Lyngholt, Vatnsendahæð, um 1950. Ljósmynd í eigu Ingimars H. Ingimarssonar birt með leyfi hans.
Lyngholt, Vatnsendahæð, um 1950. Ljósmynd í eigu Ingimars H. Ingimarssonar birt með leyfi hans.

Skipasund 81, Reykjavík

Heiti: Lyngholt
Byggingarár: 1944-1945
Upphafleg notkun: Sumarbústaður
Fyrsti eigandi: Sigþrúður Helgadóttir og Ingimar Guðmundsson
Aðrir eigendur:
1955: Skúli Guðmundsson og Málfríður Pálsdóttir
Upphafleg staðsetning: Vatnsendahæð, Kópavogi
Flutt: 1952 að Skipasundi 81, Reykjavík
Lyngholt_03

Lyngholt, Vatnsendahæð, um 1950. Ljósmynd í eigu Ingimars H. Ingimarssonar birt með leyfi hans.

Lyngholt_01

Skipasund 81 á teikn. Sigvalda Thordarson, dags. 8. ágúst 1951. Sótt 3. júní 2025 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/archives/5000-A%C3%B0aluppdr%C3%A6ttir/?q=%22Skipasund%2081%22. Á teikningunni sýnir Ingimar H. Ingimarsson með gulum lit stærð og lögun Lyngholts.

Skipasund 81 2

Skipasund 81, Reykjavík, á teikn. Bjarna Óskarssonar, dags. 3. desember 1955. Sótt 3. júní 2025 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/.

Skipasund 81 3

Saga:

Í desember 1952 var hús við Skipasund 81 í Reykjavík virt til brunabóta. Í matsgjörðinni var húsið sagt aðflutt íbúðarhús af Vatnsendahæð. Eigandi hússins var sagður vera Ingimar Guðmundsson. Húsið var byggt úr timbri, ein hæð og ris með kvisti. Það stóð á steinsteyptum kjallara. Húsið var járnklætt að utan, en klætt að innan með texi, pappa og timbri, sumt af því var múrhúðað. Þakið var úr timbri, pappa og bárujárni. Á hæðinni voru tvö íbúðarherbergi, eldhús, baðherbergi, anddyri og innri forstofa. Allt var þetta veggfóðrað og málað. Eldhús var málað með dúk á gólfi. Á þakhæð voru tvö íbúðarherbergi, eldhús og gangur. Í kjallara voru sömuleiðis tvö íbúðarherbergi, eldhús, steypibaðklefi, anddyri, innri forstofa og stigahús, allt málað og dúklagt. Einnig var þar þvottahús með olíumiðstöð og geymsla undir stiga og útitröppum.1Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 30-06-1950 til 30-12-1953. Aðf.nr. 4341. Brunav.nr.: 5999.

Á teikningu Sigvalda Thordarson arkitekts af húsinu dags. 18. ágúst 1951 kemur fram að um sé að ræða stækkun og breytingu á sumarhúsi.2Teikningavefur Reykjavíkurborgar. Skipasund 81. Sótt 3. júní 2025 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/archives/5000-A%C3%B0aluppdr%C3%A6ttir/?q=%22Skipasund%2081%22.

Uppruna hússins má rekja til þess að á árunum 1944 til 1945 byggðu hjónin Sigþrúður Helgadóttir (1915-1978) og Ingimar Guðmundsson (1913-2001), kaupmaður í Reykjavík, sér sumarhús á Vatnsendahæð á 1 hektara leigulóð, sem þau fengu á leigu frá Landssímanum til 50 ára. Lóðin var skammt vestan lóða sem nú eru númer 37 og 47 við Álfkonuhvarf. Efnið í húsið kom að mestu leyti úr stórri timburskemmu, sem stóð við Háteigsveg skammt frá Sjómannaskólanum þar sem Kveldúlfur var með fiskverkun, sem þau keyptu til niðurrifs, rifu skemmuna og fluttu efnið upp á Vatnsendahæð þar sem sumarhúsið reis og þau nefndu Lyngholt.3Ingimar Haukur Ingimarsson (2025, 5. ágúst). Tölvupóstur.

Þarna dvaldi fjölskyldan á sumrin allt þar til húsið var flutt til Reykjavíkur vorið 1952. Oft var gestkvæmt í Lyngholti. Margir gistu í lengri eða skemmri tíma og jafnvel sumarlangt.

