Sæmundarreitur 8, Stykkishólmi
Laugavegur 27b, Reykjavík, við Köllunarklettsveg til viðgerðar í ágúst 2021. Ljósm.: Jón Ragnar Daðason. Úr gagnasafni húsafriðunarnefndar.
Sæmundarreitur 8 í Stykkishólmi árið 2023. Ljósm.: Jón Ragnar Daðason. Sótt 4. maí 2025 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=24552799034319018&set=gm.10032672806773954&idorvanity=680671045307557.
Saga:
Árið 1906 byggði Bjarni Jónsson trésmiður einlyft timburhús á lóð sinni, sem síðar var skráð Laugavegur 27b í Reykjavík. Húsið var byggt af binding, klætt utan með plægðum borðum, pappa, listum og járni þar yfir. Þak var einnig með járni. Niðri í húsinu voru fimm íbúðarherbergi, eldhús, gangur og einn fastur skápur. Allt var þetta þiljað og herbergi með striga og pappír á veggjum og loftum. Allt var þetta málað. Þar voru fjórir ofnar og ein eldavél. Uppi voru fjögur íbúðarherbergi og eldhús, sem allt var þiljað og málað. Þar voru einnig fjórir ofnar og tvær eldavélar. Kjallari með timburgólfi var undir öllu húsinu. Í honum voru þrír geymsluklefar, gangur og smíðaherbergi. Grunnflötur hússins var 57 fermetrar.
Við norðurhlið hússins var inn- og uppgönguskúr, sem byggður var eins og húsið. Grunnflötur hans var um 5,5 fermetrar.1Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 22-11-1905 til 28-03-1911. Aðfnr. 746. Brunav.nr.: 1081.
Bjarni Jónsson (1859-1915) kaupmaður og snikkari var afkastamikill húsamiður í Reykjavík. Hann byggði um 150 hús á starfsævi sinni, m.a. Bjarnaborg við Vitatorg sem við hann er kennd.2Hrefna Róbertsdóttir (1993, 1. október). Fyrsta blokkin. Bjarnaborg við Vitatorg. Iðnneminn, 54. árg., bls. 74-81.
Þegar manntal var tekið árið 1909 bjuggu margar fjölskyldur í húsinu, alls 13 manns.3Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Manntal í Reykjavík 1909. 3. hluti: Ingólfsstræti – Laugavegur. Sótt 4. maí 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Manntol/M_1906-1910/1909/manntal-i-reykjavik-1909-3.-hluti.pdf.
Árið 1926 fékk Sigurjón Oddsson (1888-1937) þáverandi eigandi hússins leyfi til að hækka húsið um eina hæð og stækka til vesturs úr steinsteypu. Hönnuður þeirra breytinga var Pjetur Ingimundarson forsmiður (1878-1944). Tíu árum síðar voru byggðir tveir kvistir á húsið, sinn á hvorri hlið og rishæðin innréttuð til íbúðar. Þá breytingu hannaði Þorleifur Eyjólfsson arkitekt (1896-1968).
Þegar ljóst að húsið þyrfti að víkja vegna nýbyggina við Laugaveg keypti Jón Ragnar Daðason bátasmiður húsið. Byrjaði hann á því að flytja þann hluta þess sem var úr timbri til viðgerðar að Köllunarklettsvegi / Héðinsgötu í Reykjavík. Þar var útlit hússins fært nær upprunalegri mynd þess og það m.a. lækkað. Í maí 2021 var húsið síðan flutt að Sæmundarreit 8 í Stykkishólmi þar sem það ber þess merki að hlúð er vel að því.4Gögn í skjalasafni húsafriðunarnefndar.
Hér má sjá fleiri myndir af viðgerð og flutningi hússins. Birt með leyfi ljósmyndara og eiganda hússins, Jóni Ragnari Daðasyni:
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 5. maí, 2025
Heimildaskrá
- 1Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 22-11-1905 til 28-03-1911. Aðfnr. 746. Brunav.nr.: 1081.
- 2Hrefna Róbertsdóttir (1993, 1. október). Fyrsta blokkin. Bjarnaborg við Vitatorg. Iðnneminn, 54. árg., bls. 74-81.
- 3Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Manntal í Reykjavík 1909. 3. hluti: Ingólfsstræti – Laugavegur. Sótt 4. maí 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Manntol/M_1906-1910/1909/manntal-i-reykjavik-1909-3.-hluti.pdf.
- 4Gögn í skjalasafni húsafriðunarnefndar.
Deila færslu
Síðast uppfært 5. maí, 2025








