Sólvellir 15, Grundarfirði
Saga:
Húsið sem stóð við Vesturgötu 64 á Akranesi var ýmist nefnt Bjargasteinn eða Bjargarsteinn. Húsið var byggt árið 1908. Ekki liggur fyrir hver byggði húsið og ekki er vitað um sögu þess framan af. Á árunum 1921 til 1963 bjuggu hjónin Guðbjörn Sigurðsson (1894-1955) og Sigurbjörg Guðmundsdóttir í húsinu með fjölskyldu sinni en þá keyptu hjónin Jósef (1921-2005) og Elviru Christel (f. Milkowit árið 1928) Einvarðsson húsið.1Gísli S. Sigurðsson (2004). Valsað um Vesturgötu, bls. 215. Árbók Akurnesinga, 4. árg., bls. 205-225.
Í bæja- og húsakönnun á Skipaskaga er húsinu lýst þannig:
Við Vesturgötu 64 var Bjargarsteinn byggður árið 1908, eitt margra húsa svipaðrar gerðar á Akranesi. Það er steinsteyptur kjallari, hæð og portbyggt ris, 5,80 m að lengd og 5,26 m að breidd og með stigahús við vesturhlið, 2,06 m. að lengd og 1,95 m að breidd eða um 34 m2 að grunnfleti. Veggir og þak voru klædd bárujárni en árið 1965 voru veggir múrhúðaðir á járnið. Í kjallara er herbergi, kames og bað en á hæðinni forstofa, gangur, búr, eldhús, herbergi og stofa og tvö herbergi í risi.2Guðmundur L. Hafsteinsson (2009). Perla Faxaflóa. Bæja- og húsakönnun á Skipaskaga, bls. 24. Akranes: Akraneskaupstaður.
Vitað er að búið var í húsinu til ársins 2011 en árið 2008 eignaðist Akraneskirkja húsið. Ætlunin var að rífa húsið til að rýma til fyrir bílastæði við safnaðarheimili kirkjunnar sem byggt var árið 1982 sunnan við Bjargarstein.
Þegar beiðni um niðurrif hússins barst til Húsafriðunarnefndar árið 2008 var ákveðið að gera varðveislumat á húsinu. Niðurstaða varðveislugildis var: „Hús á sérstöðu í umhverfi eða sem byggingarlist. Hefðbundið alþýðuhús sem gæti staðið nánast hvar sem er í gamla bænum á Akranesi.“3Bréf Guðmundar L. Hafsteinssonar til Þorvaldar V. Magnússonar, Tækni- og umhverfissvið Akraneskaupstaðar, dags. 4. apríl 2008. Í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.
Húsafriðunarnefnd fjallaði um beiðni sóknarnefndar Akraneskirkju á fundi sínum í apríl 2008. Nefndin mæltist til að húsið yrði ekki rifið, heldur að það yrði flutt á nýja lóð, þar sem því yrði fundið hlutverk.4Bréf forstöðumanns Húsafriðunarnefndar til sóknarnefndar Akraneskirkju, dags. 9. apríl 2008. Í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.
Árið 2013 eignaðist fyrirtækið S.Ó. húsbyggingar sf. húsið gegn því að fjarlægja það af lóð sinni. Fyrirtækið flutti húsið á lóð sína í Borgarnesi, Sólbakka 27. Þar voru gerðar endurbætur á ytra byrði hússins. Þar sáu hjónin Gunnar Garðarsson og Selma Rut Þorkelsdóttir húsið, ákváðu að kaupa það og flytja að Sólvöllum 15 í Grundarfirði í desember 2014. Í júlí 2015 var veitingastaðurinn Bjargarsteinn Mathús opnaður, en þá hafði verið byggt við Bjargarstein.5Gögn í gagnasafni Minjastofnunar Íslands; Rúmlega aldargamalt húss af Akranesi öðlast nýtt líf í Gundarfirði (2015, 8. apríl). Skessuhorn, 18. árg., 15. tbl., bls. 15; Bjargarsteinn Mathús (ódags.). Sótt 30. ágúst 2023 af http://bjargarsteinn.is/index.php/about/ Veitingastaðurinn er enn opinn og nýtur mikilla vinsælda.
Hér má sjá myndband, sem höfundi barst frá Birni Lúðvíkssyni, sem sýnir hvernig húsið var tekið af grunni sínum á Akranesi og flutt úr bænum: https://www.youtube.com/watch?v=JJSuUahXP6o
Leitarorð: Grundarfjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 19. janúar, 2024
Heimildaskrá
- 1Gísli S. Sigurðsson (2004). Valsað um Vesturgötu, bls. 215. Árbók Akurnesinga, 4. árg., bls. 205-225.
- 2Guðmundur L. Hafsteinsson (2009). Perla Faxaflóa. Bæja- og húsakönnun á Skipaskaga, bls. 24. Akranes: Akraneskaupstaður.
- 3Bréf Guðmundar L. Hafsteinssonar til Þorvaldar V. Magnússonar, Tækni- og umhverfissvið Akraneskaupstaðar, dags. 4. apríl 2008. Í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.
- 4Bréf forstöðumanns Húsafriðunarnefndar til sóknarnefndar Akraneskirkju, dags. 9. apríl 2008. Í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.
- 5Gögn í gagnasafni Minjastofnunar Íslands; Rúmlega aldargamalt húss af Akranesi öðlast nýtt líf í Gundarfirði (2015, 8. apríl). Skessuhorn, 18. árg., 15. tbl., bls. 15; Bjargarsteinn Mathús (ódags.). Sótt 30. ágúst 2023 af http://bjargarsteinn.is/index.php/about/
Deila færslu
Síðast uppfært 19. janúar, 2024



