið.2Minning: Eggert Páll Theódórsson (1984, 17. mars). Morgunblaðið, 71. árg., 64. tbl., bls. 32-33.
Eiginkona hans var Elsa Þorbergsdóttir (1914-1994).
Í húsinu við Suðurgötuna hafði Kaupfélag Siglfirðinga búðir til ársloka 1967, mjólkurbúð í norðurendanum, þar sem mjólk var afgreidd á brúsum, og matvörubúð í hinum endanum. Fjölskylda Eggerts rak búðirnar lengst af og eftir að Kaupfélagið ákvað að loka þeim var Theodór (1940-2014), sonur Eggerts, þar með sjoppu og vídeóleigu. Einnig var efnalaug þar um tíma, sem Theodór var líklega með.3siglo.is. Myndasafn. Texti við mynd nr. 09-63-0147-06. Ljósm.: Steingrímur Kristinsson; Kaupfélag Siglfirðinga (1968, 31. maí). Einherji, 37. árg., 4. tbl., bls. 1; Siglfirðingar (1983, 25. október). Mjölnir, 46. árg., 4. tbl., bls. 5.
Nú hefur húsið verið gert upp og er nú nýtt sem íbúðar- eða frístundahús og er enn í eigu afkomanda Eggerts.
Leitarorð: Siglufjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 25. september, 2024
Heimildaskrá
- 1
- 2Minning: Eggert Páll Theódórsson (1984, 17. mars). Morgunblaðið, 71. árg., 64. tbl., bls. 32-33.
- 3siglo.is. Myndasafn. Texti við mynd nr. 09-63-0147-06. Ljósm.: Steingrímur Kristinsson; Kaupfélag Siglfirðinga (1968, 31. maí). Einherji, 37. árg., 4. tbl., bls. 1; Siglfirðingar (1983, 25. október). Mjölnir, 46. árg., 4. tbl., bls. 5.
Deila færslu
Síðast uppfært 25. september, 2024


