Saga:
Um húsið sem nú er númer 4 við Smiðjugötu á Ísafirði segir í húsakönnun sem gerð var árið 2022:
Í apríl 1915 heimilar byggingarnefndin Jónasi Sveinssyni að flytja hús sitt úr Króknum og á lóð smiðjunnar í Smiðjugötu. Þó með því skilyrði að húsið standi í línu við önnur hús í götunni og að á milli þess og næstu húsa séu alltaf 5 álnir. Árið 1916 er húsið einlyft timburhús með risi og kjallara, klætt járni. Áfastur skúr fyrir eldhúsdyrum og útidyrum kjallara. Ekki er vitað með vissu hvenær húsið var upphaflega byggt, en áætla má að það hafi verið um aldamótin 1900.1Bragi Bergsson, Herborg Árnadóttir og Jóna Símonía Bjarnadóttir (2022). Ísafjörður – Neðstikaupstaður og gamli bærinn á Eyrinni. Húsakönnun. [ekkert bls.tal].
Líklega er áfasti skúrinn fyrir eldhúsdyrum ekki lengur til staðar. Í stað hans hafi verið byggt við húsið til austurs (væntanlega árið 1986).
Um það svæði þar sem Smiðjugata 4 stendur nú segir í fyrrnefndri húsakönnun:
Stór hluti húsanna á þessu svæði voru einföld hús alþýðufólks, bárujárnsklædd timburhús, oft byggð af litlum efnum og sparsemi. Einkenni þeirra eru að þau eru lítil og lágreist og án skrauts, með lágu risi eða krossreist og sum portbyggð. Margs konar viðbyggingar og skúrar eru við þessi hús og oft hefur verið bætt við hæð ofan á þau. Húsin hafa þannig stundum þróast með þeim hætti að upphaflega voru þau í dansk-íslenskum stíl en síðar var byggt við þau eftir því sem fjárhagur leyfði og fjölskyldustærð breyttist. Þannig endurspeglar útlit hússins oft blöndu af ýmsum stefnum, ekki síst þeim sem eru ríkjandi þegar bætt var við það. Þessi einföldu timburhús setja mikinn svip á svæðið og dæmi um þau eru t.d. Sundstræti 35, Silfurgata 8, Smiðjugata 4, Tangagata 10 og Tangagata 21.2Bragi Bergsson, Herborg Árnadóttir og Jóna Símonía Bjarnadóttir (2022). Ísafjörður – Neðstikaupstaður og gamli bærinn á Eyrinni. Húsakönnun. [ekkert bls.tal].
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 15. september, 2025
Heimildaskrá
- 1Bragi Bergsson, Herborg Árnadóttir og Jóna Símonía Bjarnadóttir (2022). Ísafjörður – Neðstikaupstaður og gamli bærinn á Eyrinni. Húsakönnun. [ekkert bls.tal].
- 2Bragi Bergsson, Herborg Árnadóttir og Jóna Símonía Bjarnadóttir (2022). Ísafjörður – Neðstikaupstaður og gamli bærinn á Eyrinni. Húsakönnun. [ekkert bls.tal].
Deila færslu
Síðast uppfært 15. september, 2025