Skipasund 88, Reykjavík
Lækjargata 10 b um 1920-1924. Ljósm.: Eggert P. Briem.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Mynd nr. EPB 003 058 4.jpg. Sótt 2. október 2023 af https://ljosmyndasafn.reykjavik.is/.
Lækjargata 10 b brennur 2. júlí 1949. Ljósm.: Sigurður Úlfarsson.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Mynd nr. SIÚ 001 107 4.jpg. Sótt 2. október 2023 af https://ljosmyndasafn.reykjavik.is/.
Lækjargata 10 b flutt í desember 1954. Ljósm.: Ól. K. M.
Morgunblaðið (1954, 12. desember). Ljósm.: Ól. K. M. Morgunblaðið, 276. tbl., bls. 16.
Skipasund 88, austurhlið, árið 2009. Ljósm.: Höfundur.
Saga:
Árið 1907 byggði Sigurjón Sigurðsson (1869-1949) byggingameistari tvílyft reisulegt timburhús á austurmörkum lóðarinnar nr. 10B við Lækjargötu. Áður hafði hann látið flytja svokallað Waageshús, sem staðið hafði þarna, vestar á lóðina, svo hið nýja hús gæti staðið í línu við önnur hús við Lækjargötu.1Drífa Kristín Þrastardóttir og Guðný Gerður Gunnarsdóttir (2005). Húsakönnun. Vonarstræti – Templarasund – Kirkjutorg – Skólabrú – Lækjargata, bls. 20. Reykjavík: Minjasafn Reykjavíkur, skýrsla nr. 126.
Hús Sigurjóns var virt til brunabóta í október 1907. Í virðingunni kemur fram að húsið hafi verið klætt járni á þrjá vegu og á þaki, en eldvarnargafl var að sunnanverðu. Niðri voru 6 íbúðarherbergi, eldhús, gangur og 1 skápur, allt með striga og pappír á veggjum og loftum og allt málað. Þar voru 4 ofnar og 1 eldavél. Uppi voru 5 íbúðarherbergi, eldhús, gangur og 1 skápur, allt þiljað og með striga og pappír á veggjum og loftum, allt málað. Þar voru 5 ofnar og 1 eldavél. Í risi voru 2 íbúðarherbergi, tveir geymsluklefar, 1 gangur og þurrkloft. Herbergi voru með striga og pappír og máluð. Þar var 1 ofn. Kjallari var undir öllu húsinu með steinsteyptu gólfi. Í honum var þvotthús, 5 geymsluklefar og 2 gangar. Þar var einn vatnspottur og dæla með vatnsleiðslu um allt húsið. Einnig voru rafleiðslur um allt húsið. Við vesturhlið hússins var inn- og uppgönguskúr, sem byggður var eins og húsið. Í honum voru 2 gangar og 2 skápar.2Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar 1905-1911. Aðfnr. 736. Sótt 2. október 2023 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar.
Norðan með húsinu, á milli þess og Lækjargötu 10A, lá götuslóði út í Lækjargötu úr Pósthússtræti og því var húsið hornsneitt á norðausturhorni. Eftir að þessi litla gata var aflögð gekk sundið milli húsanna undir nafninu Músasund.3Drífa Kristín Þrastardóttir og Guðný Gerður Gunnarsdóttir (2005). Húsakönnun. Vonarstræti – Templarasund – Kirkjutorg – Skólabrú – Lækjargata, bls. 20. Reykjavík: Minjasafn Reykjavíkur, skýrsla nr. 126.
„Árið 1911 eignaðist Jón Hermannsson (1873-1960) skrifstofustjóri í stjórnarráðinu, sem síðar varð lögreglu- og tollstjóri, Lækjargötu 10b. Jón bjó á efri hæð hússins ásamt fjölskyldu sinni til ársins 1930 en á neðri hæðinni voru þá um tíma bæði lögreglustöð Reykjavíkur og tollstofa.“4Drífa Kristín Þrastardóttir og Guðný Gerður Gunnarsdóttir (2005). Húsakönnun. Vonarstræti – Templarasund – Kirkjutorg – Skólabrú – Lækjargata, bls. 20-21. Reykjavík: Minjasafn Reykjavíkur, skýrsla nr. 126. Eiginkona hans var Ásta Pétursdóttir Hermannsson (f. Thorsteinsson, 1885-1950).
