Sandhús um 1960. Heimild: Vilhjálmur Hjálmarsson (1990). Mjófirðingasögur. Þriðji hluti, bls. 120. Reykjavík: Bókaútgáfa Menningarsjóðs.
Sandhús um 1960. Heimild: Vilhjálmur Hjálmarsson (1990). Mjófirðingasögur. Þriðji hluti, bls. 120. Reykjavík: Bókaútgáfa Menningarsjóðs.

Sandhús, Mjóafirði

Heiti: Jónshús – Skriða - Sandur - Sandhús
Byggingarár: 1884
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Jón Jónsson Espólin
Aðrir eigendur:
1888: Hjálmar Hermannsson og Jóhanna Sveinsdóttir
1898: Lars Kristján Jónsson og María Hjálmarsdóttir
Upphafleg staðsetning: Í flæðarmálinu við Stórurð, spölkorn innan við Brekkuþorp í Mjóafirði
Flutt: 1886 út fyrir Borgareyrará í Mjóafirði
Sandhús 3

Sandhús árið 2009. Ljósm.: Höfundur.

Sandhús 2

Sandhús 2019. Ljósm: Unnar B. Sveinlaugsson. Sótt 13. mars 2024 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=3308954502465327&set=pcb.3308954682465309.

Saga:

Þetta einlyfta, portbyggða stokkahús flutti Jón Jónsson Espólin (1863-1888) tilhöggvið inn frá Noregi árið 1884. Jón hafði komið til Mjóafjarðar frá Skagafirði 1881 og réðst vinnumaður hjá Konráði Hjálmarssyni (1858-1939), sem var mágur hans, og stundaði fiskveiðar á bátum Konráðs tvö fyrstu árin í firðinum.

Jón var aðeins liðlega tvítugur þegar hann réðst í það stórvirki að flytja inn timbur í veglegt hús. Húsviðurinn kom með „Dampinum Alf“ ásamt smiðum. Húsið var upphaflega reist við svonefnda „Stórurð“ spölkorn innan við Brekkuþorp í Mjóafirði og fyrst nefnt Jónshús en fær síðan nafnið Skriða. Í húsinu bjuggu auk Jóns móðir hans, þrjár systur og þrír vinnumenn, sem væntanlega hafa stundað sjómennsku með Jóni því ekki var um að ræða neina grasnyt á Skriðu.

Þar þótti mikil skriðuhætta svo Jón gerði samning við landeigandann Vilhjálm Hjálmarsson (1850-1927) á Brekku um að fá að flytja og byggja aftur upp hús sitt á svonefndum Liverpool-grunni, þar sem Konráð Hjálmarsson hafði haft útibú frá Liverpool-verslun á Seyðisfirði. Grunnurinn var örstutt utan Borgareyrarár og var húsið þar fyrst kennt við Borgareyri en fékk síðan nafnið Sandhús. En Jón naut húsakostsins ekki lengi því í maí 1888 varð hann úti á fjallgarðinum milli Mjóafjarðar og Seyðisfjarðar. Þá eignuðust hjónin Hjálmar Hermannsson (1819-1898) og Jóhanna Sveinsdóttir (1833-1913) húsið. Þegar Hjálmar lést var húsinu skipt í tvær eignir. Lengst áttu hjónin Lars Kristján Jónsson (1862-1941) útgerðarmaður og verslunarstjóri (jafnan kallaður Kristján Lars) og kona hans María Hjálmarsdóttir (1866-1961) frá Brekku (dóttir Hjálmars og Jóhönnu) útenda hússins. Bæði bjuggu þau í húsinu meðan þau lifðu. Fjögur barna þeirra bjuggu þar með sínum fjölskyldum, mislengi þó. Skiptu húshlutarnir oft um eigendur og íbúa til ársins 1973 þegar hætt var að búa í húsinu að staðaldri.

Þess má geta að bæði árin 1890 og 1901 var 21 einstaklingur skráður til heimilis í Sandhúsi, þrír húsbændur, fjölskyldur þeirra, vinnufólk og fleiri.

Árið 2006 eignaðist núverandi (2023) eigandi, Unnar B. Sveinlaugsson (f. 1970) einn afkomenda þeirra Lars Kristjáns og Maríu, húsið. Hann hefur unnið stórvirki við endurgerð þess og ber vinna hans vitni um mikinn hagleik og virðingu fyrir aldri og anda hússins.1Vilhjálmur Hjálmarsson (1990). Mjófirðingasögur. Þriðji hluti, bls. 119-120 og 194-214. Reykjavík: Bókaútgáfa Menningarsjóðs; Unnar B. Sveinlaugsson. Gögn varðveitt í gagnasafni Minjastofnunar Íslands; Guðjón Friðriksson (2020, 14. ágúst). Hús dagsins (101). Sandhús í Mjóafirði á Austurlandi. Sótt 13. mars 2024 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=10224647200477562&set=a.1099305772984

 

Leitarorð: Mjóifjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 13. mars, 2024

Heimildaskrá

  • 1
    Vilhjálmur Hjálmarsson (1990). Mjófirðingasögur. Þriðji hluti, bls. 119-120 og 194-214. Reykjavík: Bókaútgáfa Menningarsjóðs; Unnar B. Sveinlaugsson. Gögn varðveitt í gagnasafni Minjastofnunar Íslands; Guðjón Friðriksson (2020, 14. ágúst). Hús dagsins (101). Sandhús í Mjóafirði á Austurlandi. Sótt 13. mars 2024 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=10224647200477562&set=a.1099305772984

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 13. mars, 2024