Rauða húsið, Skipagötu, Akureyri
Saga:
Höfundur rakst á meðfylgjandi mynd í grein Ingólfs Davíðssonar í Tímanum 9. október 1977. Ingólfur segir um húsið: „Heyrt hef ég að húsið sé norskt og hafi verið flutt í bæinn utan frá Dældum í Krossanesi fyrir alllöngu. Það er harla ólíkt öðrum húsum í grenndinni.“1Ingólfur Davíðsson (1977, 9. október). Byggt og búið í gamla daga, 192. Tíminn, 61. árg., 223. tbl., bls. 8. Því var ákveðið að spyrjast fyrir um húsið á Minjasafninu á Akureyri. Eftirfarandi samantekt barst frá Hönnu Rósu Sveinsdóttur sérfræðingi:

Sigurbjörn Egilsson flytur húsið að Minjasafni Akureyrar, líklega árið 1983. Facebook: Gömul hús á Íslandi. Sótt 14. febrúar 2024 af https://www.facebook.com/photo.php?fbid=3687024364953264&set=p.3687024364953264&type=3.
Á þessari stundu er ekki vitað hvaða ár húsið er upphaflega reist né hvar það stóð þar sem engar frumrannsóknir hafa farið fram en engu að síður eru vísbendingar um að húsið sé upphaflega byggt árið 1901.
Ásgeir Pétursson síldarútgerðarmaður sem var einn af umsvifamestu síldarútgerðarmönnunum landsins fékk leyfi þann 27. apríl 1911 hjá byggingarnefnd Akbæjar að reisa húsið á lóðinni við Skipagötu. Þar er því lýst sem timburhúsi á einni hæð” með risi og kvisti yfir”. Ásgeir hafði fest kaup á því handan Eyjafjarðar og fleytt því yfir Pollinn. Í húsinu rak hann síldarniðursuðu. Ekki er vitað hvaðan Ásgeir flutti húsið en ekki er fráleitt að ætla að hann hafi flutt það frá Svalbarðsströnd þar sem hann bjó 1909-1910. Í Svalbarðsstrandarbók er talað um Guðmund Pétursson bróður Ásgeirs sem byggði sér verslunar og íbúðarhús á Svalbarðseyri árið 1901. Guðmundur verslaði til ársins 1907 en þá átti hann við heilsubrest að stríða og leitaði sér lækninga erlendis en fluttist svo til Akureyrar árið 1911. Árið 1909 flutti Ásgeir á Svalbarðseyri og verslaði hann í búð Guðmundar bróður síns en fluttist til Akureyrar aftur eftir árið. Nú er það spurning hvort Ásgeir hafi hreinlega keypt húsið af bróður sínum þegar hann fluttist til Akureyrar árið 1911? Ef svo er þá er húsið frá árinu 1901.
Ásgeir Pétursson var fæddur 1875 að Neðri Dálksstöðum á Svalbarðsströnd. Hann var í tvo vetur á verslunarskóla í Kaupmannahöfn og fluttist til Akureyrar árið 1898. Árið 1909 fluttist hann með fjölskyldu sinni frá Akureyri út á Svalbarðseyri en var þar bara í eitt ár og kom aftur til Akureyrar þar sem hann rak umsvifamikla útgerð um langt skeið.
Árið 1928 keypti bæjarsjóður Akureyrar Rauða húsið og notaði það sem áhaldahús/verkfærahús Akbæjar og seinna var það skýli verkamanna. Síðast var notað sem nokkurskonar galleri „Rauða húsið“. Þá voru þar sýningar og vinnuaðstaða fyrir listamenn.
Húsið var flutt í heilu lagi af lóðinni við Skipagötu, líklega um 1983-84, fyrst að flötinni neðan við Minjasafnið og stóð þar einn vetur og síðan var það flutt inn að Botni, sem er jörð í Eyjafjarðarsveit sem er sumardvalarstaður fyrir fötluð börn. Þar stóð til að endurbyggja húsið en til kom reyndist það of illa farið og var rifið á endanum.2Hanna Rósa Sveinsdóttir (2010, 2. febrúar). Tölvupóstur.
