Skíðastaðir – Skíðahótelið, Hlíðarfjalli, Akureyri
Grunnmynd Guðmundar Hannessonar af spítalanum. Heimild: Héraðsskjalasafnið á Akureyri (2013, 22. febrúar). Spítali verður að skíðahóteli.
Spítalinn er vinstra megin á myndinni. Hægra megin er viðbygging við hann frá 1920. Það hús stendur enn og er númer 13 við Spítalaveg. Heimild: Hanna Rósa Sveinsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (2009, maí). Byggða- og húsakönnun við Spítalaveg á Akureyri, bls. 25.
Verið að endurbyggja spítalann sem skíðahótel í Hlíðarfjalli. Heimild: Hanna Rósa Sveinsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (2009, maí). Byggða- og húsakönnun við Spítalaveg á Akureyri, bls. 10.
Skíðastaðir í Hlíðarfjalli, líklega um 2012. Heimild: Arnór Bliki Hallmundsson (2012, 16. mars). Hús dagsins nr. 140: Skíðastaðir í Hlíðarfjalli (áður Sjúkrahús Akureyrar).
Saga:
Guðmundur Hannesson héraðslæknir og síðar frumkvöðull í bæjarskipulagi hér á landi hafði forgöngu um það að árið 1898 var hafist handa við að reisa sjúkrahús á Akureyri eftir teikningu danska arkitektsins L. Thuren. Spítalinn var tekinn í notkun árið eftir. Segja má að spítalinn hafi verið eitt fyrsta húsið í landinu þar sem brá fyrir greinilegum einkennum hinum svonefnda sveitserstíl, sem einkennist m.a. af skrautlegum umbúnaði glugga og hurða, þakskeggi sem slúttir fram yfir útveggi, skrauti á þakbrúnum og sperruendum.1Finnur Birgisson og Hanna Rósa Sveinsdóttir (2003). Akureyri – höfuðstaður Norðurlands, bls. 181-184. Í Hjörleifur Stefánsson, Kjell H. Halvorsen og Magnús Skúlason ritnefnd, Af norskum rótum – gömul timburhús á Íslandi, bls. 174-207. Reykjavík: Mál og menning; Hanna Rósa Sveinsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (2009, maí). Byggða- og húsakönnun við Spítalaveg á Akureyri, bls. 9. Spítalinn „… var þó ekki dæmigerður sveitser því hann var aðeins einlyftur og ýmsum bæjarbúum þótti hann meira að segja lágkúrulegur.“2Finnur Birgisson og Hanna Rósa Sveinsdóttir (2003), bls. 183-184. Spítalinn stóð sunnan við húsið sem er Spítalavegur 13 í dag (2024), enda var það hús reist sem viðbygging norðan við spítalann.3Hanna Rósa Sveinsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (2009, maí), bls. 10.
Húsið var eitt það vandaðasta á Akureyri- og á landinu öllu. Var það búið vatnsleiðslu og vatnssalernum og miðstöðvarkyndingu, en slíkt varð ekki almennt í húsum fyrr en um 1920. Snorri Jónsson timburmeistari stjórnaði byggingu hússins- en danskur arkitekt L. Thuren teiknaði það en ekki er talið ólíklegt að Guðmundur hafi verið með í ráðum í hönnun hússins. … Sjúkrahúsið á Spítalavegi þjónaði Akureyringum og nærsveitarmönnum fram á miðja 20.öld en var orðið þröngt og hrörlegt 1953 þegar nýtt og stórglæsilegt Fjórðungssjúkrahús tók við hlutverki þess.4Arnór Bliki Hallmundsson (2012, 16. mars). Hús dagsins nr. 140: Skíðastaðir í Hlíðarfjalli (áður Sjúkrahús Akureyrar).
Spítalahúsið var rifið 1956 og viðir úr því notaðir til að reisa Skíðaskálann í Hlíðarfjalli sem hefur í megindráttum sama lag og útlit og spítalinn. Grunnur var steyptur og akvegur gerður sumarið 1955, en viðirnir fluttir og húsið gert fokhelt 1956.5Héraðsskjalasafnið á Akureyri (2013, 22. febrúar). Spítali verður að skíðahóteli.
Enn setur skíðaskálinn Skíðastaðir svip sinn á skíðasvæðið í Hlíðarfjalli, „… einlyft timburhús á háum steyptum kjallara með háu risi og tveimur burstum á göflum. Langur, flatur kvistur er á miðálmunni.“6Arnór Bliki Hallmundsson (2012, 16. mars).
Rekstur skíðahótels hófst í skálanum árið 1962. Húsið er 2450 fermetra á þremur hæðum og stendur í 506 metra hæð yfir sjávarmáli. Enn er húsið aðal þjónustumiðstöð Hlíðarfjalls. Þar er miðasala, veitingarstaður og snyrtingar fyrir þá sem skíðasvæðið heimsækja.7Hlíðarfjall. Sótt 30. mars 2024 af https://www.hlidarfjall.is/is/fjallid/um-hlidarfjall; Akureyrarbær. Halló Akureyri! Sótt 30. mars 2024 af https://www.visitakureyri.is/is/moya/extras/allt-sem-thu-oskar-ther/skiing.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 25. október, 2024
Heimildaskrá
- 1Finnur Birgisson og Hanna Rósa Sveinsdóttir (2003). Akureyri – höfuðstaður Norðurlands, bls. 181-184. Í Hjörleifur Stefánsson, Kjell H. Halvorsen og Magnús Skúlason ritnefnd, Af norskum rótum – gömul timburhús á Íslandi, bls. 174-207. Reykjavík: Mál og menning; Hanna Rósa Sveinsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (2009, maí). Byggða- og húsakönnun við Spítalaveg á Akureyri, bls. 9.
- 2Finnur Birgisson og Hanna Rósa Sveinsdóttir (2003), bls. 183-184.
- 3Hanna Rósa Sveinsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (2009, maí), bls. 10.
- 4Arnór Bliki Hallmundsson (2012, 16. mars). Hús dagsins nr. 140: Skíðastaðir í Hlíðarfjalli (áður Sjúkrahús Akureyrar).
- 5
- 6Arnór Bliki Hallmundsson (2012, 16. mars).
- 7Hlíðarfjall. Sótt 30. mars 2024 af https://www.hlidarfjall.is/is/fjallid/um-hlidarfjall; Akureyrarbær. Halló Akureyri! Sótt 30. mars 2024 af https://www.visitakureyri.is/is/moya/extras/allt-sem-thu-oskar-ther/skiing.
Deila færslu
Síðast uppfært 25. október, 2024



