Ás við Laugaveg árið 1972. Ljósm.: Sveinn Þórðarson. Borgarsögusafn. Myndasafn. Mynd nr. SÞÓ ÁBS 801. Sótt 17. janúar 2025 af https://borgarsogusafn.is/myndasafn?q=%22%C3%81S%22&h=eyJmaWxlbmFtZSI6IlPDvsOTIMOBQlMgMDgwMS5qcGciLCJwYWdlIjowfQ%3D%3D.
Ás við Laugaveg árið 1972. Ljósm.: Sveinn Þórðarson. Borgarsögusafn. Myndasafn. Mynd nr. SÞÓ ÁBS 801. Sótt 17. janúar 2025 af https://borgarsogusafn.is/myndasafn?q=%22%C3%81S%22&h=eyJmaWxlbmFtZSI6IlPDvsOTIMOBQlMgMDgwMS5qcGciLCJwYWdlIjowfQ%3D%3D.

Skerplugata 10, Reykjavík

Heiti: Ás
Byggingarár: 1906
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Sigríður Magnúsdóttir
Aðrir eigendur:
1910: Stefán Ólafsson
Upphafleg staðsetning: Laugavegur 160a (áður Laugavegur 114), Reykjavík
Flutt: 1989 að Skerplugötu 10, Litla Skerjafirði, Reykjavík
Skerplugata 10 3

Skerplugata 10, Reykjavík, í júní 2022, séð frá Skerplugötu. Ljósm.: Ja.is.

Skerplugata 10 2

Skerplugata 10, Reykjavík, í júní 2022, sér frá Njarðargötu. Ljósm.: Ja.is.

Saga:

Í maí 1906 var brunavirt hús sem Sigríður Magnúsdóttir (1866- 1930) hafði byggt á lóð sinni við Laugaveg í Reykjavík. Húsið stóð eilítið vestan við húsið sem nú hýsir Þjóðskjalasafn Íslands (áður Mjólkurstöðin), þar sem nú er húsið númer 2 við Ásholt og hefur gatan Ásholt eflaust fengið nafn sitt af húsinu, því það var nefnt Ás.

Í brunavirðingunni segir m.a.:

Hús þetta er bygt af binding, klætt utan með plægðum 1“ borðum, pappa, listum og járni þar yfir, og með járnþaki á plægðri 1“ borða súð með pappa á milli. Í bindin er fylt með sagi og millumgólf í öðru bitalagi. Niðri eru 3 íbúðarherbergi, eldhús og 1 fastur skápur, sem alt er þiljað og herbergin með striga og pappír á veggjum og loftum, allt málað. Þar eru 3 ofnar og 1 eldavjel. Uppi er alþiljað geimsluherbergi. Þar er og framloft. Kjallari er undir öllu húsinu. …
Við vesturgafl er inngönguskúr. Hann er bygður eins og húsið. Í honum eru 3 gangar og salerni.1Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 22-11-1905 til 28-03.1911. Aðfnr. 736. Brunav.nr.: 1025. Sótt 17. janúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/736-bok-22-11-1905-til-28-03-1911-adfnr-736.pdf.

Grunnflötur hússins var tæpur 38 fermetrar og við bættist bíslagið, sem var 6 fermetrar.2Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 22-11-1905 til 28-03.1911. Aðfnr. 736. Brunav.nr.: 1025.

Heimild: Dánarminning – Sigríður Magnúsdóttir (1930. 7. ágúst). Lögberg, 43. árg., 32. tbl., bls. 5.

Þegar manntal var tekið árið 1909 bjó Sigríður enn í húsinu ásamt 5 börnum sínum. Auk þess bjó þar önnur þriggja manna fjölskylda. Árið eftir er Sigríður flutt úr húsinu en Stefán Ólafsson (1997-1965), mótoristi, sonur hennar býr þar ásamt ráðskonu og fimm öðrum í tveimur fjölskyldum.3Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Manntal í Reykjavík 1909. 3. hluti: Ingólfsstræti – Laugavegur. Sótt 17. janúar 2025 af  https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Manntol/M_1906-1910/1909/manntal-i-reykjavik-1909-3.-hluti.pdf; Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Manntal í Reykjavík 1910. 3. hluti: Ingólfsstræti – Laugavegur. Sótt 17. janúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Manntol/M_1906-1910/1910/manntal-i-reykjavik-1910-3.-hluti.pdf.

Sigríður réðst um 18 ára aldur til Ólafs Björnssonar (1854-1905) í Reykjavík sem bústýra og síðar gengu þau í hjónaband. Eftir að hafa búið á nokkrum stöðum í Reykjavík og nágrenni byggðu þau nýbýli skammt frá Fúlutjörn í Reykjavík (sem var á þeim slóðum sem Nesti við Borgartún er í dag (2025)) sem þau nefndu Kirkjuból. Þar missti Sigríður mann sinn í mars 1905 og stóð ein eftir með 8 börn.

Eftir dauða manns síns, seldi hún Kirkjubólið, en lét byggja snoturt hús skamt frá verksmiðjunni Mjölnir. Það heimili nefndi hún Ás. Þar bjó hún með börnum sínum, þangað til hún fluttist til Canada 1910. — Þangað fluttust einnig sex af börnum hennar, en tvö urðu eftir heima: Stefán sem nú er búsettur í Rvík og Guðrún [f.1890], sem dó í Reykjavík úr landfarssóttinni miklu 1918.
Sigríður setist að með börn sín í Orton, Alberta, smáþorpi skamt frá Macleod, en síðar fluttist hún alveg til Macleod og átti heima þar til dauðadags, að undanteknu einu ári, sem hún dvaldi í Wynyard, Sask.. …
Sigríður heitin var vönduð og trygglynd kona, góð og umhyggjusöm móðir. Hún var staðföst í lund og vel greind, og síðustu árin las hún mikið og hugsaði mikið um það, sem hún las, og upp á síðkastið dvaldi hugurinn iðulega við hina stóru spurning: Hvað er á bak við tjaldið? Hvernig er umhorfs þar? En hún efaði ekki áframhald lífsins. Nei, hún var viss um það. Hún trúði á guð og hans réttlæti, vísdóm og mátt.4Dánarminning – Sigríður Magnúsdóttir (1930. 7. ágúst). Lögberg, 43. árg., 32. tbl., bls. 5.

Þegar fyrir lá að húsið yrði að víkja fyrir nýju skipulagi var Ás fluttur að Skerplugötu 10 í Litla Skerjafirði í Reykjavík árið 1989, þar sem það stendur enn. Nú setur stór margskiptur gluggi á austurgafli hússins mark sitt á húsið.

 

Leitarorð: Skerjafjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 19. janúar, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 19. janúar, 2025