Áður en húsið var flutt var steyptur kjallari undir það í Skipasundi og húsið jafnframt stækkað og hækkað. Byrjað var á því að ganga frá húsinu að utan og gera kjallarann íbúðarhæfan. Þangað fluttu fyrstu íbúar hússins, hjónin Loftur Jónsson (1926-2003) og Svava L. Valdemarsdóttir (1929-2020) ásamt dóttur þeirra, sem tóku húsið á leigu. Leigugjaldið var að Loftur kláraði að innrétta aðalhæð og ris hússins.4Ingimar Haukur Ingimarsson (2025, 5. ágúst); Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Manntal í Reykjavík 1951 III. 6. hluti: Njarðargata – Skipasund. Sótt 3. júní 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Manntol/M_1951-1960/manntal-i-reykjavik-1951-iii-6.-hluti.pdf. Þess má geta að Ingimar greiddi Sigvalda Thordarson arkitekt fyrir teikningar af húsinu með ökukennslu.5Hélt aldrei að ég myndi lifa svona lengi – Ingimar Guðmundsson, fyrrverandi kaupmaður, lítur til baka yfir öldina (1999, 31. desember). Dagblaðið Vísir, 89. og 25. árg., 301. tbl., bls. 48-49.

Ingimar Haukur, sonur þeirra Sigþrúðar og Ingimars man vel eftir því þegar húsið var flutt niður Breiðholtið og Blesugrófina og eftir Langholtinu niður í Skipasund. Honum segist svo frá:

Ég man að helsta hindrunin var háspennulína sem þveraði Útvarpsstöðvarveginn skammt frá Breiðholtsbænum. Húsið á flutningavagninum var of hátt til að það kæmist undir línuna og allt var stopp. En menn dóu ekki ráðalausir. Fundin var löng spýta og á enda hennar var sett þverspýta. Síðan klifraði móðurbróðir minn, Axel Helgason upp á þak hússins og sest klofvega yfir mæninn með stóru spýtuna á milli handanna. Vagninum og húsinu, þar sem Axel situr, er ekið rólega í átt að háspennulínunni, hann rennir þverspýtunni undir báðar háspennulínurnar og lyftir þeim upp þannig að húsið komst undir línurnar og í gegnum þessa hindrun. Ég hef oft velt því fyrir mér hvort það hafi verið straumur á línunum – það gæti hafa verið reyndin. Faðir minn, ættaður að vestan, sagði gjarnan ef eitthvað stóð tæpt eða gekk illa – „látum vaða“ – og oftar en ekki gekk það upp. Svona vinnulag dytti engum í hug að stunda í dag. En þetta var kallað að kunna að redda sér – og þetta reddaðist!6Ingimar Haukur Ingimarsson (2025, 8. ágúst). Tölvupóstur.

Árið 1954 seldu þau Sigþrúður og Ingimar húsið. Eignuðust þá Skúli Guðmundsson (1897-1986) og Málfríðar Pálsdóttur (1898-1985) það. Í desember 1955 var samþykkt breyting á þakhæð hússins samkvæmt teikningu Bjarna Óskarssonar byggingafræðings. Þá fékk húsið það útlit sem það hefur í dag, með hallandi þaki sem nær niður á hlið hússins öðrum megin. Í íbúðinni á efri hæð hússins bjó Guðmundur (1930-1973) sonur Skúla og Málfríðar Pálsdóttur með konu sinni Hjördísi Hjörleifsdóttur. Þess má geta að Málfríður bjó í húsinu ævina á enda.7Ingimar Haukur Ingimarsson (2025, 5. ágúst); Teikningavefur Reykjavíkurborgar. Skipasund 81. Sótt 3. júní 2025 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/archives/5000-A%C3%B0aluppdr%C3%A6ttir/?q=%22Skipasund%2081%22; Minning: Skúli Guðmundsson, Vífilsmýrum (1986, 15. júní). Morgunblaðið, 72. árg., 131. tbl., bls. 36; Dánartilkynning (1985, 6. febrúar). Morgunblaðið, 72. árg., 30. tbl., bls. 46.

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 11. ágúst, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 11. ágúst, 2025