Skerplugata 3, Reykjavík
Brú undirbúin undir flutning í október 1991. Sótt 16. febrúar 2026 af 27.jpg | - FotoWeb.
Skerplugata 3, Reykjavík, árið 2016. Ljósm.: Birna Gunnarsdóttir. Sótt 16. febrúar 2026 af Facebook.
Saga:

Teikning Þorleifs Ófeigssonar frá 1927 af Brú á Þormóðsstaðabletti. Heimild: Salvör Jónsdóttir og Anna Lísa Guðmundsdóttir (2022). Stúdentagarðar við Eggertsgötu. Fornleifaskrá og húsakönnun, bls. 14. Borgarsögusafn Reykjavíkur. Skýrsla nr. 220.
Í desember 1927 samþykkti borgarstjórinn í Reykjavík, Knud Ziemsen, teikningu Þorleifs Ófeigssonar byggingarmeistara að tveggja hæða íbúðarhúsi Sigurðar Ólafssonar rakara á 1,3 ha lóð á Þormóðsstaðabletti sunnan við Litlubrekku, en húsið var nefnt Brú. Húsið var brunavirt árið 1928, þá ófullgert. Það var tvílyft með risi, byggt úr bindingi og bárujárnsklætt og kjallari var undir hálfu húsinu.Árið 1937 samþykkti byggingarnefnd kvist á rishæð hússins, skv. teikningum Jóns Sveinssonar. Árið 1941 voru breytingar gerðar á innréttingum 2. hæðar og glugga bætt á norðurhlið þeirrar hæðar skv. teikningum Jóns Sveinssonar.1Salvör Jónsdóttir og Anna Lísa Guðmundsdóttir (2022). Stúdentagarðar við Eggertsgötu. Fornleifaskrá og húsakönnun, bls. 14-15. Borgarsögusafn Reykjavíkur. Skýrsla nr. 220.
Á neðri hæð voru 3 íbúðarherbergi, eldhús, búr, baðherbergi, anddyri og tveir gangar. Uppi voru 4 íbúðarherbergi og tveir gangar. Það vekur athygli að lyfta er í húsinu með tilheyrandi skáp. Loftið var óinnréttað.2Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 21-01-1928 til 21-06-1930. Aðf.nr. 744. Sótt 16. febrúar 2026 af vef Borgarskjalasafns.
Þegar húsið var virt aftur í nóvember 1940 var herbergjaskipan sú sama á neðri hæð, en tekið fram að vatnssalerni væri á baðherbergi. Á efri hæð voru þá 3 íbúðarherbergi, eldhús, steypubaðklefi með vatnssalerni og tveir gangar. Á rishæðinni var sama herbergjaskipan og á efri hæð hússins.3Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 21-06-1937 til 21-04-1942. Aðf.nr. 747. Sótt 16. febrúar 2026 af vef Borgarskjalasafns.
Húsið, sem nefnt var Brú, stóð þar sem nú er Suðurgata 121.
Í manntali 1930 kemur fram að þá eru hjónin Sigurður Ólafsson (1885-1969) hárskeri og Halldóra Jónsdóttir (1884-1947) til heimilis á Brú með átta börn sín. Auk þess eru tvær konur skráðar í húsinu, verkakona og saumakona.4Borgaraskjalasafn Reykjavíkur. Manntal í Reykjavík 1930. 2. hluti: Bræðraborgarstígur – Holtavegur. Sótt 16. febrúar 2026 af vef Borgarskjalasafnsins.
Sigurður Ólafsson var einn af frumherjum í hárskera- og rakaraiðn hér á landi. Hann hóf rekstur rakarastofu árið 1907 eftir að hafa numið iðnina í Danmörku. Fyrst var hann með stofuna í Hafnarstræti 16, en flutti sig árið 1921 í nýbyggt Eimskipafélagshúsið þar sem hann rak stofu sína þar til hann hætti að vinna.5„Íslendingar eiga líka að sýna það utan á sjer, að þeir sjeu menningarþjóð“ (1947, 24. maí). Morgunblaðið, 33. árg., 110. tbl., bls. 6; Páll Bergþórsson (1969, 1. maí). Minning: Sigurður Ólafsson rakarameistari. Morgunblaðið, 56. árg., 95. tbl., bls. 22-23.
Þegar reisa átti stúdentagarða við Suðurgötu þurfti húsið að víkja árið 1991. Það var flutt að Skerplugötu 3, Reykjavík, þar sem það stendur enn.6Salvör Jónsdóttir og Anna Lísa Guðmundsdóttir (2022), bls. 40.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 16. febrúar, 2026
Heimildaskrá
- 1Salvör Jónsdóttir og Anna Lísa Guðmundsdóttir (2022). Stúdentagarðar við Eggertsgötu. Fornleifaskrá og húsakönnun, bls. 14-15. Borgarsögusafn Reykjavíkur. Skýrsla nr. 220.
- 2Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 21-01-1928 til 21-06-1930. Aðf.nr. 744. Sótt 16. febrúar 2026 af vef Borgarskjalasafns.
- 3Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 21-06-1937 til 21-04-1942. Aðf.nr. 747. Sótt 16. febrúar 2026 af vef Borgarskjalasafns.
- 4Borgaraskjalasafn Reykjavíkur. Manntal í Reykjavík 1930. 2. hluti: Bræðraborgarstígur – Holtavegur. Sótt 16. febrúar 2026 af vef Borgarskjalasafnsins.
- 5„Íslendingar eiga líka að sýna það utan á sjer, að þeir sjeu menningarþjóð“ (1947, 24. maí). Morgunblaðið, 33. árg., 110. tbl., bls. 6; Páll Bergþórsson (1969, 1. maí). Minning: Sigurður Ólafsson rakarameistari. Morgunblaðið, 56. árg., 95. tbl., bls. 22-23.
- 6Salvör Jónsdóttir og Anna Lísa Guðmundsdóttir (2022), bls. 40.
Deila færslu
Síðast uppfært 16. febrúar, 2026

