Rauðafell, Vestmannabraut 58b, Vestmannaeyjum, er húsið með fimm gluggum á langhlið, næst okkur vinstra megin á myndinni. Ljósm.: Tausti Guðjónsson, Skaftafelli. Sótt 9. júli 2024 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=1148753051838079&set=gm.851038128363646.
Rauðafell, Vestmannabraut 58b, Vestmannaeyjum, er húsið með fimm gluggum á langhlið, næst okkur vinstra megin á myndinni. Ljósm.: Tausti Guðjónsson, Skaftafelli. Sótt 9. júli 2024 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=1148753051838079&set=gm.851038128363646.

Rauðafell, Vestmannabraut 58b, Vestmannaeyjum

Heiti: Seljaland - Rauðafell
Byggingarár: ≈1901
Rifið: <1989
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Jón Jónsson og Guðný Þorbjarnardóttir
Aðrir eigendur:
1918-1920: Þórður Stefánsson og Katrín Guðmundsdóttir
Upphafleg staðsetning: Seljaland undir Eyjafjöllum
Fyrst flutt: 1918 að Vestmannabraut 58b, Vestmannaeyjum

Saga:

Hjónin Jón Jónsson (1845-1918) og Guðný Þorbjarnardóttir (1848-1940) bjuggu á Seljalandi undir Eyjafjöllum á árunum 1901 til 1917, en þá fluttu þau til Vestmannaeyja. Hús þeirra keyptu hjónin Þórður Stefánsson (1892-1980) og Katrín Guðmundsdóttir (1892-1974) sem fluttu til Vestmannaeyja um svipað leyti frá Berjaneskoti undir Austur-Eyjafjöllum.1Viglundur Þór Þorsteinsson (2020, 20. september). Heimaslóð. Jón Jónsson (Jónshúsi); Theódor S. Georgsson (1980, 18. nóvember). Minning: Þórður Stefánsson Vestmannaeyjum. Morgunblaðið, 68. árg., 257. tbl., bls. 30; Þórður Tómasson, safnstjóri Skógasafni (2009, 7. október). Tölvupóstur.

[Í Vestmannaeyjum] eyddi hann [Þórður] síðan mestum hluta ævi sinnar. Þó sjómennskan yrði aðalstarf Þórðar, blundaði þó alltaf í honum löngun til sveitabúskapar. Sést það gleggst á því að nær allan tímann sem hann bjó í Eyjum átti hann skepnur og var stundum með veruleg umsvif í búskap á mælikvarða eyjaskeggja. Er enginn vafi á því að hann hefði orðið stórbóndi, ef hann hefði haldið áfram búskap á fastalandinu. Þegar Þórður flutti til Vestmannaeyja keypti hann íbúðarhús á Seljalandi undir Vestur-Eyjafjöllum, reif það niður og flutti til Eyja. Reisti hann svo þetta hús aftur við Vestmannabraut og kallaði Rauðafell.2Theódor S. Georgsson (1980, 18. nóvember).

Þórður var alinn upp á Rauðafelli, hjá móðurafa sínum og ömmu, og nefndi hann hús sitt eftir bernskuslóðum sínum.3Theódor S. Georgsson (1980, 18. nóvember).

Árið 1920 keypti Þórður þriðja part í v.b. Frið VE 156 og setti hann íbúðarhús sitt að veði. Næsta vertíð gekk illa enda vél bátsins oft í ólagi. Varð mikið tap á útgerðinni þann vetur og fé til greiðslu skulda lá ekki á lausu. Einn „Eyjajarlinn“ gekk þá að veðinu og hirti íbúðarhús Þórðar upp í skuldir.4Theódor S. Georgsson (1980, 18. nóvember).

En Þórður lét þetta ekki buga sig, heldur hóf þegar að reisa sér hús við Hvítingaveg 5, sem nefnt var Fagrafell. Þar bjuggu þau hjón með 11 börn sín, en einn son misstu þau nokkurra vikna.5Víglundur Þór Þorsteinsson (2021, 26. nóvember). Heimaslóð. Þórður Stefánsson (Rauðafelli)./mfn]

Húsið sem er í miðjum forgrunni myndarinnar er Rauðafell. Myndin er fengin úr hópnum Gamlar ljósmyndir úr Eyjum á Facebook, en ekki er vitað hver tók myndina. Valli Ella (2024, 18. júlí). Tölvupóstur.

Rauðafell stóð við Vestmannabraut 58b í Vestmannaeyjum. Húsið var rifið áður en sambýli Öryrkjabandalagsins var reist á lóðinni. Samkvæmt Fasteigna­skrá Íslands var það hús byggt árið 1989.5Heimaslóð (2022, 28. september). Rauðafell. Sótt 9. júlí 2024 af https://heimaslod.is/index.php/Rau%C3%B0afell.

 

Leitarorð: Vestmannaeyjar

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 18. júlí, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 18. júlí, 2024