Skúlagata 15, Stykkishólmi
Póstmeistarahúsið vinstra megin (sunnan) við kirkjuna. Bakhlið hússins, þ.e. austurhlið. Viðbyggingin sem hýsti saumastofu Guðrúnar Richter sést vel. Ljósm. óþekktur. Ljósmyndasafn Stykkishólms, mynd nr. 776. Sótt 8. febrúar 2025 af https://ljosmyndasafn.stykkisholmur.is
Málverk Guðrúnar Richter af húsum við Aðalgötuna í Stykkishólmi árið 1920. Hægra megin við kirkjuna er Richtershús, gult að lit. Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn, mynd nr. BSH/2008-11-1. Sótt 8. febrúar 2025 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=198870.
Gamla póstmeistarahúsið við Aðalgötu flutt, sennilega í ársbyrjun 1965. Ljósm. óþekktur. Ljósmyndasafn Stykkishólms, mynd nr. 3349. Sótt 8. febrúar 2025 af https://ljosmyndasafn.stykkisholmur.is.
Skúlagata 15 í Stykkishólmi í ágúst 2013. Ljósm.: https://www.google.com/maps.
Saga:
Samúel Richter (1835-1910), kaupmaður og verslunarstjóri (faktor) hjá Tangverslun í Stykkishólmi, reisti sér íbúðarhús við Aðalgötuna í Stykkishólmi árið 1905. Húsið stóð skammt fyrir sunnan gömlu Stykkishólmskirkju, þar sem nú stendur hús sem Póstur og sími reisti árið 1966. Meðan Samúel bjó í húsinu var það ætíð kallað Richtershús.
Í Fasteignamati 1906 er húsinu lýst þannig:
Húsið er 12 x 10 álnir að grunnfleti [um 47 m²]. Á neðri hæðinni eru þrjú íbúðarherbergi og fjögur hliðarherbergi undir súð. Lofthæð herbergja er 4 álnir. Öll herbergi eru máluð og gólf ferniseruð. Veggir eru einangraðir með marhálmi. Á hanabita er lagt gólf. Þar er geymslupláss. Á húsinu eru átta spjaldahurðir og fjórar sléttar. Í húsinu er eldavél og tveir ofnar. Múrpípa er hlaðin úr múrsteini á venjulegan hátt. Á húsinu eru átta 4-rúðu gluggafög með krosspóstum og fimm minni gluggar. Auk þess er einn þakgluggi úr járni. Á norðurgafli eru götudyr með tvöföldum vængjahurðum og tröppum upp að húsinu. Áfastur við austurhliðina er skúr 5½ x 4¾ alin að grunnmáli. Hæð veggja er 3 álnir að framan en 4 álnir uppvið húsið. Úr skúrnum er gengið inn í eldhúsið.1Bragi Jósepsson ( 2004). Hús og vatnsbrunnar í Stykkishólmi á fyrri hluta 20. aldar, bls. 90-91. Stykkishólmi: Mostrarskegg.
Á suðurgafli hússins var lítil skúrbygging með lágu risi, sem var hluti af setustofu hússins. Sunnan við húsið var byggt aflangt, lágt hús sem hýsti pósthús og símstöð.
Eiginkona Samúels faktors var Soffía Emilía Thorsteinsson (1851-1909). Þau höfðu gengið í hjónaband árið 1869, og eignast fimm börn. Einungis það yngsta flutti með þeim í Richtershús ásamt fóstursyni þeirra hjóna. Einnig flutti móðir Samúels með þeim þangað.
Þegar bæði Samúel og Soffía voru fallin frá árið 1910 eignaðist Guðrún (1871-1955) eldri dóttir þeirra húsið. Guðrún var þá fráskilin. Hún eignaðist ekki börn, en ól upp fósturson. Árið 1912 lét hún reisa útbyggingu til suðurs við húsið, réð til sín saumakonur og starfrækti saumastofu til ársins 1916. Þá leigði hún útbygginguna til verslunarreksturs. Guðrún var mikil listakona og var meðal fyrstu listmálara á Íslandi. Hún málaði bæði vatnslita- og olíumálverk, m.a. margar umhverfismyndir frá Stykkishólmi. Guðrún flutti frá Stykkishólmi árið 1919.
Árið eftir keypti William Thomas Möller (1885-1961) póstafgreiðslumaður bæði íbúðarhúsið og viðbygginguna. Hann lengdi viðbygginguna til suðurs til að koma þar fyrir bæði afgreiðslu pósthússins og símstöðvarinnar. Eiginkona hans var þá Kristín Sveinsdóttir Möller (1879-1926). Hún var barnaskólakennari og organisti í kirkjunni. Þegar hún lést árið 1926 leigði Möller húsið út, en bjó áfram í einu herbergi þess. Árið 1927 kvæntist hann Margréti Jónsdóttur Möller (1905-2003), sem verið hafði vinnukona Möllershjónanna.2Bragi Jósepsson (2004). Eitt stykki hólmur eða Stykkishólmsbók hin skemmri, bls. 207-210. Stykkishólmi: Mostrarskegg.
Þegar til stóð að byggja nýtt hús fyrir Póst og síma á sjöunda áratug síðustu aldar þurftu bæði póstmeistarahúsið og póstafgreiðslan að víkja. Kristján Guðmundsson skipasmiður keypti íbúðarhúsið árið 1963 til flutnings. Húsið var flutt að Skúlagötu 15 í Stykkishólmi, þar sem það stendur enn. Húsið var endurvirt á hinum nýja stað í nóvember 1965. Líklega hefur það verið flutt sama ár eða seinni hluta árs 1964.3Ægir Jóhannsson (2010, 2. maí). Tölvupóstur.
Eftir að byggingu nýja hússins við Aðalgötu var lokið árið 1966 var gamla pósthúsið gefið Lionsklúbbi Stykkishólms og flutt að Frúarstíg 2, þar sem það stendur enn.4Sigurður Grétar Jónasson (2021). Húsakönnun. Stykkkishólmur. Deiliskipulagssvæði: austan Aðalgötu, bls. 4. Stykkishólmi: Stykkishólmsbær.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 8. febrúar, 2025
Heimildaskrá
- 1Bragi Jósepsson ( 2004). Hús og vatnsbrunnar í Stykkishólmi á fyrri hluta 20. aldar, bls. 90-91. Stykkishólmi: Mostrarskegg.
- 2Bragi Jósepsson (2004). Eitt stykki hólmur eða Stykkishólmsbók hin skemmri, bls. 207-210. Stykkishólmi: Mostrarskegg.
- 3Ægir Jóhannsson (2010, 2. maí). Tölvupóstur.
- 4Sigurður Grétar Jónasson (2021). Húsakönnun. Stykkkishólmur. Deiliskipulagssvæði: austan Aðalgötu, bls. 4. Stykkishólmi: Stykkishólmsbær.
Deila færslu
Síðast uppfært 8. febrúar, 2025



