Sólheimar á Selströnd er húsið sem er næst okkur á myndinni. Hafnarhólmur er uppi á hjallanum. Heimild: Gamlar Standamyndir. Jón Jónsson (2020, 4. október). Sótt 25. nóvember 2025 af https://www.facebook.com/groups/.
Sólheimar á Selströnd er húsið sem er næst okkur á myndinni. Hafnarhólmur er uppi á hjallanum. Heimild: Gamlar Standamyndir. Jón Jónsson (2020, 4. október). Sótt 25. nóvember 2025 af https://www.facebook.com/groups/.

Sólheimar, Skagaströnd

Heiti: Fiskines – Sólheimar
Byggingarár: 1929
Horfið: > 1963
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Árni Ingvarsson og Anna Guðmonsdóttir
Aðrir eigendur:
1946: Júlíus Árnason og Steinunn Guðmundsdóttir
Upphafleg staðsetning:

Fiskines, Selströnd við Steingrímsfjörð

Flutt:

1937 að Hraunhelli í Hafnarhólmslandi á Selströnd við Steingrímsfjörð

Aftur flutt:
1946 á Skagaströnd við Húnaflóa
Hvernig flutt: Fleytt yfir Húnaflóa, í einu lagi eða flekum / Viðirnir fluttir á bát yfir Húnaflóa

Saga:

Árið 1929 reistu hjónin Árni Sigurjón Ingvarsson (1907-1989) og Anna Guðmonsdóttir (1899-1993), þá nýgift, sér hús á Fiskinesi á Selströnd við Steingrímsfjörð. Vegna slæmra útgerðarskilyrða og lendingar þar ákváðu þau að flytja sig um set, taka hús sitt niður og flytja það að Hraunhelli í Hafnarhólmslandi árið 1937. Þar nefndu þau húsið Sólheima.1Björn H. Björnsson (2012, 1. júní). Um húsagang við Húnaflóa, bls. 33. Strandapósturinn, 44. árg., bls. 31-36. Húsið stóð um það bil miðja vegu milli Víkur og Hafnarhólms, en nær sjónum.2Björn H. Björnsson (2025, 21. nóvember). Munnleg heimild.

Þegar Árni og Anna fluttu til Akraness árið 1946 flutti Júlíus Árnason (bróðursonur Önnu, 1922-1985) húsið til Skagastrandar.3Björn H. Björnsson (2012, 1. júní), bls. 33; Minning: Anna Guðmonsdóttir (1989, 2. janúar). Dagblaðið Vísir, 79. og 15. árg., 1. tbl., bls. 27.

Ekki eru allir á einu máli um hver urðu örlög hússins á Skagaströnd. Sumir segja að Júlíus og eiginkona hans, Steinunn Guðmundsdóttir, hafi fleytt húsinu húsinu í flekum yfir Húnaflóa og byggt úr því hús sem nefnt var Sólheimar (síðar Gömlu Sólheimar) á Skagaströnd. Húsið hafi staðið undir Spákonuhöfða, þar sem Skagavegur liggur frá Vetrarbraut í átt að Laufási. Þau hafi síðar byggt húsið Höfðaberg aðeins ofar við sömu götu. Aðrir telja að Júlíus hafi flutt viðina úr Sólheimum frá Selströnd á lítilli trillu og notað þá strax til að byggja Höfðaberg. Flutt var úr Höfðabergi um eða upp úr 1963 og eftir það kviknaði í húsinu.4Halla Árný Júlíusdóttir (2025, 19. nóvember). Munnleg heimild; Skagstrendingar. Sótt 25. nóvember 2025 af Skagstrendingar | Facebook. Myndin hér að neðan er sögð tekin um 1980 og standa þá Sólheimar og Höfðaberg enn.

Á þessari mynd sjást bæði Höfðaberg og Sólheimar. Höfðaberg er næst okkur hægra megin á myndinni, reisulegt hús með grænu, lágu valmaþaki. Í neðra vinstra horninu sést í gömlu Sólheima, sem eru rauðu þaki, líklega skúrþaki. Heimild: Skagaströnd. Mynd vikunnar 12. desember 2014. Sótt 25. nóvember 2025 af https://www.skagastrond.is/is/moya/news/mynd-vikunnar-2644.

 

Leitarorð: Strandir – Steingrímsfjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 27. apríl, 2026

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 27. apríl, 2026