Sólbakki er litla húsið rétt neðan við Búðaveg á Fáskrúðsfirði og ber í Sætún, Búðaveg 39, sem enn stendur. Sætún er ekki stórt hús og sést því vel hversu lítið hús Sólbakki hefur verið. Ljósm. í eigu Magnúsar Þorvaldssonar. Sótt 15. apríl 2026 af Facebook. Gamlar frá Fáskrúðsfirði.
Sólbakki er litla húsið rétt neðan við Búðaveg á Fáskrúðsfirði og ber í Sætún, Búðaveg 39, sem enn stendur. Sætún er ekki stórt hús og sést því vel hversu lítið hús Sólbakki hefur verið. Ljósm. í eigu Magnúsar Þorvaldssonar. Sótt 15. apríl 2026 af Facebook. Gamlar frá Fáskrúðsfirði.

Sólbakki, Búðavegi 37, Fáskrúðsfirði

Heiti: Sólbakki
Byggingarár: 1928
Horfið: Brennt ≈ 1998
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Magnús Eiríksson og Sigurrós Þorgrímsdóttir
Aðrir eigendur:
≈ 1938: Ásmundur Ásmundsson og Jóhanna Sigríður Bjarnardóttir
≈ 1940: Karl Kristinn Jónsson og Ingibjörg Sigbjörnsdóttir
≈ 1944: Jón Kristinn Stefánsson og Hlíf Kristinsdóttir
≈ 1948: Óskar og Nina Sigurðsson
Upphafleg staðsetning:

Búðavegur 37, Fáskrúðsfirði

Hvernig flutt: Í heilu lagi á dráttarvagni

Saga:

Í Sóknarmanntölum Kolfreyjustaðarsóknar frá árunum 1928 til 1953 kemur eftirfarandi fram um íbúa Sólbakka á Fáskrúðsfirði, sem fyrst virðist búið í árið 1928:

Árið 1928 eru þau Magnús Eiríksson (1900-1973) og Sigurrós Þorgrímsdóttir (1898-1982) kona hans fyrst skráð til heimilis á Sólbakka, sem stóð við Búðaveg 37 á Fáskrúðsfirði. Magnús er fyrst sagður sjómaður og útvegsbóndi, en varð síðar vélgæslumaður. Í Sólbakka eru þau skráð til ársins 1937 en þá flytja þangað hjónin Ásmundur Ásmundsson (1887-1966) og Jóhanna Sigríður Bjarnardóttir (Björnsdóttir, 1893-1977). Þau bjuggu þar einungis í tvö ár því Karl Kristinn Jónsson (1905-1997) trésmiður og Ingibjörg Sigbjarnardóttir (1912-1983) taka við árið 1940 og síðan þau Jón Kristinn Stefánsson (1918-1980)  og Hlíf Kristinsdóttir (1922-1987) árið 1944. Árið 1948 fluttu þau Óskar (1924-2002) og Nina Sigurðsson (fædd Pruden, 1923-2009) í húsið. Þar búa þau a.m.k. til ársins 1953 og það ár eru börnin orðin fimm og enn átti þeim eftir að fjölga. Það hefur því verið ansi þröngt setinn bekkurinn í þessu litla húsi.

Árið 1994 stóð til að rífa húsið en þá fékk einn eigenda Hvamms við sunnanverðan Fáskrúðsfjörð að flytja húsið þangað og hugðist nota húsið sem sumarbústað. Sá flutningur fór fram 17. september 1994. Húsið var flutt í heilu lagi á dráttarvagni og sett upp á holt utan við bæina í Hvammi. Ekkert varð þó úr því að endurbyggja húsið og var það brennt fáum árum síðar.1Þjóðskjalasafn Íslands. Sóknarmanntöl; Íslendingabók; Kristín Ágústsdóttir (2005, október). Byggingarár húsa á Búðum í Fáskrúðsfirði, bls. 14. Unnið fyrir Veðurstofu Íslands. Neskaupstað: Náttúrustofa; Oddur Sigurðsson (2026, 14. apríl). Munnleg heimild; Facebook. Gamlar myndir frá Fáskrúðsfirði.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 15. apríl, 2026

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 15. apríl, 2026