Skipasund 36, Reykjavík
Hluti úr teikningu Guðmundar H. Þorlákssonar dags. í apríl 1946 þar sem sýnd er stækkun á húsinu Háteig. Heimild: Teikningavefur Reykjavíkurborgar. Skipasund 36. Sótt 18. apríl 2024 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/.
Skipasund 36 í Reykjavík í apríl 2024. Ljósm.: Höfundur.
Saga:
Segja má að húsið sem nú er á lóð númer 36 við Skipasund hafi tekið miklum hamskiptum síðan það var byggt árið 1907 á allt öðrum stað. Það ár lét Guðmundur Jafetsson (1845-1918) byggja fyrir sig húsið Háteig á erfðafestulandi sínu í Austurmýri við Rauðarárholt. Húsin í Háteigi stóðu þar sem gatan Langahlíð er nú (2024) á milli húsa númer 36 og 38 við Háteigsveg.
Húsi Guðmundar var líst þannig þegar það var brunavirt í maí 1907:
Hús þetta er einlypt með 3¾ álna risi. Það er byggt af binding, klætt utan m. plægðum 1″ borðum, pappa, listum og járni þar yfir og m. járnþaki á plægðri 1″ borðasúð með pappa á milli. … Niðri eru 3 íbúðarherbergi, eldhús og 1 fastur skápur, sem allt er þiljað og herbergin m. striga og pappír á veggjum og loptum, allt málað. Þar eru 2 ofnar og 1 eldavjel. ….1Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunavirðingar húsa 1905 til 1911. Aðfnr. 736. Brunavirðinganr. 1122, dags. 13. maí 1907. Sótt 18. apríl 2024 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/736-bok-22-11-1905-til-28-03-1911-adfnr-736.pdf.
Húsið sjálft var 40 fermetrar. Við vesturgafl hússins var um 6 fermetra inngönguskúr, sem var byggður eins og húsið og hólfaður var í tvennt.2Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunavirðingar húsa 1905 til 1911.
Árið 1914 seldi Guðmundur hjónunum Halldóri Kr. Þorsteinssyni (1877-1966) og Ragnhildi Pétursdóttur (1880-1961) land sitt og húsin sem á því voru. Eftir að Halldór fékk leyfi til að stækka lóð sína reistu þau hjón glæsilegt íbúðarhús sem enn stendur og er númer 36 við Háteigsveig og ber nafnið Háteigur. Eftir það var gamla húsið frá 1907 kallað Litli Háteigur og nýtt sem íbúðarhús fyrir vinnufólk Halldór og Ragnhildar og síðar var húsið í útleigu.
Árið 1945 var ákveðið að leggja Lönguhlíð og stóð þá Litli Háteigur í götustæðinu. Þá leigði Kristinn H. Kristjánsson (1892-1952) húsin. Hann keypti þá húsin og flutti þau að Skipasundi 36, þar sem húsið stendur enn í mjög breyttri mynd.3Anna Guðný Gröndal (2013, september). Búskapur á Háteigi 1920-1940. Ritgerð til BA-prófs í sagnfræði. Sótt 18. apríl 2024 af https://skemman.is/; Manntal í Reykjavík 1945 og 1946. Sótt 19. apríl 2024 af https://www.borgarskjalasafn.is/is/midlun/manntol-reykjavikur/manntol-i-reykjavik-1941-1950.
Á teikningavef Reykjavíkurborgar má finna teikningu Guðmundar H. Þorlákssonar dags. í apríl 1946 þar sem sýnd er stækkun á húsinu Háteig, sem flutt var á lóðina Skipasund 36. Teikningin er gerð fyrir Kristinn Kristjánsson.4Teikningavefur Reykjavíkurborgar. Skipasund 36. Sótt 18. apríl 2024 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/. Ekki er ljóst hvort húsið var flutt á lóðina og síðan stækkað skömmu síðar, eða hvort húsið var stækkað um leið og það var sett niður á nýrri lóð. Síðan hefur húsið verið stækkað í nokkrum áföngum og lítið eftir af upprunalegri gerð þess.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 28. apríl, 2024
Heimildaskrá
- 1Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunavirðingar húsa 1905 til 1911. Aðfnr. 736. Brunavirðinganr. 1122, dags. 13. maí 1907. Sótt 18. apríl 2024 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/736-bok-22-11-1905-til-28-03-1911-adfnr-736.pdf.
- 2Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunavirðingar húsa 1905 til 1911.
- 3Anna Guðný Gröndal (2013, september). Búskapur á Háteigi 1920-1940. Ritgerð til BA-prófs í sagnfræði. Sótt 18. apríl 2024 af https://skemman.is/; Manntal í Reykjavík 1945 og 1946. Sótt 19. apríl 2024 af https://www.borgarskjalasafn.is/is/midlun/manntol-reykjavikur/manntol-i-reykjavik-1941-1950.
- 4Teikningavefur Reykjavíkurborgar. Skipasund 36. Sótt 18. apríl 2024 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/.
Deila færslu
Síðast uppfært 28. apríl, 2024

