Stórhólsvegur 9, Dalvík. Hvoll. Byggðasafn Dalvíkur. Húsaskráning Kirstjáns Hjartarsonar. Stórhólsvegur.
Stórhólsvegur 9, Dalvík. Hvoll. Byggðasafn Dalvíkur. Húsaskráning Kirstjáns Hjartarsonar. Stórhólsvegur.

Stórhólsvegur 9, Dalvík

Heiti: Grímsnes
Byggingarár: > 1900
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: ?
Aðrir eigendur:
1938: Jón Halldórsson og Elína Gísladóttir
?: Steingrímur Jónsson og Aðalrós Björnsdóttir
1972: Aðalrós Björnsdóttir
1992: Jón Eyfjörð Steingrímsson
Upphafleg staðsetning: Grímsnes, Látraströnd, Grýtubakkahreppi
Flutt: 1938 á Stórhólsveg 9, Dalvík
Hvernig flutt: Fleytt yfir Eyjafjörð á fleka eða pramma

Saga:

Árið 1938 höfðu hjónin Jón Halldórsson (1868-1946) og Elína (stundum skrifað Elín) Gísladóttir (1869-1950) búið einhvern tíma á Grímsnesi á Látraströnd sem er strandlengjan austan við utanverðan Eyjafjörð, sem tilheyrir Grýtubakkahreppi. Þar bjuggu þau ásamt Steingrími (1902-1972) syni þeirra og konu hans, Aðalrós Björnsdóttur (1910-1991). Talið er að húsið sem þau bjuggu í hafi verið byggt upp úr aldamótunm 1900.1Hvoll. Byggðasafn Dalvíkur. Húsaskráning Kristjáns Hjartarsonar. Stórhólsvegur.

Þó húsið sé ekki stórt eru 11 skráð þar til heimilis árið 1910, þ.e. Jón og Elína, 4 börn þeirra, 4 hjú og einn leigjandi. Auk þess var þar þá einn aðkomumaður.[2]2Manntal 1910. Sótt 9. apríl 2024 af https://manntal.is/.

Árið 1938 taka þau sig upp frá Látraströnd og flytja til Dalvíkur með allt sitt hafurtask og húsið með. Það var sett á fleka eða pramma og því fleytt yfir fjörðinn til Dalvíkur. Húsinu var valinn staður í túninu norðan við Bjarnastaði. Fólkið flyst um stundarsakir inn í Bergþórshvol á meðan steyptur er kjallari undir húsið og það síðan reist þar ofaná sem það stendur enn þann dag í dag. Húsið er úr timbri, klætt með bárujárni á þremur hliðum en hömruðu, sléttu járni á austurhlið og er það einangrað með reiðingi. Það hefur haldið útliti sínu og engar breytingar gerðar á því utanhúss utan að skipt var um glugga í því 1964. Halldór Jónsson mublusmiður á Akureyri, bróðir Steingríms smíðaði gluggana.3Hvoll. Byggðasafn Dalvíkur. Húsaskráning Kristjáns Hjartarsonar. Stórhólsvegur.

Húsið var sett á steyptan kjallara á lóð númer 9 við Stórhólsveg á Dalvík.

Þegar húsið var virt til brunatrygginga árið 1986 var húsið sagt alls 118 fermetrar og því lýst þannig:

Neðri hæð úr steinsteypu, efrihæð úr timbri, klædd járni. Risþak 1,0 m hátt klætt járni. Gólf og skilrúm neðri hæð úr steinsteypu, annað úr timdri. Timburstigi. Neðri hæð skipt í 6 herbergi, forstofu og gang með uppgöngu á 2. hæð. Önnur hæð skipt í 5 herbergi og gang.4Hvoll. Byggðasafn Dalvíkur. Húsaskráning Kirstjáns Hjartarsonar. Stórhólsvegur.

Grímsnes stendur nokkuð á skjön í skipulaginu, er hvorki í húsalínu við önnur hús í götunni né snýr eins og þau, enda stóð það lengi eitt út af fyrir sig áður en farið var að skipuleggja Stórhólsveginn. Húsinu hefur verið vel við haldið og er nú í eigu Jóns Eyfjörð sonar Steingríms Jónssonar sem flutti það á sínum tíma.5Hvoll. Byggðasafn Dalvíkur. Húsaskráning Kristjáns Hjartarsonar. Stórhólsvegur.

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 11. apríl, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 11. apríl, 2024