Skerplugata 6, Reykjavík
Saga:
Í skrá Borgarsögusafn um hús í Reykjavík kemur fram að Pétur Þórðarson (1870-1937) skipstjóri byggði einlyft timburhús með porti á lóð sem hann átti austan Klapparstígs og norðan Lindargötu í Reykjavík. Húsið hefur líklega staðið spölkorn austan við húsið sem er númer 5a við Klapparstíg í dag (2025). Í upphafi var húsið skráð sem Klapparstígur 24, en það breyttist fljótlega í Klapparstíg 5a.1Borgarsögusafn. Húsaskrá Reykjavíkur.
Þegar húsið var brunavirt í september 1908 voru útveggir og þak sagt klætt járni á plægðum borðum. Niðri í húsinu voru þrjú íbúðarherbergi, eldhús, búr, 2 ofnar, ein eldavél og einn fastur skápur. Uppi voru einnig þrjú herbergi og eldhús, 2 ofnar og ein eldavél. Öll herbergi voru þiljuð, með striga og pappír á veggjum og loftum og allt málað. Kjallari með steinsteyptu gólfi var undir öllu húsinu, sem hólfaður var í tvennt. Við vesturgafl hússins var inngönguskúr með risi og kjallara, byggður eins og húsið og hólfaður í þrennt. Grunnflötur hússins ásamt bíslagi hefur verið rúmir 45 fermetrar.2Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 22-22-1905 til 28-03-1911. Aðfnr. 736. Brunav.nr. 1194. Sótt 24. janúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/736-bok-22-11-1905-til-28-03-1911-adfnr-736.pdf.
Eiginkona Péturs skipstjóra og útgerðarmanns var Elín Teitsdóttir (1888-1917). Í manntali sem tekið var árið 1910 sést að þá bjuggu þau Pétur og Elín í húsinu. Árið eftir eignuðust þau dreng. En þegar Elín lést sex árum síðar eftir langa sjúkralegu fór hann til móðurforeldra sinni þar sem hann ólst upp. Einnig bjó í húsinu maður að nafni Þorgeir Pálsson (1878-1954) sjómaður og síðar útgerðarmaður ásamt aldraðri móður sinni, Sigríði Jónsdóttur (1841-1924). Sömuleiðis var þar til heimilis ekkjan Guðbjörg Jósepsdóttir (1877-1955) ásamt þremur kornungum börnum sínum.3Manntal 1910. Sótt 24. janúar 2025 af https://manntal.is/; Kristján A. Jónsson (1981, 1. desember). Faxi, 41. árg., 7. tbl., bls. 187.
Árið 1944 var húsið fært frá lóðinni númer 5a við Klapparstíg á lóð númer 9a við sömu götu. Húsið var einungis flutt um 50 m sunnar og stóð nú nær Lindargötu, bak við hús sem er númer 9 við Klapparstíg í dag (2025). Á teikningu Einars Erlendssonar af húsinu þegar það var flutt sést að því hefur ekki verið mikið breytt við þá framkvæmd. Á teikningunni kemur fram að hlutafélagið Klappareignin á þá húsið. Klappareignin hf. var fasteignafélag Timburverzlunarinnar Völundar hf.4Teikningavefur Reykjavíkurborgar. Klapparstígur 9. Teikning Einars Erlendssonar, dags. nóvember 1944. Sótt 24. janúar 2025 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/archives/5000-A%C3%B0aluppdr%C3%A6ttir/?q=%22Klapparst%C3%ADgur%209%22; Borgin kaupi Völundareignir við Klapparstíg og Lindargötu (1986, 26. nóvember). Morgunblaðið, 267. tbl., bls. 2.
Aftur var húsið flutt árið 1989. Þá var farið með það að Skerplugötu 6 í Litla Skerjafirði í Reykjavík. Þar var húsið sett á nýjan kjallara, húsið lengt og sólskáli byggður við suðurhlið þess. Það var Páll V. Bjarnason arkitekt sem teiknaði þær breytingar.5Teikningavefur Reykjavíkurborgar. Skerplugata 6. Teikning Páls V. Bjarnasonar, dags. í mars 1989. Sótt 24. janúar 2025 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/archives/5004-S%C3%A9ruppdr%C3%A6ttir/?q=%22Skerplugata%206%22.
Leitarorð: Skerjafjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 24. janúar, 2025
Heimildaskrá
- 1Borgarsögusafn. Húsaskrá Reykjavíkur. ↩︎
- 2Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 22-22-1905 til 28-03-1911. Aðfnr. 736. Brunav.nr. 1194. Sótt 24. janúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/736-bok-22-11-1905-til-28-03-1911-adfnr-736.pdf. ↩︎
- 3Manntal 1910. Sótt 24. janúar 2025 af https://manntal.is/; Kristján A. Jónsson (1981, 1. desember). Faxi, 41. árg., 7. tbl., bls. 187. ↩︎
- 4Teikningavefur Reykjavíkurborgar. Klapparstígur 9. Teikning Einars Erlendssonar, dags. nóvember 1944. Sótt 24. janúar 2025 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/archives/5000-A%C3%B0aluppdr%C3%A6ttir/?q=%22Klapparst%C3%ADgur%209%22; Borgin kaupi Völundareignir við Klapparstíg og Lindargötu (1986, 26. nóvember). Morgunblaðið, 267. tbl., bls. 2. ↩︎
- 5Teikningavefur Reykjavíkurborgar. Skerplugata 6. Teikning Páls V. Bjarnasonar, dags. í mars 1989. Sótt 24. janúar 2025 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/archives/5004-S%C3%A9ruppdr%C3%A6ttir/?q=%22Skerplugata%206%22. ↩︎
Deila færslu
Síðast uppfært 24. janúar, 2025