„Árið 1931 var húsið komið í eigu Sigríðar Fjeldsted (1888-1963) og fékk hún leyfi til að láta setja svalir á inngönguskúrinn á vesturhliðinni.“5 Borgarsögusafn Reykjavík. Húsaskrá. Í gagnasafni Minjastofnunar Íslands. Sigríður var ekkja Andrésar Fjeldsted augnlæknis. Samkvæmt auglýsingum sem Sigríður birti í dagblöðum þau ár sem hún átti húsið leigði hún herbergi í húsinu og rak þar matsölu, þar sem hún var með stúlkur í vinnu. Árið 1948 eignaðist Helgi Benediktsson (1899-1971), kaupmaður og útgerðarmaður í Vestmannaeyjum, húsið og leigði það undir skrifstofur og verslun.6 Borgarsögusafn Reykjavík. Húsaskrá. Í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.
Í Morgunblaðinu 5. júlí 1949 segir m.a. í frétt um að stórt timburhús í Miðbænum hafi skemmst í bruna:
Þakhæð timburhússins Lækjargata 10B hjer í bænum, skemmdist mikið af eldi síðastliðið sunnudagskvöld. Neðri hæðir hússins skemmdust talsvert mikið af vatni. Hús þetta er með stærstu timburhúsum Miðbæjarins og leigt út fyrir skrifstofur.
Logn var þetta kvöld og auðveldaði það að sjálfsögðu slökkvistarfið. – Nærliggjandi hús eru einnig úr timbri, en þau voru aldrei í neinni hættu, að því er sjeð var, enda náði eldurinn aldrei til að loga upp í gegnum þakið. Mikill mannfjöldi horfði á bruna þenna.
Slökkvistarfið var nokkrum erfiðleikum bundið vegna reyks. Barðist slökkviliðið við eldinn á þriðju klukkustund, áður en tekist hafði að ráða niðurlögum hans. Slökkviliðið kom um kl. 8,30.
Margt sjálfboðaliða tók þátt í slökkvistarfinu og unnu þeir mikið starf með því að bera út vörur, skrifstofugöng [sic] og annað þessháttar. Heildverslunin Berg er til húsa á fyrstu hæð og hafði þar miklar vörubirgðir geymdar. Í kjallarnum er lampagerð. Ólafur Þorsteinsson, læknir, ljet bílskúr sinn í tje fyrir vörur þær, er bjargað var út úr húsinu. Helgi Benediktsson, Vestmannaeyjum á húsið.7Stórt timburhús í Miðbænum skemmist í bruna (1949, 5. júlí). Morgunblaðið, 149. tbl., bls. 5.
Iðnaðarbankinn keypti húsið árið 1953, lét fjarlægja það árið eftir og reisti fimm hæða steinsteypt hús á lóðinni á árunum 1959-1964.8Borgarsögusafn Reykjavík. Húsaskrá. Í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.
Þegar húsið var flutt í desember 1954 segir m.a. í frétt í Morgunblaðinu:
Þetta stóra hús, sem er Lækjargata 10B verður flutt inn í Langholt og var í ráði í gærdag að leggja af stað með húsið þangað í dag. Er þetta stærsta húsið hér í Reykjavík, sem flutt hefur verið í heilu lagi. Þar sem það stóð, verður byggður Iðnaðarbankinn.
Undanfarið hefur verið að því unnið að undirbúa flutning hússins.
Í gærmorgun var húsið svo dregið af grunni. Var það gert á þann hátt, að undir stórviði þá, er húsið hvíldi á eftir að því hafði verið lyft af grunni, var lögð rennibraut úr stálrörum, sem virkuðu eins og hlunnar undir skip. Síðan var vír brugðið á bakhlið hússins og togvindur tóku í vírinn. Var húsið komið út á vestari akbraut Lækjargötunnar eftir skamma stund. Þar verður fjórum vögnum skotið undir húsið og það síðan dregið eftir Fríkirkjuvegi og Sóleyjargötu inn á Miklubraut. – Hafa nokkrir ljósastaurar verið felldir við Fríkirkjuveginn, svo að hægt sé að komast með húsið.
