Sæból, Selströnd við Steingrímsfjörð
Saga:
Þau Auðunn Árnason (1901-1991) og Sigríður Guðmundsdóttir (1907-1983) gengu í hjónaband árið 1928. Fyrstu árin vann Auðunn við fiskvinnu en hugurinn stefndi til búskapar. Árið 1932 fengu þau landskika í landi Hafnarhólms á Selströnd í Steingrímsfirði, þar sem heitir Helganes, þ.e. nesið vestan við höfnina niður af Gautshamri. Þar reisti hann snoturt timburhús og keypti trillu, sem hann gerði út þaðan. Jafnframt stundaði hann fiskvinnu í Hamarsbæli. Árið 1942 fluttu þau frá Helganesi til Byrgisvíkur.1Guðmundur Guðni Guðmundsson (1991, 14. júlí). Auðunn Árnason – Sigríður Guðmundsdóttir – Hjónaminning. Morgunlaðið, 79. árg., 157. tbl., bls. 24 C.
Eftir það voru þau Ólafur Jóhannsson (1908-1964) og Kristjana Halldórsdóttir (1905-1982) kona hans í Helganesi til ársins 1945. Þá koma hjónin Sigurður Guðmonsson (1904-1981) og Hallbjörg Jónsdóttir (1909-1987) að Helganesi, en búa þar ekki lengi, því þegar aflabrögð fóru að tregast fluttu þau til Akraness árið 1947. Þá er húsið flutt frá Helganesi og út að Sæbóli og í því búa þar Einar Jakob Jónsson (1914-2007) og Hólmfríður Pálmadóttir (1919-2010).2Björn H. Björnsson (2012, 1. júní). Um húsagang við Húnaflóa, bls. 35. Strandapósturinn, 44. árg., bls. 31-36; Pétur Þ. Ingjaldsson (1982, 1. maí). Mannalát 1981. Sigurður Kristján Guðmonsson, bls. 179-181. Húnavaka, 22. árg., bls. 155-185.
Sæból var um 200 til 300 m austan við Fiskines á Selströnd. Meðan Hólmfríður og Einar bjuggu á Sæbóli stundaði Einar bæði búskap og sjómennsku. Þau fluttu á Drangsnes árið 1965.3Minning: Einar Jakob Jónsson (2007, 26. janúar). Morgunblaðið, 95. árg., 25. tbl., bls. 40.
Höfundur hefur ekki upplýsingar um hvenær Sæból hvarf af sjónarsviðinu.
Leitarorð: Strandir – Steingrímsfjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 1. desember, 2025
Heimildaskrá
- 1Guðmundur Guðni Guðmundsson (1991, 14. júlí). Auðunn Árnason – Sigríður Guðmundsdóttir – Hjónaminning. Morgunlaðið, 79. árg., 157. tbl., bls. 24 C.
- 2Björn H. Björnsson (2012, 1. júní). Um húsagang við Húnaflóa, bls. 35. Strandapósturinn, 44. árg., bls. 31-36; Pétur Þ. Ingjaldsson (1982, 1. maí). Mannalát 1981. Sigurður Kristján Guðmonsson, bls. 179-181. Húnavaka, 22. árg., bls. 155-185.
- 3Minning: Einar Jakob Jónsson (2007, 26. janúar). Morgunblaðið, 95. árg., 25. tbl., bls. 40.
Deila færslu
Síðast uppfært 1. desember, 2025