Jón Hjaltason, sem skrifað hefur Sögu Akureyrar, telur einnig að húsið hafi verið handan Eyjafjarðar og því fleytt yfir Pollinn. Hann telur jafnframt að norskir síldveiðisjómenn hafi reist húsið og notað það sem salthús en íbúðir hafi verið í risinu.3Jón Hjaltason (2000). Saga Akureyrar. Fæðing nútímamannsins 1906-1918. III. bindi, bls. 238-239. Akureyri: Akureyrarbær; Jón Hjaltason (2021). Ótrúlegt en satt. Saga Akureyrar í öðruvísi ljósi, stundum skemmtilegu, stundum sorglegu, jafnvel vandræðalegu en alltaf fróðlegu, bls. 134. Akureyri: Völuspá útgáfa í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Hugsanlega er þetta þá hús, sem Norðmenn reistu í Dældavík á Svalbarðsströnd og sagt er frá í Svalbarðsstrandarbók. Þar segir um hús eitt:
Árið 1902 byggðu Norðmenn hér [þ.e. í Dældavík] hús og bryggju og stunduðu héðan síldveiðar með landlásum. Hlóðu þeir fyrir uppfyllingu að geyma á síldartunnur og óku fram grjóti í garð sunnan til við bryggjuna til að hlífa henni fyrir lagísreki. … Stóð útgerð þessi fá ár. Árið 1911 var hús og bryggja selt á uppboði, bryggjan rifin, en húsið flutt til Akureyrar. Stendur það við Skipagötu. Hefir bærinn þar áhaldageymslu.4Júlíus Jóhannesson (1964). Svalbarðsstrandarbók, bls. 21. Útg.staðar ekki getið: Svalbarðsstrandarhreppur.
Í Degi í lok júlí 1985 er greint frá endalokum hússins. Þar kemur fram að Akureyrarbær hafi gefið styrktarfélögum vangefinna húsið þegar það þurfti að víkja af Skipagötunni. Síðan segir:
Ekki höfðu félögin fjárráð til að gera endurbætur á húsinu strax, en þegar að því kom voru fróðir menn fengnir til að skoða húsið. Kom þá í Ijós, að það var ódýrara fyrir félögin að byggja nýtt hús á staðnum, heldur en að gera við „Rauða húsið“. Viðir hússins höfðu nefnilega ekki þolað þurrkinn fremra, eftir langvarandi selturaka við Skipagötu. Traust tré urðu
þar þurrafúa að brá. …
Þá var húsið rifið og nú er ekki annað eftir af „Rauða húsinu“ en óásjáleg rauð spýtnahrúga í hlaðinu á Botni. Einhver sprek úr húsinu gegna þó hlutverki girðingarstaura, nema hrossin séu þá búin að éta þá upp, því „saltstaurar“ eru þeirra uppáhald.5Smátt og stórt (1985, 31. júlí). Dagur, 68. árg., 83. tbl., bls. 12.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 21. júní, 2025
Heimildaskrá
- 1Ingólfur Davíðsson (1977, 9. október). Byggt og búið í gamla daga, 192. Tíminn, 61. árg., 223. tbl., bls. 8.
- 2Hanna Rósa Sveinsdóttir (2010, 2. febrúar). Tölvupóstur.
- 3Jón Hjaltason (2000). Saga Akureyrar. Fæðing nútímamannsins 1906-1918. III. bindi, bls. 238-239. Akureyri: Akureyrarbær; Jón Hjaltason (2021). Ótrúlegt en satt. Saga Akureyrar í öðruvísi ljósi, stundum skemmtilegu, stundum sorglegu, jafnvel vandræðalegu en alltaf fróðlegu, bls. 134. Akureyri: Völuspá útgáfa í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri.
- 4Júlíus Jóhannesson (1964). Svalbarðsstrandarbók, bls. 21. Útg.staðar ekki getið: Svalbarðsstrandarhreppur.
- 5
Deila færslu
Síðast uppfært 21. júní, 2025