Skuld á Sandi í Aðaldal
Græna húsið á myndinni, hægra megin við tankinn, er Skuld árið 1961 enn á upprunalegum stað. Ljósm.: Sigurður Pétur Björnsson. Húsavík fyrr og nú (2018, 17. maí). Sótt 26. apríl 2023 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=10216034737212011&set=gm.2590452054514255
Skuld á Stangarbakka. Ljósm.: Þorgrímur Aðalgeirsson. Húsavík fyrr og nú (2020, 3. október). Sótt 26. apríl 2023 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=1962594890549971&set=pcb.3430749423817843
Skuld við Mararbraut 2 árið 1992. Heimild: Arnhildur Pálmadóttir (2012). Húsakönnun – Miðhafnarsvæðið á Húsavík. Hafnarstétt og Garðarsbraut, bls. 42. Sótt 26. apríl 2023 af https://husakannanir.minjastofnun.is/Husakonnun_183.pdf.
Kaffihúsið Skuld, Hafnarstétt 11 um 2012. Heimild: Arnhildur Pálmadóttir (2012). Húsakönnun – Miðhafnarsvæðið á Húsavík. Hafnarstétt og Garðarsbraut, bls. 42. Sótt 26. apríl 2023 af https://husakannanir.minjastofnun.is/Husakonnun_183.pdf.
Saga:
Þetta hús hefur verið á faraldsfæti síðan það var fyrst flutt og hefur hýst margvíslega starfsemi.

Skuld á Sandi í Aðaldal í janúar 2016. Húsavík fyrr og nú (2016, 28. janúar). Sótt 26. apríl 2023 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=969848886441891&set=pcb.1991415634417903
Upphaflega var það byggt árið 1920 af hjónunum Guðnýju Friðbjarnardóttur og Páli Jónssyni á svokölluðum Stangarbakka á bakkabrúninni vestan Marargötu, þar sem Garðarsbraut og Mararbraut mættust. Þegar brúin yfir Búðarárgil var byggð á níunda áratug síðustu aldar var húsið komið í eigu Húsavíkurkaupstaðar. Húsið stóð á framkvæmdasvæðinu og það því flutt yfir götuna og fékk húsnúmerið 2 við Marargötu. Árið 2005 stóð til að rífa húsið, en þá keypti hvalaskoðunarfyrirtækið Norðursigling húsið. Fyrst var það flutt á athafnasvæði Trésmiðjunnar Reinar þar sem húsið var gert upp og síðan flutt að Hafnarstétt 11 við höfnina á Húsavík, þar sem því var komið fyrir ofan á húsinu Svartabakka. Þar var húsið notað sem kaffihús til ársins 2013 þegar ákveðið var að byggja ofan á Svartabakka. Þá var húsið flutt í geymslu sunnan við Húsavík en síðan var það flutt að Sandi í Aðaldal, þar sem Skuld er nýtt sem sumarhús.1Karl Kristjánsson (1981). Saga Húsavíkur. I. bindi, bls. 164. Húsavík: Húsavíkurkaupstaður; Arnhildur Pálmadóttir (2012). Húsakönnun – Miðhafnarsvæðið á Húsavík. Hafnarstétt og Garðarsbraut, bls. 42; Húsavík fyrr og nú (2020, 3. október). Sótt 26. apríl 2023 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=1962594890549971&set=pcb.3430749423817843;640.is (2016, 3. janúar). Gamla myndin – Húsavíkurbær losnar við Skuld. Sótt 26. apríl 2023 af https://www.640.is/is/frettir/gamla-myndin-husavikurbaer-losnar-vid-skuld; 640.is (2013, 7. október). Skuld á faraldsfæti. Sótt 26. apríl 2023 af https://www.640.is/is/frettir/skuld-a-faraldsfaeti
Eins og fyrr segir byggðu hjónin Baldvina Guðný Friðbjörnsdóttir (1886-1947) og Guðmundur Páll Jónsson (1884-1951) trésmiður húsið sem nefnt var Skuld árið 1920. Nafnið hefur alla tíð haldist á húsinu þrátt við að það hafi verið flutt eða hlutverk þess breyst. Húsið var upphaflega ein hæð, kjallari og loft með risi. Þótt húsið væri ekki stórt að grunnfleti (um 42 m²) sést á manntali frá árinu 1920 að í því bjuggu alls 7 manns. Þau sem lengst bjuggu í Skuld voru hjónin Bergþóra Bergþórsdóttir (1905-1982) og Gísli Friðbjarnarson sjómaður (1895-1974).2Karl Kristjánsson (1981), bls. 164; ; Arnhildur Pálmadóttir (2012), bls. 42; Manntal 1920; Íslendingabók. Um tíma eftir að húsið var flutt yfir Mararbraut stundaði Árni Sigursteinn Haraldsson (1944-2014) húsgagnabólstrun í húsinu ásamt konu sinni Kaju Joensen Óladóttur.3Örn Bárður Jónsson (2014). Minningarorð. Árni Sigursteinn Haraldsson. Sótt 27. apríl 2023 af https://ornbardur.com/2014/05/27/arni-sigursteinn-haraldsson-1944-2014/; Húsavík fyrr og nú.
Leitarorð: Aðaldalur
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 24. febrúar, 2024
Heimildaskrá
- 1Karl Kristjánsson (1981). Saga Húsavíkur. I. bindi, bls. 164. Húsavík: Húsavíkurkaupstaður; Arnhildur Pálmadóttir (2012). Húsakönnun – Miðhafnarsvæðið á Húsavík. Hafnarstétt og Garðarsbraut, bls. 42; Húsavík fyrr og nú (2020, 3. október). Sótt 26. apríl 2023 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=1962594890549971&set=pcb.3430749423817843;640.is (2016, 3. janúar). Gamla myndin – Húsavíkurbær losnar við Skuld. Sótt 26. apríl 2023 af https://www.640.is/is/frettir/gamla-myndin-husavikurbaer-losnar-vid-skuld; 640.is (2013, 7. október). Skuld á faraldsfæti. Sótt 26. apríl 2023 af https://www.640.is/is/frettir/skuld-a-faraldsfaeti
- 2Karl Kristjánsson (1981), bls. 164; ; Arnhildur Pálmadóttir (2012), bls. 42; Manntal 1920; Íslendingabók.
- 3Örn Bárður Jónsson (2014). Minningarorð. Árni Sigursteinn Haraldsson. Sótt 27. apríl 2023 af https://ornbardur.com/2014/05/27/arni-sigursteinn-haraldsson-1944-2014/; Húsavík fyrr og nú.
Deila færslu
Síðast uppfært 24. febrúar, 2024



