Strandgata 73, Eskifirði
Saga:
Ekki er vitað með vissu hver byggði íbúðarhúsið sem kallað var Svenskarahúsið á Eskifirði, sem stóð þar sem nú (2023) er Strandgata 88. Í bókinni Silfur hafsins. Gull Íslands segir svo:
Tvennt kemur helst til greina. Annars vegar að Svíar, sem voru með útveg á Eskifirði veturinn 1895-1896, hafi byggt húsið og hins vegar að það hafi verið Leth, kaupmaður í Kaupmannahöfn. Hann hóf síldveiðar á Austfjörðum á níunda áratug aldarinnar og var ýmist sagður norsk-sænskur, norsk-danskur eða sænskur. Hafði hann töluverð umsvif á Sómastöðum á árunum 1882-1884 auk þess sem hann er talinn hafa byggt íbúðarhús á Eskifirði 1883.1Hreinn Ragnarsson og Steinar J. Lúðvíksson (ritstjórar) (2007). Síldarstaðir á 19. öld, bls. 148-149. Í Silfur hafsins. Gull Íslands. Síldarsaga Íslendinga. 1. bindi, bls. 117-196. Reykjavík: Nesútgáfan.
Telja verður líklegra að það hafi verið Leth kaupmaður sem byggði húsið, því vitað er að það var flutt um set árið 1890, á lóð sem nú er númer 73 við Strandgötu, þar sem það stendur enn. Nú er húsið nefnt Klaustur.2Eskja 1. Örnefni við Eskifjörð. Sögur og sagnir af örnefnasvæðinu (1971). Sögurit Eskfirðinga I. bindi, bls. 26. Einar Bragi Sigurðsson sá um útgáfuna. Eskifirði: Byggðasögunefnd Eskifjarðar; Kristín Ágústsdóttir (2001, maí). Byggingarár húsa á Eskifirði. Unnið fyrir Veðurstofu Íslands. Neskaupstað: Náttúrustofa Austurlands. Sótt 27. nóvember 2009 af https://www.vedur.is/gogn/snjoflod/haettumat/es/eskifj_byggingarar.pdf.
Leitarorð: Eskifjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 13. desember, 2023
Heimildaskrá
- 1Hreinn Ragnarsson og Steinar J. Lúðvíksson (ritstjórar) (2007). Síldarstaðir á 19. öld, bls. 148-149. Í Silfur hafsins. Gull Íslands. Síldarsaga Íslendinga. 1. bindi, bls. 117-196. Reykjavík: Nesútgáfan.
- 2Eskja 1. Örnefni við Eskifjörð. Sögur og sagnir af örnefnasvæðinu (1971). Sögurit Eskfirðinga I. bindi, bls. 26. Einar Bragi Sigurðsson sá um útgáfuna. Eskifirði: Byggðasögunefnd Eskifjarðar; Kristín Ágústsdóttir (2001, maí). Byggingarár húsa á Eskifirði. Unnið fyrir Veðurstofu Íslands. Neskaupstað: Náttúrustofa Austurlands. Sótt 27. nóvember 2009 af https://www.vedur.is/gogn/snjoflod/haettumat/es/eskifj_byggingarar.pdf.
Deila færslu
Síðast uppfært 13. desember, 2023