Áður var það skrifstofu- og verzlunarhús, en verður nú breytt í íbúðarhús.9Skrifstofuhús úr Læjargötu flutt inn í Langholt (1954, 12. desember). Morgunblaðið, 276. tbl., bls. 16.
Húsinu var breytt talsvert þegar frá því var gengið á lóðinni nr. 88 við Skipasund, samkvæmt teikningu Guðmundar H. Þorlákssonar byggingameistara frá 1955, einkum gluggasetningu og settur var stigagangur inn í húsið. Einnig var hornsneiðingin tekin af húsinu. Tvær íbúðir voru á hvorri hæð, í risi voru geymslur, vinnuherbergi og þurrloft en í kjallara voru þvottahús og geymslur. Húsið var sagt vera 157 m² að grunnfleti.10Teikning Guðmundar H. Þorlákssonar af Skipasundi 88, dags. í janúar 1955. Sótt 2. október af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/.
Árið 1963 er húsið brunavirt og segir m.a. í lýsingu að það sé timburhús, tvær hæðir og kjallari, einangrað með gosull, múrhúðað og bárujárnsklætt að utan. Þak er úr timbri með bárujárni yfir. Þegar þessi virðing var gerð var húsið hitað upp með olíukyndingu.
Herbergjaskipan er lýst þannig: Á fyrstu hæð eru anddyri, tvær forstofur, sex íbúðarherbergi og tvö eldhús, tvö baðherbergi með klósetti, ker- og handlaug. Innbyggðir skápar eru á hæðinni og hurðir úr harðviði. Hæðin er máluð og dúkar á gólfum. Gluggar eru með einföldu gleri. Sama herbergjaskipan er á annarri hæð.
Í þakhæð eru stigi, forstofa, fjögur íbúðarherbergi, tvö eldhús, tvö baðherbergi með kerlaugum, handlaugum og klósettum. Í rishæðinni eru innbyggðir skápar og hurðir úr harðviði. Þar er allt málað og dúklagt. Eins og á hæðunum er einfalt gler í gluggum.
Í kjallara eru anddyri, þvottahús, kyndiklefi, sex geymslur og sameign. Stigahúsð er steypt; veggir, tröppur og handrið. Loft og gólf í húsinu eru múrhúðuð, einnig allir innveggir og milliveggir.11Freyja Jónsdóttir (2003, 6. október). Skipasund 88. Morgunblaðið, bls. C 43.
Samkvæmt fasteignaskrá 2023 eru 6 íbúðir skráðar í húsinu.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 28. apríl, 2024
Heimildaskrá
- 1Drífa Kristín Þrastardóttir og Guðný Gerður Gunnarsdóttir (2005). Húsakönnun. Vonarstræti – Templarasund – Kirkjutorg – Skólabrú – Lækjargata, bls. 20. Reykjavík: Minjasafn Reykjavíkur, skýrsla nr. 126.
- 2Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar 1905-1911. Aðfnr. 736. Sótt 2. október 2023 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar.
- 3Drífa Kristín Þrastardóttir og Guðný Gerður Gunnarsdóttir (2005). Húsakönnun. Vonarstræti – Templarasund – Kirkjutorg – Skólabrú – Lækjargata, bls. 20. Reykjavík: Minjasafn Reykjavíkur, skýrsla nr. 126.
- 4Drífa Kristín Þrastardóttir og Guðný Gerður Gunnarsdóttir (2005). Húsakönnun. Vonarstræti – Templarasund – Kirkjutorg – Skólabrú – Lækjargata, bls. 20-21. Reykjavík: Minjasafn Reykjavíkur, skýrsla nr. 126.
- 5Borgarsögusafn Reykjavík. Húsaskrá. Í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.
- 6Borgarsögusafn Reykjavík. Húsaskrá. Í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.
- 7Stórt timburhús í Miðbænum skemmist í bruna (1949, 5. júlí). Morgunblaðið, 149. tbl., bls. 5.
- 8Borgarsögusafn Reykjavík. Húsaskrá. Í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.
- 9
- 10
- 11
Deila færslu
Síðast uppfært 28. apríl, 2024



