Lindargata 32 í Reykjavík árið 1971. Ljósm.: Sveinn Þórðarson. Borgarsögusafn. Myndasafn. Mynd nr. SÞÓ ÁBS 830. Sótt 5. maí 2025 af https://borgarsogusafn.is/myndasafn?q=Lindargata+32&p=1&h=eyJmaWxlbmFtZSI6IlPDvsOTIMOBQlMgMDgzMC5qcGciLCJwYWdlIjoxfQ%3D%3D.
Lindargata 32 í Reykjavík árið 1971. Ljósm.: Sveinn Þórðarson. Borgarsögusafn. Myndasafn. Mynd nr. SÞÓ ÁBS 830. Sótt 5. maí 2025 af https://borgarsogusafn.is/myndasafn?q=Lindargata+32&p=1&h=eyJmaWxlbmFtZSI6IlPDvsOTIMOBQlMgMDgzMC5qcGciLCJwYWdlIjoxfQ%3D%3D.

Stóragerði, Ölfusi

Heiti: Stóra-Gerði - Stóragerði
Byggingarár: 1897
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Þorvarður Daníelsson og Ragnheiður Einarsdóttir
Aðrir eigendur:
? : Ágúst Ingimundarson
1993: Sigrún Sigurðardóttir og Óskar Þór Óskarsson
Upphafleg staðsetning: Lindargata 32, Reykjavík
Flutt: 2005 að Stóragerði í Ölfusi
Hvernig flutt: Í heilu lagi
Capture

Lindargata 32, Reykjavík, árið 2001. Ljósm.: Árni Sæberg. Heimild: Freyja Jónsdóttir (2001, 30. október). Lindargata 32 - Stóra Gerði. Morgunblaðið, 89. árg., bls. 42C.

Stóra-Gerði, Ölfus

Stóragerði í Ölfusi um 2012. Ljósm. úr gagnasafni húsafriðunarnefndar.

Saga:

Árið 1897 var virt til brunabóta hús sem Þorvarður Daníelsson (1861-1907) hafði látið byggja við Lindargötu 32 í Reykjavík og nefnt var Stóra-Gerði. Húsið var byggt af bindingi, klætt borðum, pappa og járni á austurgafli og suðurhlið. Járn var á þaki. Niðri í húsinu voru 3 herbergi og eldhús, allt þiljað og málað með einföldum loftum. Ein eldavél var í eldhúsi. Uppi voru fjögur herbergi, öll þiljuð og máluð. Þar var ein eldavél og einn lítill ofn. Kjallari var undir öllu húsinu. Inngönguskúr var við suðurhlið hússins með stiga upp á loftið. Grunnflötur hússins var tæplega 38 fermetrar svo ekki hafa herbergin verið stór.1Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 02-07-1888 til 17-02-1900. Aðfnr. 734. Brunav.nr. 250. Sótt 5. maí 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/734-bok-03-07-1888-til-17-02-1900-adfnr-734.pdf.

Engu að síður verður ekki betur séð en þegar manntal var tekið árið 1901 hafi þrjár fjölskyldur búið í húsinu, alls 17 manns. M.a. bjuggu þar Þorvarður og Ragnheiður Einarsdóttir (1861-1951) kona hans, fjögur börn þeirra, dóttir Ragnheiðar, móðir Þorvarðar og vinnumaður.2Miðstöð stafrænna hugvísinda og lista. (2025). Lindargata nr 12, Reykjavík III, Reykjavík í Reykjavíkurkaupstað 1901. Sögulegt mann- og bæjatal, útg. 1.0. Sótt 5. maí 2025 frá https://smb.mshl.is/m/baer/64858.

Árið 1919 var húsið endurmetið. Þá var Ragnheiður Einarsdóttir (1861-1951) ekkja Þorvarðar, sögð vera eigandi hússins. Þá var búið að setja járn utan á allt húsið og striga og pappír á innveggi. Einnig var búið að stúka kjallara í fjóra geymsluklefa og komnar eru vatns-, gas-, og skolpleiðslur í húsið.3Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 23-11-1917 til 13.11.1920. Aðfnr. 739. Brunav.nr. 250. Sótt 5. maí 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/739-bok-23-11-1917-til-13-11-1920-adfnr-739.pdf.

