Havsteenshús 1895-1902. Sarpur. Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. Lpr/2003-1095.
Havsteenshús 1895-1902. Sarpur. Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. Lpr/2003-1095.

Strandgata 35, Akureyri

Heiti: Havsteenshús
Byggingarár: <1888
Upphafleg notkun: ?
Fyrsti eigandi: Norskir síldveiðimenn ?
Aðrir eigendur:
1888: Jakob V. Havsteen konsúll
Upphafleg staðsetning: Litli-Árskógssandur, Eyjafirði
Flutt: 1888 að Strandgötu 35, Akureyri
Strandgata 35 2

Havsteenshús 1910 til 1919. Glerskálinn kominn á húsið. Hluti myndar. Ljósm.: Hallgrímur Einarssonar. Sarpur. Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd nr. H2-430.

Strandgata 35 3

Standgata 35, árið 2021. Ljósm.: Arnór Bliki Hallmundsson. Sótt 12. nóvember 2023 af https://www.akureyri.net/is/moya/news/hus-dagsins-strandgata-35.

Saga:

Árið 1888 hóf framkvæmdamaðurinn Jakob V. Havsteen konsúll á Akureyri (1844-1920) verslun upp á eigin spýtur, en hann hafði áður verið verslunarstjóri hjá Gránufélaginu. Hann komst yfir lóð á Oddeyri (sem síðar varð Strandgata 35) og reisti þar stórt hús, sem hann keypti af norskum síldveiðurum og lét flytja utan frá Litla-Árskógssandi.1Jón Hjaltason (1994). Saga Akureyrar. Kaupstaðurinn við Pollinn 1863-1905. II. bindi, bls. 53. Akureyri: Akureyrarbær. Um framkvæmdina sá Jón Chr. Stephánsson smiður. „Var hús þetta upp frá þessu aðsetur „Oddeyrarkonungsins“ til æviloka og fjölskyldu hans.“2Bragi Sigurjónsson (1992). Þeir létu ekki deigan síga, bls. 20. Reykjavík: Skjaldborg. Í húsinu bjó Havsteen með fjölskyldu sinni og þar var jafnframt verslun hans.3Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995). Oddeyri. Húsakönnun, bls. 40. [Akureyri:] Minjasafnið á Akureyri í samvinnu við Skipulagsdeild Akureyrarbæjar Þótti það „langfallegasta húsið, sem þá hafði enn verið þar bygt“.4Klemens Jónsson (1948). Saga Akureyrar, bls. 144. Akureyri: Akureyrarkaupstaður. Árið 1917 var húsinu lýst þannig:

Íbúðar- og verslunarhús, einlyft með porti, kvisti og háu risi, á kjallara. Skúr við bakhlið. Á gólfi við framhlið voru 3 stofu, “veranda” og sölubúð. Við bakhlið voru 2 kontorar, 1 stofa, eldhús, búr og forstofa. Á lofti voru 5 íbúðarherbergi og 4 geymslupláss. Í húsinu voru 3 reykháfar. Í kjallara eru 6 geymslurúm.
Veggir voru úr timbri og þak var járnklætt.5Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995), bls. 40.

Yfirbyggðu svalirnar eða glerskálann („veranda“) lét konsúllinn bæta við húsið 1903. Glerskál­anum var lokað árið 1949 og skrautgluggar fjarlægðir. Upphaflega var húsið klætt láréttri timbur­k­læðningu en var síðar klætt skífu, sem álklæðning leysti svo af hólmi.6Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995), bls. 40-41.

Um aldamótin var verslun J. V. Havsteen með stærri verslunum bæjarins og rak hann jafnframt þilskipaútgerð.7Klemens Jónsson (1948), bls. 180. Havsteen var einn helsti borgari Akureyrar á sinni tíð, var lengi bæjarfulltrúi og var auk þess konsúll. Hann var einn helsti frumkvöðull í samkvæmislífi bæjarins, „gestrisinn og veitingasamur“ og tók oft á móti útlendingum sem til bæjarins komu.

Margvísleg starfsemi hefur farið fram í húsinu og þar hafa margir búið. Áratugina í kringum 1950 var til dæmis afgreiðsla ÁTVR í kjallara hússins.8Arnór Bliki Hallmundsson (2023, 8. apríl). Hús dagsins: Strandgata 35. Sótt 12. nóvember 2023 af https://www.akureyri.net/is/moya/news/hus-dagsins-strandgata-35.

 

Vilji einhver fræðast meira um húsið og Havsteen konsúl má benda á fróðlega grein Arnórs Blika Hallmundssonar á vefnum akureyri.net.

 

Leitarorð: Eyjafjörður – Litli-Árskógssandur – Dalvíkurbyggð

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. desember, 2023

Heimildaskrá

  • 1
    Jón Hjaltason (1994). Saga Akureyrar. Kaupstaðurinn við Pollinn 1863-1905. II. bindi, bls. 53. Akureyri: Akureyrarbær.
  • 2
    Bragi Sigurjónsson (1992). Þeir létu ekki deigan síga, bls. 20. Reykjavík: Skjaldborg.
  • 3
    Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995). Oddeyri. Húsakönnun, bls. 40. [Akureyri:] Minjasafnið á Akureyri í samvinnu við Skipulagsdeild Akureyrarbæjar
  • 4
    Klemens Jónsson (1948). Saga Akureyrar, bls. 144. Akureyri: Akureyrarkaupstaður.
  • 5
    Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995), bls. 40.
  • 6
    Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995), bls. 40-41.
  • 7
    Klemens Jónsson (1948), bls. 180.
  • 8
    Arnór Bliki Hallmundsson (2023, 8. apríl). Hús dagsins: Strandgata 35. Sótt 12. nóvember 2023 af https://www.akureyri.net/is/moya/news/hus-dagsins-strandgata-35.

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. desember, 2023