Enn var húsið endurmetið árið 1943 og var þá enn í eigu Ragnheiðar. Þá var búið að byggja lítinn skúr við húshliðina og inngönguskúrinn hafði verið járnvarinn.4Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 01-07-1943 til 10-05-1945. Aðfnr. 749. Brunav.nr. 250. Sótt 5. maí 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/749-bok-01-07-1943-til-10-05-1945-adfnr-749.pdf.

Árið 1993 keyptu hjónin Óskar Þór Óskarsson og Sigrún Sigurðardóttir húsið. Þau létu gera það upp. M.a. var skipt um allt járn á þaki og veggjum og fékk mansardþakið á húsinu að halda sér. Einnig fjarlægðu þau allan marhálminn sem notaður var til að einangra húsið og allir veggir voru einangraðir með steinull.5Freyja Jónsdóttir (2001, 30. október). Lindargata 32 – Stóra Gerði. Morgunblaðið, 89. árg., bls. 42C.

Herbergin þrjú á hæðinni og eldhúsið var sameinað í eitt rými, en stoðir sem voru í milliveggum látnar halda sér. Einnig bitar í lofti sem höfðu upphaflega verið klæddir, klæðningin var tekin af þeim og þeir bæsaðir dökkir eins og stoðirnar. Efri skápar í eldhúsi voru hreinsaðir og hvítlakkaðir en neðri skápar voru það illa farnir að ekki var hægt að gera við þá.
Óskar Þór og Sigrún létu því sérsmíða neðri skápa, en þeir eru gerðir úr panel og eru sérstaklega smekklegir. Þó að opið sé á milli eldhúss og stofu er eldhúsið afmarkað með borði og yfir því eru skúffur sem áður voru í innréttingu í bakaríi vestur á Snæfellsnesi.
Mörg lög af málningu voru hreinsuð af skúffunum og í ljós kom að þær voru smíðaðar úr ágætis viði. Upphaflegu gólffjalirnar eru á gólfum hæðarinnar en hafa verið unnar upp. Uppi eru tvö svefnherbergi, rúmgott sjónvarpshol og baðherbergi. Þar eru gólfin lögð nýjum gólfborðum.
Til gamans má geta þess að á einum vegg uppi sem er klæddur upphaflega panelnum, eru varðveittir allir þeir litir sem veggurinn hefur verið málaður með frá upphafi.
Skipt var um frárennslisrör út í götu, allar vatns – og miðstöðvarlagnir eru nýjar, einnig voru settir nýir pottofnar. Lagt var fyrir og dregnar nýjar raflagnir í húsið, sett ný rafmagnstafla, rofar og ljósastæði.
Þegar verið var að leggja stéttina frá útidyrum hússins komu í ljós tvær tilhöggnar steintröppur sem talið er að hafi verið við útidyrnar á steinbænum. Þeim var komið fyrir framan við innganginn og sóma sér vel. Mikla vinnu er búið að leggja í lóðina og girðinguna í kringum hana.6Freyja Jónsdóttir (2001, 30. október). Lindargata 32 – Stóra Gerði. Morgunblaðið, 89. árg., bls. 42C.

Þegar fyrir lá að húsið þyrfti að víkja af Lindargötunni vegna nýbygginga fengu þau Sigrún og Óskar Þór heimild til að stofna nýbýli úr landi Ytri-Grímslækjar í Ölfusi árið 2004 og árið eftir var þeim veitt heimild til að nefna það Stóragerði. Það ár var húsið síðan flutt austur í Ölfus þar sem öðru húsi var bætt við það með tengibyggingu á milli. Þar stendur enn og hefur mörgum húsum í svipuðum byggingarstíl nú verið bætt á jörðinni.7Gögn úr gagnasafni húsafriðunarnefndar.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 5. maí, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 5. maí, 2025